Vikan


Vikan - 10.04.1968, Síða 51

Vikan - 10.04.1968, Síða 51
Hvdð vorð oi Dkrumoh? Frú Nkrumr.h félck skilnað þcgar hjá- konum ciginmannsins hafði vcrið sjónvr.rpaö. Höfðingi þessi, sem á sínum tíma var í mestum metum meðal afrískra frelsara, hefur hrotta- lega fengið á því að kenna að allt er í heiminum hverfult. — Hann var í heimsókn hjá Maó í Kína þegar þegnar hans gerðu stjórnarbyltingu, brutu niður likneskjur hans og gerðu honum flest til svívirðingar. Meðal ann- ars voru allar ástmeyjar leiðtog- ans, sem voru ófáar, sýndar þjóð- inni í sjónvarpi. Þetta Hkaði að sögn illa þeirri einu konu, sem Nkrumah hafði gengið að eiga samkvæmt lands- lögum. Sú heitir Fathia, þrjátíu og fimm ára að aldri og fædd í Fgyptalandi. Hefur hún nú kraf- izt skifnaðar og jafnframt for- ræðis þriggja barna þeirra hjóna, en þeirra á meðal er Gorke Gam- al, nú níu ára, sem samkvæmt loforði föðurins átti að verða ..keisari Afríku“. Eftir að frillun- um var sjónvarpað, flutti Fathia til Kaíró, en Kwame Nkrumah fékk hæli í Gíneu hjá forsetan- um þar, Sekou Touré. Var hann útnefndur þar „meðforseti“ sam- kvæmt áður gerðu samkomulagi þeirra höfðingjanna. Touré yrði áreiðanlega yfir- máta glaður ef Nkrumah vildi gera svo vei að yfirgefa Gíneu. Hann hefur verið að reyna að bæta samkomulagið við ná- grannaríkin, en gengið illa. — f apríl stendur til að æðstu menn Vestur-Afríku komi saman til fundar í Monróvíu, höfuðborg Líberíu, og þá hittir Touré í fyrsta sinn nýja forsetann í Gana, Joseph Ankrah. Áreiðanlega von- ast Touré til að vera búinn að losa sig við gestinn þegar þar að kemur. Hin nýja Ganastjórn hef- ur heitið sérhverjum þeim, er færi henni Nkrumah, hálfri ann- arri milljón króna í ómakslaun, °g fylgir með að sama sé hvort hann verði afhentur lifandi eða úauður. GIBBS TANNKREM INNIHELDUR STANNOUS FLUORIDE — efniö er veitir margfalt meiri vörn en i nokkru öðru venjulegu tannkremi. STANNOUS FLUORIDE sam- einast raunverulega glerungi tannanna og ver hann skemmdum. þessi verndun Gibbs tarmkremsins fjarlaegist ekki vi& munnskolun. þetta er sannað með rannsóknum. Gibbs Fluoride hefur verið prófað undir ströngu, vísindalegu eftirliti i samanburði við önnur vcl þekkt tannkrem. Arangurinn er undraverður. Gibbs gerir tanngler- unginn mörgum sinnum — já, mörgum sinnum — öflugri gagnvart tannskemmandi syrum en nokkurt annað tannkrem. Og Gibbs, með Stannous Fluoride er einmitt það, er varðar fjölskyldu yðar. Látið tannlaekni hafa gát á heilbrigði tanna yðar. Neytið hollrar faeðu. En umfre.m allt gleymið ekki að bursta tennurnar reglulega með Gibbs. það er nú engum vafa undirorpið að Gibbs veitir fjölskyldu yðar meiri möguleika á fullkominni vernd góðra tanna en nokkurt annað venjulegt tannkrem. Öllum geðjast vel að piparmintubragði þess. Látið ekki fjölskyldu yðar vera án þess deginum lengur. GIBBS —TANNVERNDIN SKOLAST EKKI BROTT

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.