Vikan - 10.04.1968, Blaðsíða 51
Hvdð vorð oi Dkrumoh?
Frú Nkrumr.h félck skilnað þcgar hjá-
konum ciginmannsins hafði vcrið
sjónvr.rpaö.
Höfðingi þessi, sem á sínum
tíma var í mestum metum meðal
afrískra frelsara, hefur hrotta-
lega fengið á því að kenna að
allt er í heiminum hverfult. —
Hann var í heimsókn hjá Maó í
Kína þegar þegnar hans gerðu
stjórnarbyltingu, brutu niður
likneskjur hans og gerðu honum
flest til svívirðingar. Meðal ann-
ars voru allar ástmeyjar leiðtog-
ans, sem voru ófáar, sýndar þjóð-
inni í sjónvarpi.
Þetta Hkaði að sögn illa þeirri
einu konu, sem Nkrumah hafði
gengið að eiga samkvæmt lands-
lögum. Sú heitir Fathia, þrjátíu
og fimm ára að aldri og fædd í
Fgyptalandi. Hefur hún nú kraf-
izt skifnaðar og jafnframt for-
ræðis þriggja barna þeirra hjóna,
en þeirra á meðal er Gorke Gam-
al, nú níu ára, sem samkvæmt
loforði föðurins átti að verða
..keisari Afríku“. Eftir að frillun-
um var sjónvarpað, flutti Fathia
til Kaíró, en Kwame Nkrumah
fékk hæli í Gíneu hjá forsetan-
um þar, Sekou Touré. Var hann
útnefndur þar „meðforseti“ sam-
kvæmt áður gerðu samkomulagi
þeirra höfðingjanna.
Touré yrði áreiðanlega yfir-
máta glaður ef Nkrumah vildi
gera svo vei að yfirgefa Gíneu.
Hann hefur verið að reyna að
bæta samkomulagið við ná-
grannaríkin, en gengið illa. — f
apríl stendur til að æðstu menn
Vestur-Afríku komi saman til
fundar í Monróvíu, höfuðborg
Líberíu, og þá hittir Touré í
fyrsta sinn nýja forsetann í Gana,
Joseph Ankrah. Áreiðanlega von-
ast Touré til að vera búinn að
losa sig við gestinn þegar þar að
kemur. Hin nýja Ganastjórn hef-
ur heitið sérhverjum þeim, er
færi henni Nkrumah, hálfri ann-
arri milljón króna í ómakslaun,
°g fylgir með að sama sé hvort
hann verði afhentur lifandi eða
úauður.
GIBBS TANNKREM INNIHELDUR STANNOUS FLUORIDE
— efniö er veitir margfalt meiri vörn en i nokkru öðru
venjulegu tannkremi. STANNOUS FLUORIDE sam-
einast raunverulega glerungi tannanna og ver hann
skemmdum. þessi verndun Gibbs tarmkremsins
fjarlaegist ekki vi& munnskolun.
þetta er sannað með rannsóknum. Gibbs Fluoride
hefur verið prófað undir ströngu, vísindalegu
eftirliti i samanburði við önnur vcl þekkt tannkrem.
Arangurinn er undraverður. Gibbs gerir tanngler-
unginn mörgum sinnum — já, mörgum sinnum —
öflugri gagnvart tannskemmandi syrum en nokkurt
annað tannkrem. Og Gibbs, með Stannous Fluoride
er einmitt það, er varðar fjölskyldu yðar.
Látið tannlaekni hafa gát á heilbrigði tanna yðar.
Neytið hollrar faeðu. En umfre.m allt gleymið ekki að
bursta tennurnar reglulega með Gibbs. það er nú
engum vafa undirorpið að Gibbs veitir fjölskyldu
yðar meiri möguleika á fullkominni vernd góðra
tanna en nokkurt annað venjulegt tannkrem. Öllum
geðjast vel að piparmintubragði þess. Látið ekki
fjölskyldu yðar vera án þess deginum lengur.
GIBBS —TANNVERNDIN SKOLAST EKKI BROTT