Vikan


Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 28

Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 28
,,Ef bróðir minn hefði verið ó lífi, væri stefna okkar í Víetnam allt önnur," sagði Róbert Kennedy 'í ræðu, þar sem hann gagnrýndi harð- lega framkomu Bandaríkjamanna í Víetnam. Hann sagði, að hún hefði grafið undan virðingu Bandaríkjanna um allan heim. Aldrei fyrr hafði nokkur maður, sem hefur jafnmikil óhrif og Róbert Kennedy, farið svo hörðum orðum um Johnson forseta. Róbert er þeirrar skoðunar, að Johnson beri ábyrgð á þeim óróleika og þeirri megnu óánægju, sem Víetnam- stríðið hefur valdið í Bandaríkjunum sjálfum og utan þeirra. „Við ákváðum á sínum tíma að hjálpa Suður- Víetnam til þess eins að þessi þjóð fengi að ráða sjálf örlögum sínum. En viðhorfið gjör- breyttist, þegar það kom í Ijós, að íbúar Suður- Vietnam vildu ekki leggja nægilega hart að sér til þess að varðveita frelsi sitt. Nú á svo að heita, að við berjumst ( Vietnam til þess að stemma stigu við kínverska kommúnismanum. Þar með er orsök stríðsins komin út fyrir áhuga- svið Bandaríkjanna," sagði Róbert Kennedy ( ræðu sinni. Róbert hefur nú lýst því yfir, að hann gefi kost á sér sem frambjóðandi við forsetakosn- ingarnar í haust. Allir vissu, að takmark hans í lífinu var að verða forsetf Bandaríkjanna og taka upp merki hins látna og dáða bróður síns. En hann hafði lýst því yfir, að hann stefndi að því að ná kjöri 1972. Þess vegna kom það flest- um á óvart, er hann tilkynnti, að hann mundi leggja til atlögu við Johnson strax nú ( haust. Það hefur ekki farið leynt, að samkomulagið milli Johnsons og Róbert Kennedy hefur versn- að með hverjum degi. Eftir ákvörðun Róberts um framboðið og viðbrögð Johnsons við henni, má segja, að uppúr hafi soðið milli þeirra. John Kennedy sagði, að Róbert væri sá sterk- asti í fjölskyldunni — og þessi ummæli hans segja ekki svo lítið. Allir hafa þeir bræður ver- ið óvenju viIjasterkir og keppt markvisst að því að fá vilja sínum framgengt. John fékk svo sannarlega sitt fram, ef hann þurfti á þvf að halda. Sem dæmi um það er eftirfarandi saga: SfÐARI HLUTI FULLTRÚI NÝRRAR STEFNU NÝS TÍMA

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.