Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 39
hefðu auSvitað markað sín' spor.
En hún leit út fyrir að vera ham-
ingiusöm, og honum létti mjög, þeg-
ar hún þóttist ekki þekkja hann.
Þetta var heldur ekkert notalegt fyr-
ir hana. Það gat heldur ekki verið
auðvelt fyrir hana að líkja þeim
saman, hinum unga og óreynda
Fredrik Wilhelmsen og hinum am-
eríska forstjóra, Frederick Wilkens,
yfirverkfræðingi fró Seattle.
Hann furðaði sig ó þvf síðar,
hve rólega hann tók þessu. Um
kvöldið dansaði hann við margar
frúrnar, og honum fannst það að-
eins eðlilegt að hann sveif út ó
dansgólfið með Marit í örmum sér.
Hún Ijómaði í framan og talaði
svo mikið að hann þurfti ekki að
segja eitt einasta orð.
— En hve það er gaman að
hitta Ameríkana sem talar svo vel
norsku.
Hann brosti. — Ég er norskur, en
ég hefi búið í Bandaríkjunum í
mörg ár, — síðan stríðinu lauk . . .
— Það var skynsamiegt af yður.
Þetta land er ekki fyrir fólk sem
vill komast áfram. Ég er hrifin af
Ameríku, — hvað hefði orðið um
okkur ef Bandaríkin hefðu ekki rétt
okkur hjálp?
An þess að bíða eftir svari hélt
hún áfram. — Þér hljótið að hafa
verið mjög ungur, þegar þér fóruð
til Bandaríkjanna?
Hann svaraði ekki strax. Hvað
átti hann að segja? Átti hann að
koma upp um sig? Ef til vill var
það kampavíninu að kenna að hann
sagði: — Ég varð að flýja, Þjóð-
verjarnir voru á hælum mér. Ja,
þér vitið, ég varð fyrir ástarsorg,
það kemur oft fyrir tvítuga menn.
Ég var trúlofaður ungri stúlku, en . .
ja, ég fór til Amerlku.
Hún hló. — Ja, eins og þér vit-
ið hugsar maður svo margt skrítið,
þegar maður er ungur. Hann and-
aði léttar. Hún hafði þá ekki þekkt
hann aftur. Hún hélt áfram að
blaðra um hina dásamlegu og stóru
Amerfku, um Ameríkana, sem voru
svo hjálpsamir, og um litla landið,
sem hún neyddist til að búa I. Og
hún var mjög ánægð yfir því að
kynnast Norðmanni sem hafði kom-
izt svona vel áfram í Ameríku.
Honum leið ekki vel. Hann kvaddi
gestgjafa sína og fór, nokkru eftir
dansinn við Marit. Hann kvaddi
líka Marit, og er hann tók í hönd
hennar Ijómaði hún af ánægju og
það var sýnilegt að kampavínið
hafði haft áhrif á hana. Hann gat
ekki stillt sig, hann féll fyrir freist-
ingunni og sagði: — Ég var trúlof-
aður stúlku, sem hét líka Marit. En
hún giftist öðrum ....
Hann hneigði sig og gekk svo
beint út, án þess að líta við. Hafði
hann gert rétt? Hefði hann átt að
líta við, til að sjá hvort hún kann-
aðist ekki við hann?
Nei, hann vildi ekki komast að
því. Hann fór beint upp á herberg-
ið sitt og pantaði símasamband við
Bergensfjord, þótt það væri um
miðja nótt. Eftir augnablik var Jane
komin ( símann:
— Ég ætlaði bara að segja þér
nokkuð, — nokkuð sem er mjög
mikilvægt, Jane, sagði hann. Vesa-
lingurinn litli, ég hefði ekki átt að
gera hana svona hrædda, hugsaði
hann, en hann gat ekki beðið.
— Hvað er það, elskan?
— Ég elska þig, Jane.
Hún andaði léttar og hló.
— Það var gott að þú hringdir,
það var svo notalegt að heyra til
þín. En ég varð dauðskelkuð, því
máttu trúa.
— Heyrðu Jane. Vertu nú væn
og segðu skipstjóranum að setja
dallinn á fulla ferð, segðu honum
að þú verðir að hraða þér til Osló.
Ég ætla að fljúga þangað.
Svo komu drengirnir I símann,
Jane hafði ekki viljað skilja þá
eftir eina I klefanum. Þeir töluðu,
hvor upp í annan, sögðu að þeir
væru ákveðnir I því að verða sjó-
menn, þeir ætluðu báðir að verða
skipstjórar á Bergensfjord ....
— Þá verðið þið að fara til skip-
stjórans og spyrja hvnær það henti
honum bezt að láta af störfum,
sagði hann og brosti með sjálfum
sér. Og hann brosti líka, þegar
hann fékk reikningin fyrir símtalið.
Þetta var þó ekki hlátursefni,
þvert á móti. ☆
handy
UR&mR MEÐ AÐEIN2 EINNIYFÍRPURRKUN
Límkennd óhreinindi? Fitukennd óhreinindi? Leðjukennd óhreinindi? Handy
Andy hreinsar öil óhreinindi á brott með aðeins einni yfirþurrkun. Nútíma
húsmæður, hvar sem er, eru sammála um það að hann sé bezti alhliða
hreinsunarlögur, sem völ er á. Handy Andy hefir öflugan styrkleika til að
hreinsa allskonar heimilishluti betur, hraðar, auðveldar. Notið hann annð-
hvort eins og hann kemur úr flöskunni, eða þynntan með vatni ef hreinsa
skal stærri svæði. Þér þurfið ekki að nota nema lítið í hvert sinn — Handy
Andy er svo kröftugur, svo drjúgur! Kaupið hann strax í dag!
... hreinsar
MRLAÐR VEGGI, VRSKR, BRKRROFNR,
GÓLF, betur, bralar, auðveldar!
i6. tw. viKAN 39