Vikan


Vikan - 24.04.1968, Side 25

Vikan - 24.04.1968, Side 25
SEM ffHA RD tlFTA SK Brúðkaupsferðin verður oft að von- brigðum, vegna þess að unga brúður- in býzt við of miklu. Hin fullkomna hamingja kemur ekki alltaf um leið og presturinn segir amen, segir Evelyn Home í þessari athyglisverðu grein . . . vonast til að minningarnar verði til að ilja þeim á komandi árum; það verði sem stutt dvöl í lukkulandi, sem þær muni eftir þeg- ar hversdagsleikinn gerir vart við sig. Því miður er það ekki svo einfalt að það sé hægt að setjast niður, þrýsta á hnapp og bíða eftir ljúfum minningum. Það getur líka rignt á nýgift fólk, það getur jafnvel komið helli demba. Oft hefur unga stúlkan gert sér svo geysi- lega háar vonir um hveitibrauðsdagana, að hún er dæmd til að verða fyrir vonbrigðum. Ég er bara ekki viss um að slík vonbrigði þurfi að hafa eyðileggjandi áhrif, það getur jafnvel og oftast verið hollt ungu fótki, það lærir þá betur að taka erfiðleikum sem mæta því á tífsleiðinni. Aðal tilgangur hveitibrauðsdaganna er að ungu hjónin kynnist betur, og þá geta von- brigði á sumum sviðum verið mikils virði. Það getur verið að þau leggi af stað með þeirri fullvissu að makinn sé fullkominn, en komast svo að því að þau eru aðeins venju- legar manneskjur með sína kosti og lesti. — Þessi reynsla er bæði holl og nauðsynleg. Ef einlæg ást er fyrir hendi, geta mannlegir eiginleikar og breyzkleiki jafnvel bundið hjónin ennþá sterkari böndum. Ef ung og óreynd stúlka er vonsvikin yfir hveitibrauðsdögum sínum, er það venjulega vegna þess að henni fynnst kynlífið ekki eins spennandi og hún bjóst við. Jafnvel á vorum dögum, þegar flestar ung- ar manneskjur hafa reynt kynlífið áður en þær gánga í hjónaband, getur hin unga brúð- ur orðið sorglega vonsvikin yfir hveitibrauðs- dögunum, burtséð frá því hve heitt hún elsk- ar eiginmann sinn. Hún upplifir ef til vill ekki þá fullnægingu, sem hana hafði dreymt um að verða aðnjótandi, þegar hún og mað- ur hennar voru orðin frjáls gerða sinna, eða hætt að þurfa að fara í launkofa. Flestar konur komast fljótlega að því að það þarf ekki að vera varanlegt að þær njóti ekki fullnægingar í samlífinu við mann sinn, — það getur oft stafað einfaldlega af því að þær eru þreyttar, andlega eða líkamlega, og þá er ekkert eðlilegra en að ástandið sé ein- mitt þannig, rétt eftir brúðkaupið. Það er því um að gera að sýna þolinmæði og það er nauðsynlegt að hinn imgi eigin- maður fái að vita um ástand brúðar sinnar. Það þarf ekki endilega að vera manninum að kenna að unga konan hagar sér á nokkuð neikvæðan hátt á fyrstu dögum hjónabands- ins. Maðurinn er ef til vill sjálfur hræddur um að hann geti ekki fullnægt konu sinni, og í ákafanum við að sýna manndóm sinn, gleymir hann kannski að taka eftir viðbrögð- um hennar. En strax og öryggi og ró er komin á, ættu ungu hjónin að temja sér það frá upphafi að tala saman um kynferðismál, það er nauð- synlegt að þau hafi fullt trúnaðarlraust hvort til annars. Það þarf ekki endilega að hafa mörg orð eða langar ræður, aðeins ef þau ná því að skilja hvort annað, og það er hollast að byrja strax á því að skapa slíkt trúnaðartraust. Það er sorglegt ef feimni eða misskilin hlédrægni verður til þess að eyðileggja lífið fyrir tveim mannverum sem elska innilega hvort annað. Ef unga konan fær ekki fullnægingu í upphafi hveitibrauðsdaganna, getur það ver- ið að hún yppti öxlum og segi við sjálfa sig (eða hann): — Jæja, ég ætla ekki að gera mér grillur út af þessu, það gerir ekki svo mikið til að svo stöddu. Ég slaka bara á og fer að óskum hans. Við höfum tímann fyrir okkur. Því ætti ég að eyðileggja fríið fyrir okkur með óþarfa áhyggjum? Þetta getur einmitt orðið til þess að hún njóti fullkominnar sælu í fyrsta sinn. Ein- mitt vegna þess að hún hugsar ekki svo mik- ið um þetta.... Og þegar það svo hefur skeð einu sinni, vita báðir partar að alll er raunverulega í lagi. Þau fá traust á sjálfum sér og framtíð- inni. Þau vita nú að það þarf aðeins að hafa þolinmæði. Þett á ekki síður við um aðrar hliðar hjónabandsins. Mér er það ljóst, að það hefur mikið að segja hvert uppeldi unga fólkið hefur, til- finningalega séð. Ef þau eru alin upp á heim- ili þar sem þeim er kennt að láta tilfinning- ar sínar í ljós, hafa þau meiri möguleika til að njóta hveitibrauðsdaganna, án feimni eða blygðunarsemi, heldur en ef þau koma frá heimilum, þar sem það er bannfært að sýna blíðuhót og alúð. Börnin læra um ást og innileika af því sem þau sjá það fyrir sér, eklti af því sem þeim er sagt. Ég ætla að taka dæmi frá sjálfri mér. . . . Foreldrar mínir voru mjög strangir hvað háttvísi og hegðun snerti. En þau voru aldrei neitt að fara í launkofa með ást sína hvort á öðru, og óhrædd við að sýna hvort öðru blíðuhól, og þau voru eins frjálsleg í blíðu- atlotum við okkur börnin. Þegar þau þrættu, höfðum við það á tilfinningunni að þetta væri aðeins yfirborðsnöldur, léttar gárur á djúpri lind. Ég var alin upp við þá skoðun að ástin væri jafn eðlileg og það að draga andann, borða og sofa, — og jafn nauðsynleg, enda var ég ekkert vonsvikin eða feimin á brúð- kaupsferð minni. Ég hafði heldur ekki von- azt eftir yfirnáttúrlegri sælu, og við nutum einfaldlega frídaganna. Margar ungar stúlkur eru vanar því að hafa persónulegar venjur út af fyrir sig, jafnvel þótt þær séu nokkuð lífsreyndar. þeim getur orðið raun að því að eiginmaður- inn sjái þær á nærklæðum, með rúllur í hár- inu og án andlitssnyrtingar, og þeim getur þótt það ennþá óþægilegra að venjast öllum stigum snyrtingar mannsins. Framhald á bls. 40. 16. tbi. VIKAN 25

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.