Vikan


Vikan - 04.04.1968, Qupperneq 46

Vikan - 04.04.1968, Qupperneq 46
ANDRÉS INDRIÐASON HlJlMAR Gunnar msm *nSS& Víst má telja, að Hljömar hafi aldrei átt jafn miklum vinsældum að fagna og einmitt nú. Hafa þeir þó leikið saman í um það bil fimm ár — eða lengur en nokkur önnur íslenzk hljóm- sveit — og iðulega hafa þeir á þessu tímabili verið kjörnir vinsælasta hljómsveitin í blöðum eða á hljóm- leikum. Skemmst er að minnast skoð- anakönnunnar Morgunblaðsins nú í ársbyrjun, en þá hlutu Hljómar rúm- lega 80% atkvæða. Þessi úrslit, sem eru órækur vottur þess, hvílíkra vin- sælda Hljómar njóta um land allt, eru harla athyghsverð — svo og það, að þeir skuli hafa haldið saman svo lengi. en þeir eru allir komnir af táningaskeiðinu fyrir þó nokkru. Þær eru ekki margar atvinnuhljóm- sveitirnar hér á landi. Ég veit aðeins um Hljóma. Með orðinu „atvinnu- hljómsveit" er átt við, að liðsmenn viðkomandi hljómsveitar séu hljóð- færaleikarar að atvinnu og stundi ekki aðra vinnu né séu í skóla. All- flestir hljóðfæraleikarar stunda aðra vinnu að deginum til en grípa svo í hljóðfærin með hljómsveitum sínum, sem ekki gera annað en sinna músik- inni, en þess munu fá dæmi, að allir 46 VIKAN 13-tbl- Vettvanour unoa fúlksins Dagana 3 og 5. apríl verður úr því skorið, livaða stúlka mun hljóta sæmdarheitið „Fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1968“. Myndirnar af stúlkunum hafa verið að birtast hér í blaðinu að undanförnu, og í þessu blaði eru myndir af þeim öllum saman. Það eru Vikan og Karna- bær, tízkuverzlun unga fólksins, sem gangast fyrir þessari samkeppni, og hún mun fara fram í Austurbæjarbíói, eins og í fyrra. Tilhögun verður með svipuðu sniði nú og í fyrra: fyrir utan keppnina sjálfa verður sýndur nýjasti tízkufatnað- ur unga fólksins og Hljómar, Flowers og íleiri munu sjá um að flytja nýjustu lögin. Þessar skemmtanir þóttu tak- ast hið bezta í fyrra og voru ungu fólki til hins mesta sóma. Þær hafa hlotið heitið <&».' „Véttvangur unga fólksins“ enda kemur fram fjöldi ungs fólks, sem fær tækifæri til að sýna, hvað í því býr. Ovenju vel hefur verið vand- að til þessara skemmtana, og er það von þeirra, sem að þeim standa, að þær geti orðið árlegur við- burður. — í þessari VIKU segjmn við frá hljómsveit- um, sem munu láta í ser heyra á. skemmtununum 3. og 5. apríl n.k., — Hljóm- um og Flowers. Erlingur liðsmenn einnar hljómsveitar sinni músikinni eingöngu — og mæti á æf- ingar klukkan níu á morgnana og vinni við það fram eftir degi hvcrn dag. Þetta hafa Hljómar gert. Þeir hafa ekki sinnt öðru en músik í fjög- ur ár. Fátitt mun vera, að hljómsveit leggi jafn mikla vinnu í músik sína og Hljómar gera — og er hér ekki verið að halla á neina hljómsveit, síður en svo. Það getur tekið þá tvo daga að æfa eitt einasta lag. Og eklcert lag leika þeir opinberlega, fyrr en þeir eru allir fullkomlega ánægðir með það. Með slíkum vinnubrögðum sem þessum hlýtur árangur að nást — og hann hefur svo sannarlega komið í ljós hjá Hljómum. Maðurinn bak við músikina er Gunn- ar Þórðarson, þessi hægláti og hóg- væri piltur, sem hefur áunnið sér vin- sældir og næstum óvenjulega virðingu kollega sinna í öðrum hljómsveitum. Gunnar útsetur músik Hljóma, og hann hefur líka samið fallegustu lög- in, sem þeir hafa flutt á hljómplöt- um, „Bláu augun þín" og „Þú og ég" svo eitthvað sé nefnt. Einnig hefur hann samið lög fyrir aðra söngvara og hljómsveitir, t. d. lagið „Æskuást" fyrir Sigrúnu Harðardóttur. Þegar 12 laga plata Hljómanna kom út skömmu fyrir síðustu jói, heyrðist hvarvetna, að platan markaði tíma- mót í íslenzkri hljómplötuútgáfu. Og þetta var mikið rétt, að minni hyggju. Þarna fengu Hljómar að sýna, hvað í þeim bjó við hinar beztu aðstæður. Og þeir sýndu, svo ekki var um vilizt, að þeir standa mörgum erlendum hljómsveitum, sem hafa getið sér frægðar, fyllilega á sporði. Ekki hef ég heldur heyrt plötur frá skandinav- iskum hljómsveitum i þessum gæða- flokki.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.