Vikan - 06.06.1968, Qupperneq 7
■*)
steingeitin og vatnsbera,
síðan svo
synda leit ég fiska tvo.
Vonast eftir svari fljótt.
Með fyrirfram þakklæti,
Ein undir Meyjarmerk-
inu.
f
Við þekkjum ekki þessar
vísur um stjörnumerkin, en
þær eru ugglaust mjög
gamlar. Ef einhver lesenda
kann þær, væri gaman ef
hann vildi hripa þær niður
og senda okkur.
VERULEIKI OG IMYNDUN
Kæri Póstur!
Ég hef áhyggjur af dótt-
ur minni og skrifa þér þess
vegna í þeirri von, að þú
hughreystir mig og full-
vissir mig um, að ekkert
alvarlegt sé á ferðum. Hún
er ellefu ára og er að sjálf-
sögðu augasteinninn minn.
Hún hefur alltaf verið fjör-
ugur krakki, ærslafengin
og gáskafull og svolítið
fyrirferðamikil. Það sem
veldur mér áhyggjum er
sú árátta hennar að geta
aldrei sagt satt og rétt frá
því, sem fyrir hana ber.
Hún þarf alltaf að ýkja
það stórlega, bæta ein-
hverju við, gera það sem
ekkert er að stórkostleg-
um og ægilegum atburði.
Um daginn fór hún til
dæmis út í búð fyrir mig.
Af vangá lét ég hana ekki
hafa nógu mikla peninga
fyrir því, sem hún átti að
kaupa. Þegar hún kom aft-
ur var hún rjóð af ákafa
og titrandi af reiði. Hún
sagði, að afgreiðslustúlkan
hefði hundskammað sig,
meira að segja þrifið í
handlegginn á sér og hrint
sér í gólfið. Ég trúði þessu
og fór með hana í búðina
og kvartað yfir slíkri með-
ferð á saklausu barninu.
Þá kom það upp úr kaf-
inu, að afgreiðslustúlkan
hafði ekki snert við henni,
Það voru ótal vitni að því.
Hins vegar mun hún hafa
verið svolítið höstug við
hana. Ég get ekki með orð-
um lýst hversu sneyptur ég
varð.
Síðan hefur þetta gerzt
aftur og aftur. Hún þarf
alltaf að ýkja og láta í-
myndunaraflið hlaupa með
sig í gönur. Er eitthvað
bogið við sálarlíf dóttur
minnar? Eða eru öll börn
svona á ákveðnu skeiði?
Hvernig get ég hjálpað
henni?
Með fyrirfram þökk,
Föðurnefna.
Þa® er áreiðanlega ekkert
að óttast. Á ákveðnu skeiði
vilja börn rugla saman í-
myndun og veruleika, í
misjafnlega ríkum mæli að
sjálfsögðu. Þú skalt reyna
með lagni að leiða henni
fyrir sjónir, að öllum sé
nauðsynlegt að skynja ver-
öldina rétt og segja satt
og nákvæmlega frá því,
sem fyrir hana ber.
AUÐAR SÍÐUR . . .
Tilefni þessa bréfs er eins
og fyrri daginn, nöldur, en
þó af nokkuð öðrum toga
spunnið en venjulega.
Þannig er nefnilega mál
með vexti að í átjánda tbl.
mitt af Vikunni vantaði
fjórar síður af lesmáli,
þ.e.a.s. þær voru með en
á þeim fyrirfannst ekki eitt
einasta orð.
Nú þóttist ég skilja að
þarna væri um að kenna
prentun blaðsins og að
þessari opnu hefði með
snarræði tekizt að komast
framhjá allri prentsvertu
og hafnaði hjá nöldursegg
norður í landi, sem ekki
sættir sig við framtakið.
Ég fékk að vísu blaðið
lánað hjá systur minni til
að geta lesið það, sem á
þessar síður var prentað
því að venjulega les ég
hvert orð í Vikunni og oft-
ast mér til ánægju, en það
er bara ekki nægilegt
vegna þess að ég hefi hald-
ið blaðinu saman, og er
núna að glugga í 1962 ár-
ganginn, hann er eiginlega
að verða nýr aftur.
Forspjall þetta ætti nú
að vera orðið hæfilega
langt til þess að fara fram
á að mér verði sent annað
eintak af þessu blaði við
hentugleika, ekkert liggur
nú á.
