Vikan - 06.06.1968, Blaðsíða 19
merki þess, að hann. fyndi til
hræðslu, heldur þvert á móti.
Georg van Tassel hefur nú
reist musteri í eyðimörkinni
mannkyninu til blessunar. Heim-
sókn geimmannsins átti eftir að
gjörbreyta öllum hugmyndum
hans um lífið hér á jörðinni og
viðhorfi hans til þess. Solgando
hafði sagt honum frá hinum há-
þróaða kynflokki, sem byggi úti
í geimnum.
Georg saknar þess, að hann
skuli aldrei hafa notið æðri
menntunar.
— En, segir hann, — það eru
einfaldir amúgamenn, sem hafa
hlotið stærstu guðsgjafirnar og
komið mestu til leiðar.
Solgando hafði flesta kosti til
að bera. Jafnvel málrómur hans
og talsmáti hafði mikil áhrif á
Georg, sem sjálfur er tágróma
og hlédrægur.
— Aðeins það eitt, að hann
skyldi tala ensku, fannst mér
ævintýralegt, segir hann. Og
hvílík enska! Hann talaði ein-
hverja beztu ensku, sem ég hef
nokkru sinni heyrt.
Maðurinn úr geimnum fór með
Georg um borð í geimskipið. —
Þar voru tveir menn til viðbótar.
—- Ég hef fengizt við flug allt
mitt líf, segir Georg. Á yngri ár-
um mínum var ég tilraunaflug-
maður hjá mörgum félögum. Og
mér fannst geimskipið ekki neitt
merkilegt að innan, en mér var
raunar ekki sýnt það sérstaklega.
Þeir vildu tala við mig; biðja
mig að gera sér greiða.
Þegar líða tók ó samtalið tók
Georg að blygðast sín fyrir
ástandið á jörðinni. Geimmenn-
irnir sögðu, að við værum mjög
vanþroskaðir og lifðum ,í hreinni
svínastíu.
— Allir þrír voru þeir mjög
fullkomnar verur, að mér fannst.
Þeir voru afburða vel vaxnir,
eins og íþróttamenn. Peninga-
kerfi, styrjaldir og sjúkdómar
voru fyrir löngu úr sögunni hjá
þeim. Þeir þurftu ekki einu sinni
að raka sig!
Kunnátta í rafmagnsfræðum er
framtíðarvonin. Það fag kunna
þeir úti í geimnum til hlítar.
— Maður þarf ekki að vera
hámenntaður til að vita, að allri
tilverunni er stjórnað af raf-
orku. Það er að þakka með öllu
óþekktu, allsherjar neti af raf-
eindum, að líkami okkar getur
starfað.
— Ekkert mælir á mói því, að
við getum að minnsta kosti orð-
ið 1500 ára gamlir. Einn af mönn-
um Solgandos fullyrti, að hann
væri næstum 700 ára gamall. —
Hann var útlits eins og 28 ára
gamall jarðarbúi!
Georg hlustaði á tal þeirra og
reyndi að nema speki þessara
óvenjulegu gesta. Síðan byggði
hann musteri sitt nákvæmlega
eins og geimmaðurinn Solgando
hafði fyrirskipað honum. Eins
og vhít hálfkúla gnæfir helgi-
dómurinn upp úr eyðimerkur-
sandinum.
Um þessar mundir vinnur Ge-
org og fjórir lærðir raffræðingar
við innréttingar á musterinu. —
Mannvirkið hefur þegar kostað
milljónir króna. Fyrirskipanir
halda áfram að koma að ofan og
Georg einn tekur á móti þeim.
Hann trúir því, að senn verði
smíði hússins lokið. Eftir eitt ár
munum við geta að hans áliti
gengið í gegnum einar dyr á því
í þess orðs fyllstu merkingu og
út um aðrar — umhlaðin eins
og rafhlaða-
Heima hjá van Tassel er talað
um Solgando eins og einn af
fjölskyldunni, sem allir þekki.
Húsfreyjan styður mann sinn
í þessari einkennilegu baráttu
hans með ráðum og dáð. Geim-
maðurinn batt enda á heilabrot
hennar um trúmál og annað líf.
