Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 7
r
gripið um sig hér á landi.
En ég vona að það geri það
aldrei.
Ég kveð þig að sinni.
Ein gamaldags.
Satt er það, Bonnie og
Clyde voru engir fyrir-
myndarunglingar. Gjör-
vallri bandarísku þjóðinni
stóð víst ógn af þeim á
sínum tíma. En það er
eins og æska nútímans,
sem hefur allt til alls, sæk-
ist eftir öllu því, sem er
nógu afbrigðilegt, æðis-
gengið og krassandi. Tízk-
an teygir anga sína út á
yztu annes og eyjar, svo
að það er lítil von til þess,
að Bonnie-æðið berist ekki
hingað til lands. Við skul-
um vona, að íslenzkir ung-
lingar api eftir Bonnie og
Clyde -— hið ytra en ekki
hið innra.
ALLTAF FÆKKA AUMRA
SKJÓL . . .
Ágæti Póstur!
Alveg er það makalaust
hvað sumt fólk getur rif-
izt og pexað og þráttað og
þrætt — jafnvel þótt það
hafi rangt fyrir sér. Mig
langar til að biðja þig að
hjálpa mér að sanna mitt
mál. Ég lenti í harkalegri
rimmu við kunningja mína
um það, hvort eftirfarandi
vísa sé eftir Matthías Joc-
humsson eða Þorstein Er-
lingsson. Ég held fram
hinu síðarnefnda og þarf
raunar ekki að spyrja, því
að ég er alveg sannfærður
um að vísan er eftir Þor-
stein Erlingsson. En ég á
ekki ritsafnið hans og hef
því ekki getað sannað mitt
mál. Vísan er svona:
Alltaf fækka aumra skjól,
alltaf lengjast nætur;
kvöl er hvað þú, kæra sól,
kemur seint á fætur.
1
Góði Póstur! Afgreiddu
þetta bréf með hraði. Ég
hlakka svo til að sjá fésin
á helvítonum, þegar þeir
sjá það svart á hvítu, að ég
hef haft rétt fyrir mér.
Með fyrirfram þakklæti.
Vísnakarl.
Jú, þú hefur sem betur
fcr rétt íyrir þér. Þetta er
fyrsta erindið í Skamm-
degisvísum eftir Þorstein
Erlingsson. Hvað var lagt
mikið undir?
STJÖRNUHRAP.
Kæri Póstur.
Þar sem ég hef oft séð að
þú leysir vel úr vandræð-
um fólks, daft mér í hug
að ef til vill myndir þú
reynast mér hjálplegur við
að ráða draum sem mig
dreymdi fyrir nær því
þremur mánuðum.
Ég hef nefnilega alltaf
heyrt að maður gæti ósk-
að sé ef maður sæi stjörnu-
hrap. Kannski er þetta
bara gömul trú, en hvað
sem því líður, þá hef ég
í þrjú og hálft ár, alltaf
óskað þess sama þegar ég
hef séð stjörnuhrap.
Og nú ætla ég að segja
þér drauminn, í þeirri von
að þú verðir mér hjálpleg-
ur.
„Það var haustkvöld, ég
stóð á tröppunum heima
hjá mér, uppi í sveit og
horfði á stjörnubjartan
himininn, þá sá ég að í
suð-vestri hrapaði mjög
stór og skær stjarna og
fylgdu margar litlar á eft-
ir. Og ég óskaði mér þess
sem ég óska alltaf. Svo
hurfu stjörnurnar niður
fyrir sjóndeildarhringinn,
en komu í stórum boga
upp á himininn aftur og
stöðvuðust á sama stað og
þær byrjuðu að hrapa.“
Kær kveðja,
Sigrún.
Yfirleitt táknar stjörnu-
hrap, jafnt í draumi sem
veruleika, dauðsfall, veik-
indi eða óhamingju af ein-
hverju tagi. Einnig er það
gömul trú, að maður megi
óska sér, ef maður sér
stjömuhrap. Miklu er samt
algengara, að stjömuhrap
sé ills viti en góðs. Það er
því hætta á, að draumur
þinn tákni veikindi eða
citthvert mótlæti, en von-
andi er það ekki neitt al-
varlegt.
HÚSGAGNABÓN
GOLFÁBURÐUR
kasko
SJÁLPGLJÁANDI
GÓLPÁBURÐUR
HF. HREINN
[A /1 /^vfr^ ír^il
SKARTGRIPIR
y V/U^r^Li^
SIGMAR & PÁLMI
Hverfisgötu 16A, sími 21355
Laugaveg 70, sími 24910
__________________________:___________)
i«. tbt. VIKAN 7