Vikan


Vikan - 10.04.1968, Page 29

Vikan - 10.04.1968, Page 29
að eitt hús, fyrir bróður minn Einar. — Arkitektinn þarf að vera bissnissmaður, og það passar ekki fyrir skapandi listamenn að hugsa um peninga, segir Kristín. — Ertu ef til vill að hugsa um að verða fígúratífur? — Ég efast um að ég fari út á þá braut, segir Jóhann. •— Ég myndi gera það ef ég héldi mig geta bætt einhverju við það sem komið er. Það er að vísu freist- andi að leggja út í þá glímu, mik- ill challenge, eins og þeir segja fyrir vestan. En það er raunar líka mikill challenge að halda sér við það nonfígúralífa, eða var það sérstaklega síðustu sjö til tíu árin, þegar það fígúratífa var í sem mestum uppgangi. En ég held mér við abstrakta list vegna þess, að ég held mig geta bætt einhverju við það, sem á því sviði hefur verið gert á þessari öld. Ef ég væri ekki þeirrar trúar, væri ég ekki að standa í þessu. —- Ertu að stofna nýjan skóla, nýja stefnu? — Nei, ég held að mín list sé of sérstæð til að aðrir listamenn geti notfært sér hana, hvorki heiðarlega né óheiðarlega. Ég held ég sé svo lánsamur að vera öruggur fyrir campfollowers. Það eru líka menn eins og Modigliani og Giacometti, svo ég nefni ein- hverja. Ég met Giacometti hvað mest af þeim listamönnum, sem ég þekki til. Hann sér svo ná- kvæmlega að hann getur ekki út- skýrt það sem hann sér, finnst hann ekki geta séð neitt nema í vissri fjarlægð. Myndir hans eru allar þannig. Þeirra verður bezt notið með því að horfa á þær úr nokkurri fjarlægð. Hefurðu orðið íyrir áhrif- um frá honum? Ég tel mig ekki undir áhrif- um frá seinum sérstökum, nema þá óbeinum. En sú var tíðin að ég var hræddur við að kópíera. Það kom fyrir að mér fannst ég sjá eitthvað í myndum mínum sem ég hefði séð einhvers staðar áður, og þurrkað’ það jafn- skjótt út. Nú er ég laus við þessa ásókn, og ef ég þurrka eitthvað út nú, þá er það vegna þess að myndin heimtar það. í einu herberginu er raðað upp mörgum veggmyndanna, sem Jó- hann hefur undanfarið unnið að. Þar ber mest á gráu alúmíni með ryðbrúnu járni til mótvægis, tryllt, ólgandi, andstæðufull form eins og vellandi hraun eða brim við sléttan sand. Jóhann segir: — Klein kallaði myndir sínar hætlulega hluti, og álti þá við að fólk mótaðist af því sem það sæi. Mér dettur þetta oft í hug í sam- bandi við mínar myndir. Hér hef ég til dæmis sett rauða skellu. Kannski sér fólk eitthvað hrylli1 legt við þetta, setur það í sam- band við blóðlifrar eða þvíum- líkt. En vonandi sér það síðar að Framhald á bls. 40. 14. tbi. vikAN 2!)

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.