Vikan - 10.04.1968, Blaðsíða 24
m
: >
Nú á að taka á
máti
negrunum
Lögreglan í flestum fylkjum og borgum Banda-
ríkjanna hefur búizt vandlega um til að taka á
móti svertingjunum, þegar þeir gera uppþot í
hitum komandi sumars. Tilraunastöðvar lögregl-
unnar hafa unnið sleitulaust að því að bæta
búnað og aðferðir lögreglunnar til þess að sag-
an frá síðasta sumri endurtaki sig ekki, þótt
svertingjarnir leiti sér útrásar á sama hátt og
þá.
Lögreglustjórinn í Míami, Walter Headley,
hefur lýst yfir stríði við uppþotsaðilana: — Menn
mínir verða vopnaðir skotvopnum og hafa með
sér hunda — og skipum um að skjóta til bana,
ef til uppþota kemur.
Newark, Philadelphia, Cleveland og aðrir
staðir, sem illa urðu úti í óeirðunum sfðastliðið
sumar, hafa fengið sér sérbyggða, skothelda
bíla, sem komast leiðar sinnar þrátt fyrir tölu-
verðar torfærur.
Annað vopn, sem tilraunir hafa verið gerðar
með, hefur hlotið nafnið „Áætlun bananahýði".
Það er seigfljótandi kvoða, sem sprauta skal
yfir göturnar. Þegar kvoða þessi er svo spraut-
uð með vatni á eftir, storknar hún og verður
glerhál eins og nýbónað parketgólf. Því miður
hefur ekki ennþá lánazt að finna efni, sem hægt
er að ná þessari kvoðu með af aftur.
Beztu vopn lögreglunnar gegn uppþotum eru
þó kylfur og táragas. Þess vegna hafa verið
framleiddar nýjar táragassprengjur, sem úða úr
sér táragasi án þess að springa, og þeim er
bæði hægt að skjóta og kasta.
24 VIICAN I4-tb]