Vikan - 24.04.1968, Page 29
Þegar hann bauð bróður slnum að gerast
dómsmólaráðherra, tók Róbert því víðs fjarri.
Hann rökstuddi 'neitun sína þannig:
„Ég viðurkenni fúslega, að mig iangaði til
að taka boðinu. Ég velti málinu fyrir mér fram
og aftur. Mörg verkefni kom ég auga á, sem
mig langaði til að leysa sem dómsmálaráð-
herra. En ég óttaðist ,að ég kynni að skaða
stöðu Johns I stjórnmálunum, ef ég hlyti of harða
gagnrýni. Pabbi vildi, að ég tæki boðinu. Ég
var á báðum áttum, hikaði og reyndi að hugsa
málið frá öllum hliðum. Loks hringdi ég til
Johns og sagði nei. John sagðist ekki taka neit-
un mína til greina. Hann bað mig að koma til
Washington og snæða með sér morgunverð
daginn eftir."
Að morgunverðinum loknum gátu blöðin skýrt
frá því, að Róbert Kennedy hefði tekið að sér
að gerast dómsmálaráðherra aðeins 35 ára
gamall.
Það stóð ekki á gagnrýninni. Hún var hávær
til að byrja með, en mildaðist brátt. Jafnvel stóri
bróðir í Hvíta húsinu hélt ekki, að Róbert mundi
afla sér svo fljótt slíkrar viðurkenningar. Eng-
inn hafði þorað að vona, að hinn ungi dóms-
málaráðherra mundi ráðast til atlögu við glæpa-
hringi Bandaríkjanna. Róbert Kennedy lagði sig
þegar í stað allan fram við að hafa hendur I
hári þeirra manna, sem stóðu að baki hinni
illræmdu „Mafíu" og öðrum samtökum glæpa-
manna. Hver glæpahringurinn á fætur öðrum var
sprengdur ( loft upp og einnig lagði Róbert til
atlögu við hinn volduga verkalýðsleiðtoga,
Hoffa. Baráttan gegn honum var löng og erfið,
en 1964 tókst loks að sanna hinar glæpsamlegu
aðferðir Hoffa. Hann var dæmdur og þar með
var hættulegum óvini þjóðfélagsins rutt úr vegi.
Róbert Kennedy hafði unnið nýjan sigur.
Þegar John F. Kennedy var myrtur í Dallas
22. nóvember 1963, kom enn í Ijós styrkur Ró-
berts. Er hin válegu tíðindi bárust Róbert til
eyrna, var hann um stund yfirbugaður af skelf-
ingu. En að vörmu spori náði hann aftur stjórn
á sjálfum sér og tilfinningum sínum og hófst
þegar handa.
Framhald. á bls. 40.
TEKST RÖBERT KENNEDY AÐ HLJÓTA ÚTNEFNINGU SEM
FRAMBJÓÐANDI DEMÖKRATA VIÐ FORSETAKOSNINGARNAR
í HAUST? ÞESSI SPURNING VERÐUR EFST Á BAUGI, EKKI
AÐEINS í BANDARÍKJUNUM HELDUR UM ALLAN HEIM, ÞAR
TIL FLOKKSÞING DEMÖKRATA VERÐUR HÁÐ f ÁGOST.
X ■ ■■::
Æ:.
,
iBiBM
Éllilil
g ||B
.
■ :v>' '■: ■:
■>■::*>•>
I «lplÉSi§
■ff
nw S N Si \ ; 4 * ' V
» r %»|g|g