Vikan


Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 12

Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 12
STEFNIIMÓT WD FORTÍDINA Smásaga efflir BJÖRN SAUEN Nú átti hann aö fá að sjá Noreg aftur, eftir rúmlega tuttugu ára dvöl í Ameríku. Þeir voru ekki líkir hvor öðrum, - ungi hræddi stúdentinn sem flýði land á stríðsárunum, og þessi dugnaðar- legi ameríski fram- kvæmdastjóri. Raunar var það gott, því að það gat skeð að hann hitti Marit......... 12 VIKAN 16-tbl- Fugþernan spurði vingjarnlega ó ensku hvort hann vildi ekki appelsínusafa, — eða kannski hann vildi heldur tómatsafa? — Tómatsafa, svaraði hann ó norsku, og hann sá að hún varð dálítið skömmustuleg. — Eg er ekki vön að láta mér skjátlast svona, sagði hún. — I þessu starfi eigum við nokkurn veginn að geta séð út þjóðerni farþeganna, en þér eruð mjög amerískur í útliti. Já, það var ekki svo undar- legt að henni hefði skjátlazt í þessu tilfelli, og hann sagði það við hana. Það voru rúm tuttugu ár síðan hann yfirgaf Noreg. Þá var hann tuttugu og eins árs, nú var hann kominn yfir fertugt, hárið var farið að grána og föt hans voru sniðin eftir nýj- ustu tízku í Ameríku. — Ég hefi líka skoðað far- þegalistann, flýtti hún sér að segja, — og ég sé að þér eruð Frederick Wilkens, yfirverkfræð- ingur frá Seattle. Það var ekki svo auðvelt að gizka á að þér væruð Norðmaður. Hann hló. Hún hafði sannar- lega á réttu að standa. Fyrir tutt- ugu árum var hann lagastúdent í Osló. Þá hét hann Frederik Wilhelmsen. Þannig gengur það oft til, — eitt líf, en tveir ólíkir heimar .... Hann leit niður á Norðursjóinn og varð hugsi. Hann lét sig dreyma tuttugu ár aftur í tím- ann. Það voru sextán manns um borð í litlu skútunni, sem plægði öldur Norðursjávarins, það var þung undiralda, þótt hásumar væri. Skútan var lítil og veik- byggð, og bar ekki nema átta manns, átta í viðbót var helm- ingi of margt. En mennirnir um borð tefldu um líf og dauða. Það var eins gott að bjóða örlögun- um byrginn úti á hafinu eins og inni við hernumda ströndina. Þeir sátu þétt saman á þilfar- inu, töluðu fátt, enda höfðu þeir allir nóg með sínar eigin hugs- anir. Nóttina áður höfðu þeir lagt upp frá litlu fiskimanna- þorpi á vesturströndinni. Nóttin var hættulega björt. Þeir voru bæði hræddir og yfirspenntir, þegar skútukrílið renndi sér út úr mjóu fjarðarmynninu, en að lokum höfðu þeir yztu klettana að baki sér. Yrðu þeir gripnir var úti um þá. Hann hallaði sér aftur á bak í þægilegu sæti flugvélarinnar, og lét hugann reika um hálf- gleymdar minningar frá liðnum dögum. Ef til vill voru öldurnar, sem hann sá langt fyrir neðan sig, sömu öldurnar sem litla skútan hafði með miklum erfið- leikum plægt þá. Hann hafði hallað sér upp að stýrishúsinu mestan part leiðar- innar. Hann var yngsti maður- inn um borð og hann skalf af hræðslu, en hann þorði ekki að lata Dera á því. Þessvegna fannsr honum það óþægilegt, ef ein- hver talaði til hans. Röddin gat komið upp um hann, óhreint andlitið og úfið skeggið hefði aldrei getað leynt því, Nú vissi hann að allir hinir voru jafn hræddir og hann sjálfur, og all- ir mændu þeir út í sjóndeildar- hringinn og horfðu vökulum aug- um á hafflötinn. Lítill depill í fjarska gat verið farkostur óvin- anna og fjarlægur dynur í lofti flugvélar þeirra. En smám saman róaðist hann og hann fann að andrúmsloftið varð léttara. Þá dró hann úr vasa sínum myndina af Marit, sem hún hafði gefið honum síðasta kvöldið sem þau voru saman. Þau Marit höfðu opinberað trúlofun sína hálfu ári áður, á gamlárskvöld, og þau voru á- kveðin í því að gifta sig um sumarið 1941. Marit og foreldrar hennar voru allt vorið að undirbúa giftingu þeirra, en hann sat öllum stund- um á háskólabókasafninu og las lögfræði. En hann var ekki bú- inn að jafn sig eftir bardagana árið áður, þegar hann slóst í för með litlum hóp manna, sem barðist á vesturströndinni og fór síðan yfir erfiðan