Vikan - 10.04.1968, Blaðsíða 8
LJÖSAÚRVAL:
Loftljós
Veggljós
Standlampar
Borðlampar
og ýmsar
gjafavörur.
HEIMILISTÆKI:
Frystikistur
í þrem stærðum
Frystiskápar
Kæliskápar
Eldavélar
og fleira.
VERZLUNARTÆKI:
Djúpfrystir
Kæliborð
Kælihillur
Kæliklefar
og fleira.
•\
Finskar frystikistur
J
Sendum gegn póstkröfu.
RAFTÆKJAVERZLUN
ItM
Stigahlíð 45 - Suðurveri - Sími 37637
r~
N
IISSL
I
GREHSÁSVEGI22-24
SIMAR: 30280-32262
UTAVER
Pilkington’s postulín veggflísar
Stærðir: 7Vi cm x 15 cm og 11 em x 11 cm.
Barrystaines linoleum
parket gólfflísar
Stærðir 10 cm x 90 cm og 23 cm x 23 cm.
GOTT VERÐ
r
J Chou En-lai, langar hann í stríð?
Kín: Er briðii beims-
sMiin í imdirbiHingi?
í meira en ár hafa kínverskir
þjóðarleiðtogar hvatt þjóðina til
að vera viðbúna stríði. Síðasta
slík hvatning kom frá Chou En-
lai, forsætisráðherra. Samkvæmt
Kantonblaðinu Chichung Hung-
chi, sem gefið er út af stjórn
Maós, verður Kína „óhjákvæmi-
lega“ komið í stríð „i síðasta
lagi i vor“. Blaðið segir, að þetta
geti vel þróazt upp í að verða
þriðja heimsstyrjöldin. Heim-
ilda er ekki getið, en vitað, að
kínversku flokksleiðtogamir
rélta oft rauðu varðliðunum alls
konar leynilegar tilkynningar í
áróðursskyni.
Það sem helzt kemur Kínverj-
um til að velta vöngum yfir striði
er það hernaðartilstand, sem nú
á sér stað við landamæri þeirra.
Rússar eru með tólf skriðdreka-
herdeildir við landamærin. For-
mósa hefur 400 þúsund dáta á
eynni Quemoy og eyjunum þar
í grennd, og allir vita, að Chian
Kai-shek dreymir um að gera
innrás á meginlandið. Og i Ind-
landi hafa herflokkar gráir fyrir
járnum safnazt saman við landa-
mærin.
„Heita má, að Kína sé nú í
umsátursástandi, og ástandið er
mjög alvarlegt,“ segir blaðið. En
um USA er ekkert sagt. Peking-
útvarpið hefur hins vegar gefið
í skyn, að ekki sé ólíklegt, að
USA breiði Víetnamstyrjöldina
út, meðal annars til Kína, þótt
ekki væri til annars en að tryggja
Johnson endurkjör. Og í Was-
hington gengur sami orðrómur-
inn; að árekstur við Kína sé fast
að því óumflýjanlegur.
8 VIKAN
14. tbl,