Vikan


Vikan - 04.04.1968, Síða 21

Vikan - 04.04.1968, Síða 21
Langt er síðan dularfullir hlutir tóku að sjást á svifi um himingeiminn hingað og þangað yfir yf- irborði jarðar, einkum í Ameríku. Hafa hlutir þessir tíðast verið nefndir fljúgandi diskar og er ætl- an margra að þeir séu farartæki fólks frá öðrum hnöttum. Ekki hafa þessir gestir úr geimnum sýnt af sér neina vonsku gegn lífverum þessa heims - utan einu sinni, að sögn frú Berle Lewis og nágranna hennar í Heilagshlöðvésdal í Kóloradó, Bandaríkjunum. Þau eru sem sé sannfærð um að menn utan úr geimnum hafi slátrað reiðhesti frúarinnar, slitið úr honum flest mikilvæg- ustu líffærin og þar á ofan sogið úr honum merg og blóð. Fyrr má nú vera frekjan! hann. Þaðan af síður fundust ó staðnum nokkrir hnífar eða slík óhöld, er gætu hafa verið notuð til að fremja þær fagmannlega útfærðu skurðað- gerðir, sem leifarnar af hestsskrokknum vitnuðu um. Ellefta september hófu Lewis-hjónin og Harry King nákvæma rannsókn á staðnum, þar sem Snippy fannst. Þau fundu þar lykt, sem King segir að hafi verið „sætvelgiuleg" og Lewis-hjónin segja að minnt hafi þau á lyf. Þau fundu eitthvað, sem virtust vera fimmtán kringlótt spor eftir öflugan útblástur úr einhverskonar vél. Spor þessi voru á svæði, sem var hundrað sinnum fimmtíu metra að flatarmáli. Þá fundu þau á einum bletti sex álíka holur í jörðina, og voru þær allar fimm sentimetra að ummáli og tíu sentimetra djúpar. Þau urðu smeyk og gengu nú heim til Mrs. King. Gamla konan, sem er áttatíu og sjö ára að aldri, sagði þeim að síðasta kvöldið, sem hest- urinn sást lifandi, hefði hún tekið eftir einhverjum stórum hlut, sem flaug í þakhæð yfir lóðina hennar. En því miður hittist svo á að hún var ekki með gleraugun sín, svo að hún gat ekki lýst hlutnum nánar. Þetta var Mrs. Lewis nóg. Hún reyndi að fá sériffa Alamoso-svæðis, Ben Philips, til að fara með geigerteljara á staðinn. En sériffinn neitaði og sagði kaldranalega: — Ég trúi ekki á fliúgandi diska. Ég er viss um að eldingu hefur slegið niður í hrossið. Mér var sögð þessi saga um diskinn nokkrum dögum eftir að hræið fannst, en fór ekki á staðinn. Við erum bara tveir hérna, aðstoðarmaður minn og ég, og við höfum svo sannarlega nóg að gera. Gamla konan sér oft hina og þessa furðulega hluti, og við höfum annað að starfa en flakka um auðnirnar og skoða hestshræ. í meira en fimm ár höfum við verið að fá þessar frásagnir af fljúgandi diskum, og hafa flestar þeirra borist til Þjóðvegalögreglu Colorado. Mrs. Lewis gafst ekki upp að heldur, sízt eftir það sem fyrir kom, að hennar sögn, þann sextánda september, þegar hún í annað sinn kom á staðinn þar sem Snippy fannst. í runna rétt hjá hestshræinu fann hún einskonar „klump", sem húðartætlu var vafið um. Hann var ekki stærri en kjúklingslifur, og útfrá honum voru hárlufsur sem hlutu að vera úr faxi eða tagli hestsins. Mrs. Lewis stakk prjóni í klumpinn, og út streymdi þykk, Ijósgræn leðja. Engin lykt fannst af þessu. Með vinstri hendi sleit frúin lausa hárlufsuna, en sleppti henni er hún fann að hárin voru klístruð. Tíu mínútum síðar kenndi hún ákafs sviða ! vinstri lófanum. Jafnframt varð hörundið eldrautt. Hún fór þá aftur til sumarhúss, sem fjölskyldan átti og var í hálfs sjöunda kílómetra fjarlægð. Það sápuþvoði hún höndina hvað eftir annað. Að klukkutíma liðnum var sviðinn á brott og höndin aftur með eðlilegum lit. Tuttugasta og þriðja september fór Duane Martin, skógaeftirlitsmaður, að áeggjan Mrs. Lewis á staðinn, þar sem hesturinn fannst. Hann hafði með sér geigerteljara. Hann sýndi mikla geislun kringum „útblásturs- sporin"!, en geislunin varð því minni sem nær dró hestshræinu. Þar með sannfærðist Mrs. Lewis um að morðingjar Snippys hennar væru ekki af þessum heimi. Hversvegna gat hún ekki (myndað sér. Hefði hún á réttu að standa, var þetta fyrsta vígið, sem kunnugt var af hálfu geimbúa á jörðu hér. Þeir, sem rannsakað hafa frásagnir af flugdiskum, hafa aldrei grunað áhafnir þeirra um slíkt gerræði. Uppveðruð af öllu þessu hringdi Mrs. Lewis í blað eitt í Pueblo, sem hún öðru hvoru hafði haft samband við, og sagði alla söguna. Arangur- inn lét ekki á sér standa. Hvaðanæva úr Heilagshlöðvésdal hringdi nú fólk, sem tekið hafði eftir dularfullum fljúgandi hlutum á lágflugi yfir fjöllunum og einmitt þá sömu nótt, sem talið var hin síðasta í lífi Snippys hérna megin. Auðvitað minntust menn nú þess atburðar, er skeð hafði tuttugasta og fjórða apríl, þegar lögreglumenn frá Rio Grande-svæðinu, þar á meðal Sam Grazier aðstoðarsériffi og Joe Perea varasériffi, for- mæltu sér upp á að hafa séð undarlegan, lýsandi hlut æða yfir himin- hvolfið. Og hver mundi ekki eftir „fljúgandi körfuboltanum" stóra, sem Ben King kvað hafa elt bílinn hans, og hafði snöggstanzað í hvert skipti er hann hemlaði, farið af stað jafnskjótt og hann aftur steig á bensín- gjafann og verið með blárauðum, blikkandi Ijósum? King, sem var bróðir Mrs. Lewis, sagði hlut þennan hafa haldið sig í kurteislegri fjarlægð, um hundrað metra fyrir aftan bílinn og í um fimm- tíu metra hæð. Ég bjóst við að „boltinn" færi í veg fyrir mig áður en ég næði heim til Berle, sagði King. — En skömmu áður en þangað kom, hvarf hann skyndilega. Hann hvorki flaug eða valt í burtu. Hann bara hvarf. Seytjánda maí ók kennarastúdentinn Steve Hardwick sem leið lá frá Adams-kennaraskóla til heimilis síns í Þrenningu (Trinidad), sem er bær Framhald á bls. 36. i3. tbi. yiKAN 21

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.