Að endingu þakka ég for-
sjármönnum blaðsins fyrir
skemmtilegt og oft mjög
fróðlegt efni á undanförn-
um árum og vona að Vikan
eigi eftir að gleðja og fræða
unga sem aldna um mörg
ókomin ár.
Með beztu kveðju og fyr-
irfram þökk fyrir 18, tbl.
Húnabraut 32, Blöndu-
ósi 15. 5. ‘68.
Sigurður Kr. Jónsson.
Við þökkum hólið og von-
um, að Sigurður hafi feng-
ið annað eintak, þegar
Iiann les þessar linur.
- J
SUNNUFERIII11968
Því er slegið föstu: Hvergi meira fyrir ferðapeningana
I*rátt fyrir gengisfellingu gefst yður kostur á ótrúlega ódýrum utanlands-
ferðum, vegna hagkvœmra samninga og mikilla viðskipta SUNNU við hótel
og flugfélög.
SUNNUFERÐIR eru íslenzkar ferðir alla lcið, en farþegum ekki komið inn í
hópferðir erlendra aðila í London og Kaupmannahöfn.
Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þær þúsundir sem valið
hafa SUNNUFERÐIR og gera það aftur ár eftir ár. Ánægðir viðskiptavinir
er sú auglýsing, sem gert hefir SUNNU að stórri og vinsælli ferðaskrifstofu.
Við getum á þessu ári í mörgum tilfellum boðið upp á utanlandsferðir á
svipuðu verði og fyrir gengisfellingu.
Nokkrar af okkar vinsælu og vönduðu utanlandsferðum, sem enn verða
ódýrar á þessu ári:
14 dagar Mallorka, 2 daerar í London. Verð frá kr. 8.900,00
Hálfsmánaðarlega frá 10. a.príl.
Flogið með íslenzkri flugvél allar leiðir og búið á góðum hótelum.
Eigin skrifstofa SUNNU í Palma tryggir farþegum fullkomna þjónustu á
vinsælasta sumarleyfis-skemmtistað álfunnar.
12 dagar London, Amsterdam og: Kaupm.höfn. Kr. 14.400,00
Hálfsmánaðarlega frá 7. júlí til 15. september.
í þessum vinsælu ferðum gefst fólki kostur á að kvnnast þremur af helztu
stórborgum Norður-Evrópu. Eigin skrifstofa SUNNU í Kaupmannahöfn,
Vesterbrogade 31 tryggir farþegum okkar fullkomna þjónustu og fyrirgreiðslu
í ,,Borginni við sundið“, sem í aldir hefir verið höfuðborg fslendinga í út-
landinu.
Kynnið ykkur fjölbreytt ferðaúrval. Sumaráætlun komin út
Veljið snemma réttu utanlandsferðina, bar sem þér fáið mest fyrir pening-
ana. Þrátt fyrir inikinn fjölda SUNNUFERÐA á síðasta ári, urðu ferðimar
fljótt fullskipaðar.
Áratugs reynsla og ^tvíræðar vinsældir SUNNUFERÐA hafa skipað þeim í
sérflokk hvað gæði snertir og þjónustu. SUNNUFERÐ er trygging fyrir
ánægjulegri og snurðulausri utanlandsferð, undir leiðsögn reyndra farar-
stjóra, sem mörg ár í röð hafa farið sömu ferðirnar, viðurkenndar og vin-
sælar af þeim mörgu þúsundum sem reynt hafa og valið þær ár eftir ár f
mörgum tilfellum. — Og þar að auki fáið þér hvergi meira fyrir peningana.
FERÐAÞJÓNUSTA fyrir einstaklinga og fyrirtæki
Jafnframt hinum fjölsóttu og vinsælu hópferðum SUNNU hefir skrifstofan f
vaxandi mæli annazt ferðaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við gef-
um út og seljum farseðla með flugvélum og skipum um allan heim á sama
verði og flutningafyrirtækin sjálf. Á sama hátt útvegum við hótel og fyrir-
greiðslu hvar sem er í heiminum, og höfum á skrifstofu okkar fjarritunar-
samband (TELEX) við hótel og flugfélög um allan heim. Keynið hina öruggu
og fljótu TELEX-ferðaþjónustu SUNNU fyrir cinstaklinga og fyrirtæki. Og
þér munuð bætast í sívaxandi hóp ánægðra viðskiptavina oklcar á þessu sviði.
FerOaskPífstofan SUNNA
Bankastræti 7. — Símar 16400 og 12070
22. tbi. VIKAN 7