Vikan


Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 17

Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 17
ANDRÉS INDRIÐASON NÝ BÍTLAPLATA Fyrsta tveggja laga hljómplata Bítlanna á ár_ inu 1968 kom út 15. marz síðastliðinn, og enn sem fyrr komu Bítlarnir á óvart. Titillag plötunnar er „Lady Maddonna“ eftir Lennon og McCartney — og það er Paul, sem syng- ur — en ekki Ringó, eins og margir virðast halda! Margir þekktir jazzleikarar komu við sögu, þegar þetta lag var tekið upp, þar á meðal hinn þekkti tenórsaxófónleikari Ronn- ie Scott. Hitt lagið á plötunni er „The Inner Light“ eftir George Harrison og syngur hann lagið sjálfur. Undirleikur þessa lags var að mestu leyti tekinn upp í Indlandi, og var það gert í febrúar sl. þegar George var staddur í Bombay, þar sem hann var að semja tón- list fyrir nýja kvikmynd, sem nefnist „Wond- er Wall“. Þess má geta, að þetta er í fyrsta sinn, að lag eftir George er á tveggja laga plötu frá Bítlunum. Lög Georges hafa jafn- an verið á hæggengu plötum Bítlanna. Ge- orge leikur sjálfur á eitt hinna austurlenzku hljóðfæra í þessu lagi -— en hinir Bítlarnir koma þar hvergi nálægl að því slepptu, að John og Paul gefa frá sér hljóð við og við bakatil við söng Georges. Bæði lögin á þess- ari nýju hljómplötu Bítlanna eru ný af nál- inni og voru samin í febrúar. George Harrison samdi lagið „The Inner Light‘*. — Indverskir hljóðfæraleikarar annast undirleik, og hér sjáum við George og einn hljóðpípuleikarann. Gary Walker, sá er á'ð'ur var trymbill söng- tríósins Walker Brothers, hefur nú stofnað nýja hljómsveit og heitir sú Gary Walker and tlie Rain. Þessi nýstofnaða hljómsveit hefur nú sent frá sér sína fyrstu plötu og heita lögin á henni „Spooky“ og „I can‘t LÆRIS KLOKKA Maxi-úr nefna úrsmiðir á írlandi klukkur eins og þær, sem við sjáum við fótlegg stúlk- unnar á myndinni. Það fylgir sögunni, að ekki sé fráleitt að ætla, að slíkar klukkur muni verða vinsælar á tímum pínupilsanna. Sagan greinir hins vegar ekki frá því, hvort stúlkunni finnist það hagræði að hafa klukk- una á þessum stað. Það er þó nokkur bót í máli að klukkan slær á klukkutíma fresti og gefur til kynna, hvað tímanum líður. — Já, tízkan lætur ekki að sér hæða — a. m. k. ekki í Belfast, þar sem þessi mynd var tekin. Paul og Ringó í upptökusal. stand to lose you“. Meffan Gary söng meff Walker Brothers þótti honum fremur súrt í broti aff sitja viff trommumar í skugganum fyrir aftan félagana sína tvo, sem ætíff voru í sviffsljósinu. Walker Brothers nutu gífur- legra vinsælda meffan þeir voru og hétu, og þaff kom mörgum á óvart, aff þeir skyldu liætta, þegar frægffarsól þeirra var hæst á lofti. Sagt er, aff þeir hafi ekki þolað alla upphefðina og oft átt í hatrömmum deilum sín á milli. Hljómsveitinni Rain er spáff vin- sældum enda lifir Gary enn á forari frægff og á álitlegan hóp fylgjenda, sem kaupa munu plötur hinnar nýju hljómsveitar hans. ★ Paul McCartney samdi iag fyrir Ciliu Black, sem hún söng í sjónvarpsþætti sínum í brezka sjónvarp- inu. Ilér æfa þau lagið. i6. thi. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.