Vikan - 04.04.1968, Blaðsíða 34
KJOLA-
EFNI..
LAUGAVEGI 59 SlMI 18647
McGrath nauðugan á brott með
aðstoð lyftudrengjanna. Dymar
lokuðust og frú Beauvais gekk
rólega inn í baðherbergið og opn-
aði tannburstann sinn. Hún tók
skartgripina upp úr handtösku
sinni og setti þá innan í tann-
burstann. Hún skrúfaði lokið á
og brosti enn einu sinni með
sjálfri sér sigri hrósandi yfir því,
hversu vel þetta hefði gengið
allt saman. Hún þurfti aldeilis
að gera sér glaðan dag í tilefni
af því. Hún fór niður og inn á
barinn.
Hún dreypti á pernod-glasi og
virti fyrir sér karlmennina, sem
sátu við barinn. Enginn þeirra
var af sömu manngerð og Mc-
Grath. Hún vissi það, því að hún
hafði kynnzt náungum eins og
honum út um allt landið, sérstak-
lega þó í New York. Hún þekkti
þá um leið og hún sá þá. Sumir
hófu svik sín á því að tala um
hlutabréf; um öll þau reiðinnar
ósköp af peningum sem mætti
græða á einhverjum olíunámum
— ef aðeins fengist fé til að nýta
þær og hefja framkvæmdir. Aðr-
ir voru ekki eins stórtækir né
hugmyndaríkir, litlir karlar eins
og þessi McGrath. Þeir reyndu að
opna skartgripaskrín gamalla
kvenna með persónutöfrum sín-
um. En hún, —- sjálft fórnar-
lambið — hafði skotið þeim öll-
um ref fyrir rass! Þetta var
áhættusamt líferni og oft þurfti
að tefla á tæpasta vað, en það
var spennandi og ævintýraiegt og
hún naut þess að bjarga sér á síð-
ustu stundu með því að nota hið
frjóa ímyndunarafl sitt.
Celine Beauvais, hugsaði hún
og saup á glasinu. Þau voru orð-
in mörg nöfnin, sem hún hafði
borið og sömuleiðis sögurnar
sem hún hafði spunnið upp. Hún
var hreykin yfir því, sem henni
hafði dottið í hug í þetta sinn, —
sögunni um ljónin tíu. Hún hafði
nýlega lesið þetta spakmæli eftir
Coolidge og allt í einu hafði því
skotið upp í huga hennar. Og
þetta spakmæli hafði heldur bet-
ur sannazt á vesalings McGrath.
Hún hafði í rauninni aðvarað
hann, þegar hún sagði honum, að
tíunda ljónið kæmi ævinlega á
óvart, eins og þruma úr heiðskíru
lofti. En hann hafði ekki skilið
við hvað hún átti.
Hún borgaði þjóninum, fór út
úr barnum með þetta indælis
pernod-bragð á tungunni. Við af-
greiðsluborðið sagði hún skrif-
stofumanninum, að hún færi af
hótelinu eftir klukkutíma. Hún
sagði honum hreinskilnislega, að
hún ætlaði að skipta um hótel —
fara á betra og virðulegra hótel,
þar sem gamlar konur gætu ver-
ið í friði og búið við fullkomið
öryggi. Hún heimtaði að fá end-
urgreitt það sem hún hafði greitt
fyrirfram. Hann kinkaði kolii,
tautaði nokkur afsökunarorð og
reyndi að brosa.
Þegar hún hafði lokið við að
pakka niður dótinu sínu, hringdi
hún í afgreiðsluna og bað þá um
að senda Jerry upp til þess að
bera farangurinn. Hún gerði sér
ljóst, að hún mundi sakna þessa
glaðlega stráks, sem hafði verið
svo hændur að henni og látið sér
svo annt um velferð hennar. Hún
viðurkenndi fyrir sjálfri sér, að
hún þarfnaðist einmitt þess kon-
ar umhyggju og verndar sem
Jerry hafði sýnt hénni. Að sjálf-
sögðu var hann alltof ungur, en
eldri maður sem hefði til að
bera sömu kosti og hann, mundi
hæfa henni vel. Ef hún hitti
slíkan mann, þá gæti hún hætt
að leika sér að óþokkum eins og
köttur að mús. Hún hafði að
vísu gaman af því, en gerði
það fyrst og fremst til að geta
haft nóg fé handa á milli og lif-
að því lífi sem hún var vön. Hún
hrökk upp úr hugleiðingum sín-
um, lyfti brúnum og sagði við
tómt herbergið:
„En svona er iífið- Því verður
víst ekki breytt."
Hún var nýkomin inn á bað-
herbergið og var í þann veginn
að fara að pakka niður snyrti-
dótinu sínu, þegar barið var að
dyrum. Hún þaut fram og opn-
aði dyrnar upp á gátt og ætlaði
að fagna Jerry innilega. En það
var ekki Jerry sem stóð þarna
í dyrunum. Það var gamall karl-
fauskur, sennilega um sjötugt.
„Ég sagði þeim að senda Jerry
upp til mín,“ sagði hún vonsvik-
in.
„Það er því miður ekki hægt,“
sagði gamli maðurinn. „Hann er
bölvaður flautaþyrill, strákurinn;
sennilega einn af þeim sem tollir
hvergi. Hann sagði upp og fór
fyrir klukkutíma síðan. Sagði
bara bless og var farinn; engin
skýring og ekki neitt!“
„Hvað segið þér?“
„Eina sem hann skildi eftir
voru skilaboð til yðar. Eruð þér
ekki frú Beauvais?“
„Jú.“
„Gjörið þér svo vel.“
Hann fékk henni lítinn pakka
með brúnum umbúðapappír og
teygju utan um.
Henni hlýnaði um hjartaræt-
urnar. Hvað þetta var fallega
gert af honum! Gjöf frá Jerry
að skilnaði! Hún opnaði pakk-
ann og varð undrandi, þegar hún
sá innihald hans: Tannbursti!
„Ég skil þetta ekki,“ tautaði
hún, en á samri stundu skildi
hún hvernig í öllu lá. Hún hljóp
inn í baðherbergið. Allt var á
sínum stað: naglalakkið, púður-
dósin, hárlakkið . . . allt nema
eitt. Það vantaði tannburstann!
Hún hélt að hún mundi falla í
öngvit.
Góða stund stóð hún hreyfing-
arlaus, þar til hún heyrði rödd,
sem henni fannst hljóma einhvers
staðar langt í burtu. Það var rödd
gamla mannsins:
„Það fylgir miði með pakkan-
um, frú Beauvais."
Hún gekk út úr baðherberg-
inu eins og í svefni og greip mið-
ann úr höndum karlsins. Á hann
var skrifað með stórkarlalegu
letri:
„McGrath vissi ekki hvar hann
átti að leita. Þegar þið voruð öll
farin, leitaði ég — og fann. Bless!
Jerry.“
☆
LILJU
LILJU
UJ
ÍSJ
LILJU BINDI
ERU BETRI
Fást í næstu bú9
34 VIKAN 13- tbl-