Vikan


Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 22

Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 22
Hin fótæka, afríska fjölskylda með steininn, sem breytti örbirgð ( allsnægt. Þeirra hlutur var um sjö og hálf milljón króna! TORFÆRAN MILLI ÖRBIRGÐAR OG ALLSNÆGTA ER EKKI ALLTAF HÁ. STUNDUM EKKI STÆRRI EN VENJULEG GOLFKÚLA. SAMT ER HÚN ALLT OF MÖRGUM ÓKLEIF. Réttu ári áður en hægri umferð verður upp tekin á Islandi, 26. maí 1967, var Petrus Ramoboa, fjörutíu og fimm ára gamall svartur bóndi fótgangandi á leið heim til sín í Letseng le- Terae frá Maseru, höfuðborg litla konungdæmisins Leshoto (áður brezka nýlendan Basutoland). Hann varð að fara þetta gangandi þv( hann átti ekki nema fáeina skild- inga í vasanum; hann lét sig ekki muna um það enda slíku vanur frá fyrri tíð, þrátt fyrir vonda færð og veður, en Letseng er í 3000 metra hæð og snjór og frost eru ekki áalgengt veðurfar þar, meira að segja yfir sumarmánuðina. Já, Petrus hafði mörg sporin að baki á þessari leið, síðan hann hætti búskap og tók að leita að demöntum. Ef hann fann eitt- hvað, var ekki um annað að ræða en arka með það til Maseru til að selja það. Og oft hafði hann haft minna í vasanum en núna, hann var með jafngildi 200 íslenzkra króna. Það var ekki sem verst. Sama kvöld sat kona hans, Er- nestine, heima við hreysið og þvoði uppgröftinn eftir dag- inn. Hún hefði ekki haft neitt á móti því að þiggja hjálp einka- dóttur þeirra hjónanna, Martu, en þetta 19 ára stúlkubarn lá veikt og ósjálfbjarga inni í hreysinu, hún var með skemmd í fótum og heyrn- arlaus. Svo um það var ekki að ræða, og Ernestine hélt áfram að sigta og skola, og von bráðar rakst hún á Ijósbrúnan stein, á stærð við eldspýtustokk. Hún ætlaði að fara að kasta þessum hnullungi, þegar henni datt ( hug, að þetta væri ekki venjulegur steinn. Hún tók að virða hann vandlega fyrir sér. Og smám saman varð hún alveg viss: Þetta hlaut að vera demantur! Þ annig fannst sjöundi stærsti demantur, sem sögur fara af frá upphafi. Steinninn er nú Maria Ramoboa mátar pels. Senni- lega verður fundur steinsins henni dýrmætari en nokkrum öðrum. Þegar steinninn var sýndur í New York, var Ramoboa-f jölskyldunni boðið þangað. Hún vakti mikla at- hygli í beztu sparifötunum sínum. 22 VIKAN 16-tbl'

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.