Vikan


Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 9

Vikan - 24.04.1968, Blaðsíða 9
Rostow heldur því .fram að vinni Bandaríkin ekki fullan hernaðarsigur í Víetnam, muni álíka illindi brjótast út annars- staðar í heiminum. Það verður að berja kommúnismann niður með hlífðarlausri festu, fullyrðir hann af ofstækisfullum ákafa. Nafnaskipti 1964 gengu í gildi í Svíþjóð lög, sem heimila mönnum að skipta um skirnarnafn, ef til þess 3ættu liggja sérlega gildar ástæð- ur, til dæmis ef menn bæru nöfn sem gætu talizt á einhvern hátt hlægileg eða apkannaleg. Síðast- liðið ár sóttu nærri fimm hundr- uð og sjötíu Svíar um leyfi til nafnskipta, en þar af var rúm- lega áttatíu umsóknum hafnað. Það dugar sem sé ekki að mönn- um sé persónulega illa við það nafn, sem þeim var gefið við vatnsaustur í frumbernsku; stundum er meira að segja kraf- izt læknisvoltorðs til að sanna að andlegri heilbrigði umsækj- andans sé hætta búin vegna þeirr- ar hrellingar er nafnið valdi hon- um. Algengt er að konur vilji kasta nöfnum svo sem Hulda, Laura, Petronella og Amanda, sem sam- kvæmt nútíðarsmekk sænskum Rostow er einnig sagður fremsti talsmaður þeirrar skoðunar að Bandaríkjamenn eigi sem skjót- ast að ráðast inn í Kambódíu, Laos og Norður-Víetnam til að koma af stað allsherjaruppgjöri við Kína. kváðu þykja forneskjuleg og ekki smart, enda eru umsóknir af því tagi venjulega teknar orðalaust til greina. Vilji einhver herra- maður, sem hlotið hefur í skírn nafnið Napoleon, losna við það, verður hann að hafa það áfram, hversu mjög sem það þrúgar honum. Ekki þýðir heldur að biðja nafnaskiptanefndina að losa sig við nöfn eins og Adolf, af því að Hitler hét því, eða Josef af því að Stalín hét því. Heiti hinsvegar einhver rígfullorðinn maður með loðna bringu Lillos- car, finnst nafnanefndinni ekki nema sjálfsagt að hann fái að skipta. Enga elsku hefur nefndin á gælunöfnum. Vilji til dæmis ein- hver Robert heita Robban, Nils Nisse og Karl Kalle, þá fá þeir þvert nei. Þafl logar ekki Maðurinn a tarna heitir Paddy Hopkirk og er þekktur kapp- akari í sínu heimalandi, Bret- landi. Hann er þarna að reyna að kveikja í búningi, sem ekki getur logað — og hefur verið sérstaklega ofinn og upp hugs- aður handa stéttarbræðrum Paddýs. Þráðurinn heitir Nomex og föt úr honum eru sögð bezta fáanlega vörn gegn eldi, sem kappaksturshetjur geta klæðzt, en sem kunnugt er er hætta á, að þeir farist í eldi eftir að bíll þeirra hefur orðið fyrir áfalli. Nomex fötin loga ekki, og auka því líkur ökumannsins til að sleppa með lífi frá bálinu. Efni þetta er stórlega einangrandi og hrindir frá sér olíu og elds- neyti, það er þægilegt viðkomu og notalega svalt. Úr efni þessu má nú fá samfestinga, nærföt, sokka, hanzka og andlitsgrím- Radiófónn hinna vandlátu Dual iR Sí!v?.‘^»?ðs pÍÍTilh1!! RfefrUife ■ii •TJJCaei', ■ ; : • :■• '• 1 • • • • •• t:<? <* pu Ijn rr;rrr-‘ ÍF.i Yfir 20 mismunandi gerðir á verði viÖ allra hæfi. KomiÖ og skoöiö úrvaliÖ í stærstu viÖtækjaverzlun landsins. B U Ð I N ■ Klapparstíg 26, sími 19800 á r~ Harlitiiarkafiir ; 11 im x i J t T I ' BÍLSKÚRS HIJRÐIR j ýhhi- & VXikutlit H Ö. VILHJÁLMSSDN RÁNARGOTll 1 ?. GIMI 19669 16 tbl- VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.