Vikan - 10.04.1968, Blaðsíða 45
SUMARHÚS
MMM*
' >
r;
i
• ''ý-i-?'-.-'
-
ÚTVEGUM ÞESSI SUMARHÚS FRÁ ENGLANDI Á MJÖG GÖÐU VERÐI. ENNFREMUR
GRÖÐURHÚS OG GARÐHÚS AF ÝMSUM STÆRÐUM.
UPPLÝSINGAR:
HEILDVERZLUN
Lárus Ingimarsson
- VITASTiG 8a. SiMI 16205.
Þeir bæta hvor annan upp og geta
því sameiginlega náð mjög góðum
árangri í hverri grein.
Hrúturinn og krabbinn er |afn
ólíkir og eldur og vatn. Hrúturinn
vill fyrir hvern mun geysast áfram;
krabbinn er hins vegar allt eins
gjarn á að fara afturábak. Sá fyrr-
nefndi er harður í horn að taka,
sá síðarnefndi viðkvæmur. Þeir eiga
erfitt með að skilja hvor annan.
Öðru máli gegnir um hrútinn og
Ijónið. Þeim er auðvelt að keppa
að sama marki.
Hrútur og jómfrú átta sig sjaldan
hvort á öðru, en geta þó unnið
saman ef mikið liggur við.
Hrútur og vog eru gagnstæðrar
náttúru og því gjörn á að móðga
og særa hvort annað. Engu að síð-
ur dragast þau gjarnan saman og
geta náð góðum árangri með því
að bæta hvort annað upp.
Þar eð hrútur og sporðdreki eru
báðir fremur herskáar skepnur,
hættir þeim til að lenda í illindum.
Takist þeim hinsvegar að ná sam-
komulagi, geta þeir sameiginlega
áorkað miklu.
Hrúturinn og bogmaðurinn skilja
hvor annan vel, báðir sóknargjarn-
ir.
Verr gengur það með hrút
og steinbukk. Hrúturinn er upp-
fæddur í peningshúsum og grósku-
miklum bithögum,- hann er hold-
mikill og af heitu blóði. Vettvang-
ur steinbukksins er á háfjöllum;
hann er holdgrannur og kaldrifjað-
ur. Enda mega þessar skepnur
varla sjást svo að þær renni sér
ekki saman.
Hrútur og vatnsberi eiga vél sam-
an; báðir gæddir hugsjónaanda og
trúnaðartrausti.
Hrútur og fiskur eiga fátt sam-
eiginlegt og komast naumast að
gagnkvæmum skilningi í nokkrum
meiriháttar vandamálum.
Ungir hrýtlingar eru sjaldnast í
neinum vandræðum með að ákveða
hvaða hlutverk þeir eigi að kjósa
sér í lífinu. Geðslagi þeirra er þann-
ig varið að reglubundin og tilbreyt-
ingalaus störf henta þeim lítt. Þeir
hneigjast fremur til líkamlegrar
vinnu en skrifstofustarfa, einkan-
lega hvers konar málmsmíða. Þeir
eru upplagðir slátrarar, hrossa-
temjarar, dýragarðsverðir, námu-
menn, íþróttamenn, málafærslu-
menn, klæðskerar og vélamenn. —
Innan læknastéttarinnar eru þeir
fyrst og fremst skurðlæknar, tann-
læknar og dýralæknar. Þeim er öll-
um öðrum betur lagið að komast
að góðu samkomulagi við vinnufé-
lagana; þeir vilja miklu frekar
vinna ásamt öðrum en einir sér.
þótt þeim sé hins vegar mjög um-
hugað að skera sig úr og skara fram
úr. Hrúturinn leggur vinnuáætlanir
sínar í aðalatriðum, en hirðir minna
um smáatriði. Undirmönnum sínum
þolir hann ekki minnstu óhlýðni.
Framhald á bls. 48.
i4. tbi. yiKAN 45