Vikan


Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 43

Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 43
SfsiHsirliisar ii sualahindrðiO I fjölbreyttu og fctllegu úrvali. Sendum um allt land. Vei girt lóð eykur verðmæti hússins. Blómaker óvallt fyrirliggjandi. Sendum myndasýnishorn ef óskað er. MOSAIK HF. Þverholti 15. — Sími 19860. Póstbox 1339. réttinda. Námurnar komust í eigu enskra og amerískra hlutafélaga, og voru starfræktar af þe’im. Gróð- inn varð óskaplegur. Þá er komið að hinum síðasta þætti í sögu hinna miklu gullfunda, og nú var það Suður-Afríka, sem var vettvangurinn, og sagt er að sá maður héti Joseph B. Robinson, sem fyrstur fann námur þær í Transvaal, sem nú sem stendur gefa af sér 70% af öllu því gulli, sem unnið er úr jörð. Robinson fæddist í Cardock, héraði í grennd við Góðrarvonarhöfða, og var af ensk- um ættum. Það var að kvöldi 18. júlí 1866 (er hann sjálfur var 46 ára) að honum barst símskeyti frá einum af umboðsmönnum sínum í Pretoria, höfuðborginni í Trans- vaal, svohljóðandi: ,,Hef fundið gull í 30 mílna fjarlægð frá Pre- toria. Eg held að vert væri að þú kæmir þegar í stað að skoða þetta." Robinson lagði af stað í bítið morguninn eftir, og var ekki fyrr kominn á áfangastaðinn en honum var sagt frá geysimiklum gull- fundi. Tveir bændur hollenzkrar ættar, bræður, sem hétu að ættar- nafni Struben, sögðust hafa séð allmikið af þessum málmi í grjóti, sem þeir fundu í landareign sinni. En þegar til átti að taka fannst ekkert af þessu, sagan reyndist tál. Robinson lét samt ekki hugfallast, en fór þegar í stað að þvo sand, og eftir að hafa erfiðað við þetta í viku, fann hann eitt gullkorn. Þá hélt hann leitinni áfram af enn meira kappi en áður, og kostaði til þess rúmlega 20.000 sterlings- pundum á örskömmum tíma, og var hann álitinn ekki með öllum mialla. En Rotschild bankastjóri í London sendi verkfræðing til að at- huga hvernig sakir stæðu. Eftir einn mánuð sendi hann langa skýrslu um málið til bankastjórans og komst svo að orði um niður- stöðuna af rannsókn sinni: ,,Ég full- yrði að hvergi í Suður-Afríku er nokkra ögn af gulli að finna." En þrátt fyrir þetta hélt Robinson áfram eins og ekkert hefði í skor- izt, að leita að auðæfum þeim, gullæðinni, sem hann þóttist hafa vissu fyrir að væri til. Svo fann hann þau feikna auðæfi, sem ekki höfðu önnur slík áður sézt, gull Suður-Afríku, auðugustu námur í heimi. Hvert fer þá allt þetta gull, sem unnið er úr jörð? Mikill hluti þess er hafður til sölu, og annað álíka mikið fer til að tryggja gjaldmiðil í hverju ríki fyrir sig. Reyndar fer allt gullið, nema obbinn af því sem fer til kommúnistiskra landa, á gull- markaðinn í London, The Gold Market, en honum stjórna fimm menn, sem eru fulltrúar fyrir fimm hin helztu verzlunarfélög, sem verzla opinberlega með þennan dýrmæta málm: Félag Rotschilds, Sharps Pixley, Johnson Matthey, Montagu og Mocattu & Goldsmid. Hið síðastnefnda er hið elza af þeim sem verzla með gull í Lond- on. Það var stofnað árið 1684, tíu árum áður en Englandsbanki var stofnsettur. ☆ ! NYTIFRA BORÐHELLA MEÐ 4 HELLUM, þar af 1 með stiglausri stillingu. r * - •• |al iilsr f • * :t\ íf • • )§§* m ím B • f H 11 56 LÍTRA OFN MEÐ LJÓSI, yfir og undirihto stýrt með hita- stilli. Sérstakt g'óðarsteikar- element (grill). Klukka með Timer. V y «•tw- VIKAN 43

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.