Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 32
Ronson
HÁRÞURRKfl HEI|MILANNA
TILVALiN FERMINGARGJÖF
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Vandamálum þínum er þannig háttað að utanað-
komandi geta ekki gerzt ráðgjafar þínir. Leggðu
höfuðið í bleyti, enn sem komið er hefurðu ekki
fundið nógu góða lausn. Þú gerir vafasöm viðskipti.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí);
Gættu ítrustu varfærni í samskiptum við félaga
þína. Leggðu þig fram við að vera kurteis og var-
astu að tala of mikið. Kvöldin nýtast þér illa vegna
ófyrirsjáanlegra truflana.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þekking vinnst ekki án fyrirhafnar. Ef þú vilt ná
viðunandi árangri verðurðu að viðurkenna fyrir
sjálfum þér að þekking þín nær mjög skammt. Þú g
átt von á heimsókn, en af henni verður ekki strax.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú átt venju fremur margar frístundir. Félagar þín-
ir kenna þér nýtt sport, sem þú verður mjög upp-
tekinn af. Gættu þín á tveim mönnum sem vilja
eiga við þig viðskipti. Happatala er sjö.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Vikan f'erður með öðru sniði en þú bjóst við. Þótt
þú ætlir þér að vera míkið heima æxlast það þó
þannig að þú ert þar mjög lítið. Þú ferð í leikhús
um helgina.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Vikan verður erilsöm og þú hefur engan tíma til að
lúta þér leiðast. Þú hefur góða hæfileika til að sam-
lagast aðstæðum og kemur það sér vel fyrir þig, því
iniklar breytingar eru framundan.
Vogarmerkið (24. september — 23. október)
Þú hefur lengi beðið eftir úrsiitum ákveðins máls
og nú loks færðu svarið. Ekki fer allt eins og þú
óskar en þó máttu vel við una. Ætlastu ekki tii
of mikils aí þeim sem eru í kringum þig.
Drekamerkið (24. október —'22. nóvember):
Þú ert forsprakki í hóp samstilltra félaga. Þú nýtur
lífsins í rikum mæli, en þó er eitthvað heimafyrir
sem veldur þér áhyggjum. Þú verður ekki mikið
heima á kvöldin.
Bogamannsmerkið (23.
21. desember):
Undanfarið hefurðu lagt mikið á þig og ert þreyttur
og slæptur. Þrátt fyrir það skaltu ekki ergja þína
nánustu eða ætlast til meira af þeim en venjulega.
Heillalitur er blár.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Samband þitt og ákveðinnar persónu er ekki eins
vonlaust og þú heldur, en þú verður að beita ýms-
um brögðum. Láttu til skarar skríða á þriðjudags-
kvöldið. Vinur þinn verður fyrir miklu láni.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú ert mjög iðinn við verk þín og nærð góðum ár-
angri. Vertu ekki of fastheldinn á fjármuni þína.
Peningarnir veita mesta ánægju sé þeim eytt. Uti-
skemmtanir eiga vel við.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Eyddu ekki tímanum í að hugsa um hvað aðrir
ímynda sér um þig. Þeim tíma er illa varið. Taktu
á þig rögg og finndu þér nýja leið til að lífga upp
á tilveruna. Breyttu eitthvað út af vananum.
32 VIKAN 16-tbl'