Vikan


Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 41

Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 41
unda barn þeirra hjóna og' væri komin fimm mánuði á leið. Og sfð- ast en ekki sízt vann Jaqueline Kennedy ötullega að framgangi f jölsky Id u hins látna eiginmanns síns. Róbert Kennedy sigraði f kosningunum með 560 þúsund at- kvæða meirihluta. Hann hlaut alls 3.412.000 atkvæði, en keppinaut- ur hans, Keating, hlaut 2.852.000 atkvæði. Róbert Kenedy er frjálslyndur stjórnmálamaður og á miklu fylgi að fagna í New York. En það eru fleiri ríki en New York sem kjósa forsetann. Ef til vill verða Suður- ríkin Róbert þyngst í skauti, ef hann verður í framboði fyrir demókrata í haust. Til þess að svo verði þarf hann að heyja harða baráttu bæði við Johnson forseta og MacCarthy öldungadeildarþingmann, serh einn- ig hefur hug á að verða í kjöri. Ákvörðunin um forsetaefni demó- krata verður tekin á þingi flokks- ins f ágúst í sumar. Róbert Kennedy er vinsæll, sér- staklega meðal kvenþjóðarinnar og unga fólksins. Hann er á margan hátt ólíkur John bróður sínum, en líkist honum þó í ýmsu. Hann kann þá list að tqla þannig, að allir skilji og kveikja eld í brjóstum al- mennings. Og hann er frfður sýn- um og gæddur miklum persónu- töfrum. Hann er ótrúlega dugmik- i11; sannkölluð hamhleypa til allra verka; heiðarlegur og hreinlyndur og hefur sterka ábyrgðartilfiningu. Og auk þess er hann ríkur. Millj- ónina, sem faðir hans gaf honum þegar hann varð 21 árs, hefur hann ávaxtað svo vel, að eignir hans eru nú metnar á nfu miljónir dollara. Og síðast en ekki sízt á hann góða konu og tíu börn. Róbert var snemma orðaður við forsetastólinn. Rétt fyrir flokksþing demókrata 1960, þar sem John F. Kennedy sigraði aðra keppinauta sfna og var útnefndur sem fram- bjóðandi flokksins, barst John bréf frá kunnum lögfræðingi, sem skor- aði á hann að draga framboð sitt til baka og láta Róbert bjóða sig fram f staðinn. John svaraði bréfinu á þessa leið. ,,Ég hef hugleitt tillögu yðar og rætt málið við Bobby bróður minn. Og mér til mikillar skelfingar fannst honum þetta prýðileg tillagal" Menn brostu í kampinn yfir þessu máli á þeim tíma. En nú er ekki lengur brosað, þegar Róbert Kenne- dy gefur kost á sér til framboðs í forsetakosningunum í haust. Þegar John F. Kennedy var sviptur em- bætti sínu á hinn svívirðilega hátt 1963, strengdi Róbert þess heit að taka upp merki Johns og fylgja stefnu hans til endanlegs sigurs. f bók sinni „The Making of a President — 1964" segir rithöfundur- inn og blaðamaðurinn Theodor H. White, að Róbert hafi elskað John bróður sinn meira en sjálfan sig. í hans augum hafi John F. Kennedy ekki aðeins verið persóna, heldur sameiningartákn fortíðarinnar, kyn- slóð föður hans. Og þegar Johnson tók við forsetaembættinu var það að hans áliti kynslóð • liðins tíma sem tók við stjórnartaumunum. Deilurnar milli Róberts Kennedy og Johnson forseta eiga sér langa sögu. Meðan John lifði var Róbert stoð og stytta bróður síns. Var al- mennt talað um hann sem annan valdamesta mann stjórnarinnar í Washington. Róbert lagðist gegn því, að Johnson væri f framboð sem varaforseti með John, eins og áður er sagt. Og alla stjórnartíð þeirar bræðra sýndi Róbert Johnson til 1 itsleysi, sem Johnson átti erfitt með að fyrirgefa. Johnson var þó alltént varaforsetinn, og John sýndi honum fyllstu tillitssemi og hafði hann gjarnan með í ráðum, þegar leysa þurfti stór vandamál. Róbert Kennedy hafði hins vegar nær ekk- ert samband við Johnson varðandi öll þau merku mál, sem afgreidd voru í dómsmálaráðuneytinu. Tekst Róbert eKnnedy að sigra Johnson forseta og MacCarthy og verða frambjóðandi demókrata við forsetakosningarnar í haust? Þessi spurning verður efst á baugi, ekki aðeins f Bandaríkjunum heldur um allan heim, þar til flokksþing demó- krata verður háð f ágúst. Ef svo fer, þá verður Róbert Kennedy ekki aðeins glæsilegur fulltrúi nýrrar stefnu nýs tfma, heldur einnig tákn þess, sem allur heimurinn þráir: friðar í Vietnam. ☆ Gull er þjóð sem líkama blóð Framhald af bls. 5 þvf að allir ritstjórarnir voru farnir í gullleit. Aðkomumenn á gullleitar- svæðinu voru af ýmsum stéttum, stigum og þjóðflokkum. Suter fékk engan mann til að vinna nokkurt verk við kornmylluna og stöðvað- ist sá rekstur, og varð honum það að orði: „Gullið, það er sjálfur andkristurinnl" „Gullæðið" í Kalffornfu dofnaði og þvarr að fullu við lok nftjándu aldar. Jafnframt kom nokkuð nýtt til sögunnar, en það voru námurn- ar miklu í Alaska. Sagan segir að það hafi verið ftalskur maður, Felice Pedroni að nafni, sem fann þær fyrstur manna. Hann sté á land f New York árið 1881, en til Alaska komst hann sem burðar- maður í landafræðileiðangri. Ekki var hann fyrr kominn þangað, en hann fór að skjóta dýr til að selja af þeim skinnin. Einn morgun er hann gekk um bakka árinnar Yu- kon, tókst honum að skjóta elg. Meðan hann var að flá elginn, sá hann glytta f gullkorn milli klauf- anna. Þá hætti hann við verk sitt, og rakti slóð elgsins í snjónum, unz hann kom út á eyri við ána. Þar glitraði f gullkorn f sandinum. Pe- droni, þessi fátæki, ítalski innflytj- andi, hafði fundið þarna gullland sitt, el-dorado. En ábatinn varð víst lítill sem enginn, því ekki tókst honum að afla sér neinna einka- DANISH GOLF Nýr stór! gódur smávinaill Smávindill í réttri stærd, fullkominn smávindill, fram- leiddur úr gædatóbaki. DANISH GOLF, nýr, stór! Smávindill,sem ánægj a er ad kynnast.D ANISH GOLF erframleiddur afstærstu tóbaksverksmidju Skandina- viu, og hefir í mörg ár verid hinn leidandi danski smávindill. Kauþid í dag DANISH GOLF i þœgilega 3stk.pakkanum. SCANDINAVIAN TOBACCO COMPANY DENMARK w. tbi. VIKAN 41

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.