Vikan - 10.04.1968, Blaðsíða 44
handyðncfy
URFtma M£Ð AÐE/NS MM YRRPURMUN
meyja sinna, hættir þeim til að
beita þær ógn og kúgun. Þeir vilja
umfram allt drottna. Hrúturinn hef-
ur óseðjandi þörf fyrir að auglýsa
karlmennsku sína við öll möguleg
og ómöguleg tækifæri. Oft óttast
hann að konan verði honum fjötur
um fót. Veruleg hætta er ó að hon-
um þyki hjónabandið leiðinlegt og
tilbreytingarlaust.
... hreinsar
MÁLHÐB VEGGI, VRSKH, BBKBROFNA,
GÓLF, betur, hraðar, auðveldar!
Límkennd óhreinindi? Fitukennd óhreinindi? Leðjukennd óhreinindi? Handy
Andy hreinsar öll óhreinindi ó brott með aðeins einni yfirþurrkun. Nútíma
húsmæður, hvar sem er, eru sammála um það að hann sé bezti alhliða
hreinsunarlögur, sem völ er á. Handy Andy hefir öflugan styrkleika til að
hreinsa allskonar heimilishluti betur, hraðar, auðveldar. Notið hann annð-
hvort eins og hann kemur úr flöskunni, eða þynntan með vatni ef hreinsa
skal stærri svæði. Þér þurfið ekki að nota nema lítið í hvert sinn — Handy
Andy er svo kröftugur, svo drjúgur! Kaupið hann strax í dag!
CLEANS
PAINTWORK
WITHA iV/Pf
/ItlHENS •TILES • FLOORS B«T<
i
konar umferðarhindranir eru eitur
í beinum þeirra.
Hrúturinn er að öllu eðlisfari kól-
erískur (uppstökkur, bráðlyndur), og
í samræmi við það er líkamleg
heilsa hans og tímanleg velferð.
Hann er að vísu hraustur líkamlega
og þreytist seint, á líka auðvelt með
að styrkja sig með íþróttum og fim-
leikum. Blóðrás og öndunarfæri eru
yfirleitt í bezta lagi. Elja hans er
slík að oft á hann erfitt með að
festa svefn nema með því að ganga
áður langan spöl eða leggja á sig
einhverja hliðstæða áreynslu.
Veikist hann á hinn bóginn, fær
hann oft heiftarleg hitaköst. Höfuð
hans er öðrum líkamshlutum næm-
ara fyrir sjúkdómum, til dæmis
augu, eyru og tennur. Ogætni hans
og ófyrirleitni gerir að verkum að
honum er slysagjarnt. Hann gefur
sér ekki tíma til að treina lífsnautn-
ina, en hneigist til öfgafullra lifnað-
arhátta. Fjölmörg stórmenni fædd
í hrútsmerki hafa dáið eða örkuml-
azt með voveiflegum hætti. Tímúr-
lenk og Gambetta misstu annað
augað, Baudelaire dó úr heilasýf-
ilis. Zola úr gaseitrun, Albert fyrsti
Belgakóngur fórst í fjallgöngu.
í ástum er hrúturinn ofsafenginn
og óþjáll; viðkvæmni og nærgætni
eru honum fjarlægir eiginleikar.
Astir hans eru meira í ætt við Marz
en Venus. Enginn er ötulli og ákaf-
ari elskhugi en hann. Þar nýtur elja
hans og orka sín fullkomlega.
í augum karlhrúts er ástin dýr-
legt ævintýr, sem hann kastar sér
út í af lífi og sál. Enginn er gjarn-
ari á „ást við fyrstu sýn." Á vett-
vangi Venusar er hann hinn bar-
áttuglaði, óþreytandi orkuhlaðni
sigurvegari — svo lengi sem áhuginn
endist. Heimskir og grófir hrútar
líta að jafnaði á konuna sem áhald
til að svala með fýsnum sinum, en
hinir göfugri leita hinsvegar í fari
konunnar einhvers, sem þeir geta
dáð og tilbeðið. Þeir vilja að hún
líti upp til þeirra og hvetji þá til
nýrra og nýrra dáða. Mistakist þeim
að vekja virðingu og aðdáun ást-
Hvað klæðbúnað snertir er það
einkenni fyrir hrútkarla að þeir
ganga næstum alltaf berhöfðaðir.
Engu að síður hafa þeir mikinn og
þykkan hárvöxt. Þeir láta að jafn-
aði snöggklippa sig og burstaklipp-
ing fellur þeim sérlega vel í geð.
Sem eðlilegt má kalla, hefur
hrútkonan margá sömu eiginleika
og karlmaðurinn sem í þessu merki
er fæddur. Hún vill drottna í ást
og hjónobandi. Hún gerist ekki
undirgefin öðrum en þeim, sem hef-
ur greinilega yfirburði yfir hana
hvað snertir andlega og likamlega
orku. Oft sýnir hún vissa karllega
drætti. Hún á það til að fá ástríðu-
köst, sem hún hneigist til að svala
á stundinni og staðnum. Hún á
erfitt með að halda aftur af þörf-
um sínum og fýsnum. Til ástmanns
síns eða eiginmanns gerir hún þær
kröfur að hann fullnægi öllum ósk-
um hennar strax, en missir ósjald-
an virðingu fyrir honum ef hann
gerir svo. En þegar hrútkona elskar
fyrir alvöru, þá er það ást sem
segir sex. Sá sem hún elskar er
þá hinn mesti, bezti og fallegasti
af öllum.
Bæði karlar og konur, sem fædd
eru í hrútsmerki, eiga oft í mikl-
um erfiðleikum á gelgjuskeiðinu
og er því tiltölulega hætt við að
verða að kynferðislegum óhemjum,
og eru Casanova og Don Juan vel
þekkt dæmi þess. í ástalífi þeirra
var baráttufýsnin, einkennið frá
Marz, allsráðandi.
I klæðaburði fer hrútkonan gjarn-
an sínar eigin götur, sem á fleiri
sviðum. Hún eltist lítt við tízku
stundarinnar, vill sjálf vera fyrir-
mynd annarra. Takist henni að inn-
leiða nýja tízku, fitjar hún undir
eins upp á annarri. Henni fellur vel
að ganga stuttklippt og í ögrandi
stuttum kjólum, svo að henni ætti
að líka lífið þessi árin. Hún hefur
einnig oft tilhneigingu til að mjókka
bilið milli fatatízku kvenna og karla.
Hún sækist eftir fötum í sterkum
litum og notar smink í stórum stíl.
Að sjálfsögðu semur hrútmennum
misvel við fólk af öðrum merkjum,
og er vissara að taka tillit til þess
þegar stofnað er til hjúskapar og
annarra vináttubanda.
Tvö hrútmenni eiga að jafnaði
vel saman, tilhneigingar þeirra eru
svipaðar og þau hvetja hvort ann-
að. Nokkur hætta er þó á að sam-
anlagt sóknareðli þeirra leiði þau
út í öfgar.
Hrúturinn og tarfurinn hafa fátt
sameiginlegt og eru framandi hvor
öðrum, en geta þó orðið hvor öðr-
um að miklu liði.
Hrút og tvíbura kemur vel ásamt.
44 VIKAN 14- tbl-