Vikan


Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 48

Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 48
r Radfostofa Vilbergs og Þorsteins Fermiogargjafir frá Plötuspilari meö hátalara fyrir allar stærðir af plöt- um á kr. 1990,oo Ferðaviðtæki á kr. 1830,oo Rafhlöðu segulbands tæki með lokuðum kasettum á kr. 4890,oo Laugaveg 72, símar 10259-15388 komin. Það væri mjög óþægi- legt fyrir yður. — Það varðar mig engu. — Yður verður ekki hleypt inn. — Ég get að minnsta kosti reynt. Verið nú svo vænn að aka mér þangað. Þér getið hvort sem er ekki aftrað mér, því ef þér viljið ekki aka mér þangað, geng ég þangað á tveimur jafnfljótum. Hann hristi höfuðið uppgefinn, setti bílinn í gang og sneri við. — Eins og þér viljið, sagði hann. — Ég get ekki betur gert en vara yður við.... Heimreiðinni að The Towers var lokað með þungum jám- grindum og upp úr þeim stóðu gaddar, sem minntu á spjóts- odda. Utan við múrinn var hlið- varðarhús og gamli hliðvörður- inn kom þegar út og opnaði, þegar hann sá bíl Peters, og þeg- ar hann uppgötvaði að Peter ætlaði ekki að aka innfyrir, var það orðið of seint. Eftir þá reynslu sem Barbara hafði hlot- ið daginn áður flýtti hún sér að stökkva út úr bílnum og smeygja sér innfyrir hliðið, áður en vörð- urinn áttaði sig á hvað var að gerast og eftir smástund gafst hann upp við að telja henni hug- hvarf. — Frá hliðinu upp að höllinni var svo langur vegur að hún varð óstyrk og óviss og tók að óska þess að hún hefði ekki lát- ið undan þessari skyndilegu ákvörðun sinni. Þess utan voru svört ský tekin að hrannast á himininn, loftið var þungt og rakt og trjákrónurnar yfir höfði hennar hristust og skókust eins og tröllahönd léki sér að þeim. Vegurinn lá í beygju og allt í einu lá höllin frammi fyrir henni, sveipuð í grárri móðu, sem gerði útlínurnar óljósar ■— það var eins og þokumóðan ætti í senn upptök sín i höllinni og hyrfi í hana aftur, eins og höll- in lifði og andaði. Þarna stóð hún eins og ljótt skrímsh, beið lokkandi, draugaleg eins og í martröð. Hún stóð kyrr um hríð og andaði hægt, þar til hún hafði náð fullu valdi á sér og hún gat aftur horft á höllina af skyn- semi og yfirvegun. Þetta var gamalt hús og ekkert annað. Ákveðin í bragði hélt hún áfram að aðaldyrunum með þungum granítstöplunum og sk j aldarmerk j unum. Þykkar hurðir voru úr eik, járnslegnar og svartar af elli og hurðarhúnarnir voru látúnsaf- steypur af glottandi úlfahausum. Við hliðina á dyrunum var klukkustrengur; hún hringdi og beið, óttaðist að sjá súrt andlit frú Griffins. Sem betur fór var það Daisy sem opnaði. — Góðan daginn, Daisy, ég er komin að afla mér frétta um það hvernig Lady Macfarlane líður. Stúlkan horfði hikandi á hana, þegar hún steig óttalaust yfir þröskuldinn og inn í víðáttumik- inn forsalinn. Veggirnir og loft- ið voru úr dökkri, gamalli eik og þar var svo mikið af vopnum og minjagripum, gömlum brynj- um, grímum og skjöldum, að sal- urinn var líkari deild í safni en anddyri á einkaheimili. — Herra Fraser er ekki heima, ungfrú, sagði Daisy. — Það er bezt ég fari og sæki fröken Dob- son. í sama bili kom Dobie niður stigann ásamt rosknum manni, sem bar svarta læknatösku. Dobie kom til móts við hana og læknirinn nam staðar. — Mér skilst að þér hafið áhyggjur af Lady Macfarlane, ungfrú Marsten, sagði hún kulda- lega. — En þér hefðuð ekki átt að koma hingað. — Hvernig líður henni? — Ég held að hún eigi ekki langt eftir, sagði læknirinn. — Hún er ákaflega veikburða. — Mig langaði svo að fá að heimsækja hana. — Það er algjörlega útilokað! hrópaði Dobie hneyksluð upp yf- ir sig. — Er þetia unga stúlkan sem Lady Macfarlane heldur að sé Lísa? spurði læknirinn. —• Já, það var hún sem.... Hann greip fram í fyrir henni. — Þá held ég að við ættum að hleypa henni inn til hennar, systir. Það gæti kannske róað Lady Macfarlane. — Ég held ekki að herra Fraser myndi leyfa það, læknir. -— Það sem mestu máli skiptir er að sjúklingurinn fái ró. Þér getið sagt að það hafi verið sam- kvæmt minni skipun. Hann fór og Dobie fylgdi henni um stigann. Hún opnaði dyrnar inn í stórt, skuggsýnt herbergi, en Barbara 48 VIKAN 16-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.