Vikan


Vikan - 10.04.1968, Page 16

Vikan - 10.04.1968, Page 16
Allan daginn hafði húsið leikið á reiði- skjálfi af áköfu rifrildi. Lena, ástæðan til rifrildisins, var sú eina, sem ekki tók þátt í því. Hún lá rauðflekkótt í bólinu sínu uppi á lofti og vorkenndi sér ósköp. — Ég skil ekki, hvers vegna við getum ekki frestað þessari anzkotans ferð. Ég hef raunar aldrei verið spenntur fyrir að fara, þrumaði pabbi hennar á leið í morgunkaffið. — Oh, Georg, stundum gæti ég myrt þig, heyrði Lena móður sína segja. — Það er búið að kaupa farmiðana, og Lena vill alls ekki að við sitjum þetta af okkur bara til þess að .... Svo var eldhúshurðinni skellt, og Lena heyrði ekki meira. En síðar um daginn héldu háværar umræðurnar áfram. — Við frestum ferðinni um viku, sagði pabbi hennar. — Lena getur samt ekki farið, vegna smithættunnar. — Erum við þá ekki útbíuð í smiti líka? — Þú veizt vel, að við öll hin erum búin að fá mislingana. Þar að auki verðum við að taka tillit til Rogers. Roger var yngri bróðir Lenu, og nú ætl- uðu þau í fyrsta sinn að fara öll saman í sumarleyfi til beztu vinkonu mömmu frá skólaárunum og búa í húsi hennar á Mall- orka. Hún var guðmóðir Rogers og móðir Allans. Allan var tuttugu og sjö ára, hár, dökkur yfirlitum og óleyfilega glæsilegur. Um það bil fyrir hálfu ári hafði honum lostið niður eins og sprengingu í tilveru Lenu. Um leið og I.ena bar hann augum var hún yfir sig ástfangin; hún lifði fyrir það eitt að hann hringdi, byði henni út að borða eða í öku- ferð í litla, græna, bílnum. Hún vissi, að foreldrar hennar voru ekki ýkia hrifnir af sambandi þeirra. Mamma hennar taldi víst, að þetta myndi enda með ósköpum, og pabbi hennar sagði, að hann hefði alltof mikið fé handa á milli til þess að það yrði nokkurn tíma maður úr honum. Mallorkaferðin hafði verið hugmynd All- ans. Hann ætlaði að fara þangað í marz, og hvað var því til fyrirstöðu að Lena kæmi með? Og reyndar allur flokkurinn? í fyrstu voru 100 ljón á veginum, en smám saman varð það sannfæring foreldra Lenu, að hún hefði einmitt gott af því að um- gangast Allan stöðugt í þrjár vikur, til þess að komast yfir þetta ástarskot. Svo þau sögðu já takk. Lena hafði hlakkað til fararinnar allan veturinn. Og nú fékk hún mislingana! En sú svívirða! Hún hefði heldur viljað lenda í dramatísku slysi og deyja! Daginn út lá hún og vonaði, að Allan hringdi, að hann kæmi blaðskellandi og krefðist þess að fá að koma til hennar þrátt fyrir alla pestarsýkla. Að hann segðist held- ur ekki fara fet, úr því hún kæmist ekki, heldur myndi hann verða kyrr og hugsa um hana. En Allan hvorki kom né hringdi. Hins vegar kom sendill með blómabrúsk. — Lena, fjandans óheppni hjá þér. Ég vona, að þú sért ekki alltof niSurpípt og að rósirnar þær arna hressi þig við. Kær kveðja, Allan. Hún las kortið tvisvar áður en hún sleppti því á gólfið. — Ekki gráta, elskan, sagði mamma henn- ar. — Ég er ekki að gráta, kjökraði Lena. — Rósirnar eru reglulega fallegar. En hún vildi engar rósir. Hún vildi Allan. Hún velti sér á grúfu og fól rauðflekkótt andlitið í koddanum. Þannig lá hún enn 16 VTKAN 14 tbl- HEILLASTIND SMÁSAGA EFTIR ROSAMUNDE PILCHER þegar pabbi hennar kom heim. — Jæja, sagði hann og settist á rúmbrík- ina hjá henni. — Hvernig líður þér? — Skítlega. — Nú er allt komið í lag. — í lag? Hvað? — Já, við getum ekki skilið þig eftir eina heima með mislingana og allt það. Svo þú átt að vera hjá Nelly. Hakan sé á Lenu, meðan hún melti þessi tíðindi. Hjá Nelly? — Já, hún iðar í skinninu að koma hönd- um yfir þig aftur. Nelly var fyrrverandi fóstra Lenu. Þegar Lena var átta ára, giftist Nelly og flutti niður á Skán. Það var nóg að nefna nafn hennar, til þess að Lena fyndi til öryggis- kenndar. Allt í einu fann hún, að Nelly var einmitt það, sem hún þurfti mest með nú. — Þegar til kastanna kemur, hélt pabbi

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.