fjallveg í hríðarbyl, til að sameinast þeim litla hluta norska hersins, sem -ennþá hélt velli. En það var of seint, herinn neyddist til þess að gefast upp. Fram eftir vori, árið 1941, var hann virkur meðlim- ur í andstöðuhreyfingunni, en fé- lagar hans voru gripnir, einn af öðrum, og hinir fengu skipun um að koma sér undan, hvað sem það kostaði. Með mestu leynd gat hann hitt Marit tvisvar sinnum, áður en hann fór. Síðara kvöldið sátu þau í kjallaranum undir húsi for- eldra hennar, og þau voru við- stödd. Marit grét og vildi endi- lega að þau giftu sig áður en hann færi. Sjálfur átti hann enga heitari ósk en að kvongast henni, en hann gat ekki annað en sam- þykkt það sem faðir hennar sagði, að þau væru neydd til að bíða, þangað til stríðinu væri lokið; það gæti verið hættulegt fyrir hana að vera konan hans, eftir að hann hafði flúið. Þetta var auðvitað staðreynd sem hann varð að beygja sig fyrir. — Vertu kyrr hjá foreldrum þínum Marit, og bíddu mfn, sagði hann. — Það verður miklu skemmti- legra að halda brúðkaup þá, þegar maður er laus við myrkv- unartjöld og trampið í hermönn- unum á gangstéttunum, sagði faðir Maritar. Svo bætti hann við, eins og til að létta okkur þessa stund: — Við verðum að halda okkur í skefjum, meðan þetta ástand helzt, það getur ekki verið nema um nokkrar vik- ur að ræða, þar til Frederik er kominn heim aftur .... Marit gat ekkert sagt, hún grét .... Eftir því sem hann gat frek- ast munað, eftir allan þennan tíma, sáu þeir land næsta dag. Hann mundi líka að einn mann- anna hafði misst bakpokann sinn í sjóinn og allir hlógu. Hvað var einn bakpoki á slíkri stund? Nokkrum tímum síðar komu þeir að klettóttri strönd — það var það fyrsta sem þeir sáu af Skot- landi, og eftir það urðu þeir kærulausari við stjórn skútunn- ar. Um það bil hundrað metra frá landi, rákust þeir á blind- sker og rifu gat á kinnunginn. Skútan sökk og allar eigur þeirra fáru í sjóinn, en það skipti ekki svo miklu máli. Þeir voru hinir kátustu, þegar þeir stungu sér til sunds, og nokkrum mínútum síðar stóðu þeir á ströndinni og veifuðu í áttina þangað sem farkostur þeirra hvarf. Þá varð hann var við að myndin af Marit var ekki leng- ur í vasa hans, hún hafði runnið úr vasa hans á sundinu. — Það gerði hann órólegan, honum fannst það ekki spá góðu. Og stríðið stóð líka lengur en nokkra mánuði. Hann gerðist norskur liðsforingi í Skotlandi og síðar höfuðsmaður. Hann tók þátt í innrásinni í Normandie sem höfuðsmaður. En þar áður hafði hann verið við æfingar í norsku herbúðunum í Skotlandi. Það var ósköp tilbreytingarlaust og leiðinlegt líf og Marit var stöðugt í huga hans. Hann skrif- aði henni mörg bréf á viku, en það var tllgangslaust að senda þau, svo hann stakk þeim í bréfa- möppur, sem fljótt urðu úttroðn- ar. Það vantaði ekki freistingar fyrir norsku hermennina í Skot- landi. En hann sagði alltaf nei, þegar félagar hans báðu hann um að koma með til að skemmta sér með „svaka skvísum".......... Marit var stöðugt i huga hans, hvern einasta dag, — hverja ein- ustu stund. Hann hafði lofað að gleyma henni ekki, og það lof- orð ætlaði hann að halda. Loksins fengu þeir leyfi til að taka þátt í stríðinu í Normandíé. Þeir voru kallaðir grænu djöfl- arnir, þeir voru með grænar húf- ur, sömu tegundar og rauðu húf- urnar, sem Monty-hersveitirnar báru, og honum fannst þeir bíta vel frá sér. En þeir urðu líka fyrir mikiu manntapi, fyrsta dag- inn lágu margir dauðir og særð- ir á vígvellinum. Hann var einn hinna særðu, og lá upp við lít- inn klett á ströndinni. Hann var töluvert særður á báðum fótum og bakinu, eftir sprengjuregn. Hann mundi ekkert eftir því sjálfur, hann fékk ekki með vit- und fyrr ei hann vaknaði eftir skurðaðgerð í notalegri sjúkra- stofu í Portsmouth. Þar lá hann í fjóra mánuði, áður en læknarn- ir gátu skorið úr um veikindi hans og sagt honum þau gleði-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.