Vikan


Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 5

Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 5
kvæmt frásögu Heródóts var hann svo auðugur að gulli, að einsdæmi þótti, og vissi ekki aura sinna tal. Aðsetursborg hans og höfuðborg ríkisins var Sardes, og barst þang- að gullstraumurinn í hendur hon- um úr ýmsum áttum. Þá kom hon- um þetta til hugar, að móta mynt úr gulli. Meðan gengi Krösusar var sem mest, ákvað hann að fara með her á hendur Kýrusi Persakonungi, til þess að ná í gull hans. En áður en hann fór af stað, brá hann sér til véfréttarinnar í Delfi, til þess að grennslast eftir því hvort hann yrði sigursæll. Véfréttin svaraði þessum tvíræðu orðum: „Ef þú ræðst á Persa, mun mikið riki líða undir lok." En svo mjög fýsti Krösus í gullið, að hann taldi sér trú um að það ríki, sem ósigur biði, yrði Per- sía. Hann fór eftir því, og vita það allir hvernig herferð þeirri reiddi af. Eftir að Alexander mikli vann sigur á Persum (og eftir dauða hans) flóði gullforði Astulanda (milljónir kilógramma af ómótuðu gulli) um Makedóníu, Grikkland og Egyptaland og nokkrum öldum síð- ar barst hann [ hendur rómverska heimsveldisins. En Rómverjum var þess ekki auðið að varðveita þenn- an auð, og brátt dreifðist gullið f ýmsar áttir, týndist og hvarf. „Vér drekkum," segir Plfníus hinn éldri, „úr bikurum úr skíra gulli, jafnt yzt sem innst, og svo er farið til Indlands til þess að sækja þangað ennþá dýrmætari og fegurri gripi af sama tagi, og í þetta óhóf og yfirlæti eyðist gull okkar...." — Brátt kom að þv( að gullforðinn þvarr, aðdrættir frá skattlöndunum fóru dvínandi, unz ekkert náðist framar. „Gull er þjóð það sem blóð er mannslíkamanum," sagði frægur hagfræðingur. „Meðan það flýtur um æðarnar, er öllu óhætt. Hægi það á sér, dofnar fjörið. Hætti það alveg, er dauðinn vís." Á næstu öldum var lítið um gull hvarvetna í Evrópu, og æ minna og minna, unz að því kom, að farið var að gera tilraunir til að gera gull, og fengnir til þess gullgerðarmenn, alkymistar, sem síðan sátu sveittir við iðju sína og kom fyrir lítið jafn- an. Hins vegar varð þetta upphaf af efnafræðinni, og má þv( segja að fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Á þessum öldum gullleysis var þó einn sá staður þar sem nóg var um gull, en það var í Bysans. En Bysans féll einnig fyrir hinu sama sem Róm: oflæti og skartgirni, og hið síðasta af þv( sem eftir var af gulli Bysans, hvarf í greipar Tyrkja, þegar þeir rudd- ust inn í löndin. Ný öld rann upp með landa- fundi Kólumbusar og þeirra sem á eftir fóru. Cortez vann rtki Monte- zuma og gull flaut ( stríðum straumi að vestan um öll lönd Evrópu. En ekki varð þetta til fagnaðar ein- göngu, miklu heldur til ófarnaðar. Svo mikið barst að af gulli, að það lækkaði í verði, og það svo um munaði, svo sem gerzt hafði í Róm forðum, og gekk svo smátt og smátt til þurrðar. í febrúar 1848 hófst svo nýr þáttur ( hinni ævintýralegu sögu af gullinu. Francis Marchall, myllu- eigandi ( Coloma ( Kalífornfu, þar sem American River rennur hjá, tók upp sand ( lófa sinn á eyri við ána, — og sá þá hvar gullkorn glitruðu innan um sandkornin. Hann sýndi þetta jarðeigandanum, svissnesk- um manni sem hét Suter, og var ríkur bómullarkaupmaður. Suter sá þegar ( stað hver uppgötvun hér hafði verið gerð, en hann þagði yfir þv( fyrstu vikuna meðan hann var að vinna úr sandinum fyrstu 30 kílóin af gulli. Þarna var raun- ar fundin ein hin auðugasta gull- náma. Brátt barst fréttin út og gull- leitarmenn fóru að streyma að. Suter, jarðeigandi alls þess svæðis sem náman náði yfir, skrif- aði landstjóra Kalíforníu bréf, og bað hann gæta hagsmuna sinna og fól manni, að nafni Charles Benn- et, að bera bréfið til Monterey, bú- staðar landstjórans. Bennet, sem var þegar byrjaður að þvo gull- sand, hafði með sér Ktinn poka með gulli f. Hann lagði af stað ríðandi og tók sér náttstað á bónda- bæ. Fólkinu þar sýndi hann gull sitt og sagði því hvar það hefði fundizt. Þetta heyrði maður nokkur að nafni Sam Brennan. Eftir tvær mínútur var hann stiginn á hestbak og þotinn í logandi spretti til San Francisco. Síðan barst sú frétt sem hann flutti, eins og eldur ( sinu um alla borgina og hvarvetna kvað við hrópið: „Gull, gull, gull, gull fund- ið við American River!" Eins og losnar um snjóskriðu þegar hrópað er ( fjalli, þustu nú skarar gull- leitarmanna eins og óðir þangað sem gullsins var von. „Gullæðið mikla" var hafið. The Gazette of San Francisco birti stórletraða for- stðugrein 16. maf 1848, en stðan hætti blaðið að koma út um tíma, Framhald á bls. 41 SEM ÓTAUN ERU, SKIPTAST NOKKURN VEGINN JAFNT MILLI HEIMS- ÁLFANNA FIMM. ERU ÞAÐ ALLT LITLAR NÁMUR. EN AF GULLI HEFUR ALDREI VERIÐ MEIRA TIL EN NÚ, OG ER ÞÁ ÁTT VIÐ NUMIÐ GULL OG UNNIÐ. HEFUR ÞAÐ ALLT AÐ ÞVÍ ÞREFALDAZT Á ÁRUNUM 1956-'65. 18. tbi. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.