Þar sem Georg dvelst lengstaf í
músterinu, þá kemur það í hlut
frúarinnar að verða fyrir að-
kasti þeirra, sem ekki hafa trú
á fyrirtækinu.
— Hvað hefur Tassel frændi
frétt nýjast frá fljúgandi disk-
um? spyr unglingur, sem kemur
brunandi á skellinöðru.
Frú Tassel sér um veitinga-
stofu flugvallarins. Hún vinnur
sjálf baki brotnu í eldhúsinu.
Þau hjónin eiga sjö bamabörn,
og tvö þeirra hanga í pilsi ömmu
sinnar. Hún gerir hvort tveggja
í senn að hella upp á könnuna
og líta eftir kökum í ofninum.
Hún lítur þreytulega á ungling-
inn og svarar bitur í lund:
— Reyndu að vera almenni-
legur, strákur! Hvað þýðir að
vera að ergja mig á þessu?
Stjórn félagsins skipa níu menn,
þar af tveir læknar, og þeir ein-
ir fá að koma inn í helgidóm-
inn. Nokkrar peningagjafir hafa
borizt frá einkaaðilum, en bygg-
ingin hefur gengið seint. Hins
vegar mun fólk í framtíðinni
geta leitað þama athvarfs og
öðlazt langlífi.
— Hvernig starfsemiimi verð-
ur háttað í musterinu, þegar
smíði þess er endanlega lokið,
veit ég enn ekki sjálfur, segir
Georg. Ég fékk skipun um að
skipta mér ekki að þeirri hlið
málsins.
— Það eru um 17000 geim-
menn á meðal okkar, segir Ge-
org. Flest er þetta ungt fólk, sem
er hingað komið til að hjálpa
okkur og skipuleggja. Að sjálf-
sögðu sjáum við ekki þetta fólk.
Hann telur mjög nauðsynlegt,
að alir þeir sem vinni við geim-
vísindi og rannsóknir heyri þann
boðskap, sem honum hafi verið
falið að koma á framfæri. Hann
fullyrðir, að enginn þeirra muni
voga sér að kalla hann lygara.
Hann nefnir nöfn á nokkrum
geimförum sem hafi heimsótt
hann oft.
Til að styrkja sannleiksgildi
frásagnar sinnar sýnir Georg
skjal, þar sem hann tilkynnir
stjórnarvöldum um heimsókn
geimfarsins morguninn góða í
ágúst 1953. Sendinefnd sérfræð-
inga var send til Giant Rock með
tæki og staðfesti að loknum mæl-
ingum, að mikil geislun hefði
mælzt, þar sem geimfarið lenti.
Eiginkona Georgs van Tassels segir tveimur blaðamönnum frá hinni ótrúlegu
reynslu manns hennar. Blaðamenn eru tíðir gestir á lieimili þeirra.
Hún kveðst samt trúa statt og
stöðugt á Solgando.
Næstum daglega tekur Georg
sér ferð á hendur til að halda
fyrirlestra. Honum er illa við að
láta taka af sér myndir og hann
vill ekki láta auglýsa sig per-
sónulega. Hann segir, að sér líði
illa í ræðustól, en telur sig skuld-
bundinn til að útbreiða boðskap
Solgandos.
Hann stofnaði félagsskap til
þess að standa straum af kostn-
aði við byggingu musterisins.
Geislunin hvarf ekki fyrr en eft-
ir 28 daga.
í tuttugu ár hefur verið starf-
andi í Bandaríkjunum á vegum
ríkisstjórnarinnar og flugmála-
ráðuneytisins nefnd sérfræðinga
til að rannsaka hina svonefndu
fljúgandi dislca og önnur ókenni-
leg fyrirbæri sem sézt hafa í
lofti. Rannsökuð hafa verið
meira en 11000 fyrirbæri. Þar á
meðal er heill floti, sem sást yf-
ir Washington 1952 og kom fram
Framhald á bls. 50.
22. tw. VIKAN 19