Vikan - 06.06.1968, Qupperneq 33
HARKOLLUR
handunnar, vélunnar, mikið úrval. — Pöntum eftir máli ef
óskað er toupe fyrir dömur og herra.
PEYSUFATAFLÉTTUR
einlitar, grásprengdar. — Peysufataspennur — Bein-hárnálar
Hárnet, gróf og fín — Perluhárnet.
HÁRTOPPAR
mikið úrval, lengd frá 15—60 cm. — Slöngulokkar — Töskui-
fyrir hártoppa.
Statív fyrir hárkollur - hárkollutöskur
lakk - hreinsivökvi - glans og næring
Töskur
fyrir
hártoppa
G. M. iiöin
Þingholtsstræti 3 - Sími 24626
Fall prússnesku ....
Framhald af bls. 25.
hætti svo við laganámið og sneri
sér að hagfræði. En Waltraud fór
til Kiel, til framhaldsnáms, og
þá fór prinsinn að fara þangað.
Þessi ferðalög tóku auðvitað mik-
inn tíma, og kom það niður á
námi hans.
Louis Ferdinand hafði miklar
áhyggjur af því að hann stund-
aði ekki námið, en aftur á móti
var hann ekkert sérlega hress
yfir því að Waltraud var farin
að koma ískyggilega oft til
sveitaseturs Hohenzollerættar-
innar, Wummehof, nálægt Brem-
en. Að lokum ákvað hann að
taka í taumana, — hann bannaði
Waltraud að stíga fæti á heimili
sitt, og þetta bann náði til allra
aðseturstaða fjölskyldunnar. Þeg-
ar hann var búinn að taka af
skarið á þennan hátt, hefir hon-
um líklega verið eitthvað rórra,
því að hann fór í ferðalag til
Bandaríkjanna, með Kiru prins-
essu.
En þegar hann kom heim úr
því ferðalaginu komst hann að
því að ungu hjúin höfðu haft
bann hans að engu, og átt nokkra
sæludaga í Wummehof.
í reiði sinni hótaði prinsinn að
höfða mál gegn Waltraud. En
hún svaraði með því að stilla sér
upp fyrir framan íbúð fjölskyld-
unnar í Berlín, og stara upp í
gluggana. Þjónustufólkið var
sent til að biðja hana að hætta
þessu tiltæki, en hún anzaði því
ekki. Að lokum fékk Louis Ferdi-
nand lögregluþjón til að vísa
henni í burtu.
í janúar 1966 sáust þau Wal-
traud og Friedrich Wilhelm fyrst
saman opinberlega, — það var
á pressuballinu í Vestur-Berlín.
Þetta varð til þess að foreldrar
Friedrich Wilhelms tjölduðu nú
öllu sem til var, til að eyðileggja
sambandið á milli hinna ungu
elskenda, í eitt skipti fyrir öll.
Louis Ferdinand höfðaði til heið-
urs hans sem prússnesks prins,
og skipaði honum að slíta öllu
sambandi við Waltraud.
Án efa vissi Lois Ferdinand
hvað hann var að tala um, þegar
baráttan stóð um hjúskap og
heiður; því að fjörutíu árum
áður hafði hann líka verið ást-
fanginn af borgaralegri stúlku
Það var í Los Angeles, og
stúlkan var Lily Damita, kvik-
myndastjarna. Þau ákváðu að
ganga í hjónaband í Mexico,
því að þar var auðvelt að fá
tilskilin leyfi. En einhvernveg-
in fréttist þetta, og allur þunginn
af heiðri hinna móðguðu Hohen-
zollara féll á hinn óhamingju-
sama Louis Ferdinand, eins og
tonn af grjóti.
Hann reyndi allt sem hann
gat til að telja föður sínum
hughvarf, en það bar engan ár-
angur. Hann yfirgaf Hollywood
og Lily ......
Fjölskyldan lét ekki þar við
sitja. Nú var um að gera að
halda þessu í horfinu, sjá til þess
að Louis Ferdinand héldi sig á
beinni braut. Samkvæmt alda-
gömlum erfðavenjum meðal
tignarfólks í Evrópu, var haf-
izt handa um það að útvega
honum heppilegt kvonfang,
þ.e.a.s. útvega honum konu af
nógu göfugum ættum.
Hohenzollarnir sneru sér til
frú von Mumm, konu hins
þekkta kampavínsframleiðanda.
Frúin hafði yndi af hjúskapar-
miðlun, og margt af hefðarfólki
Evrópu stóð í þakkarskuld við
hana, fyrir frábæra aðstoð í
þessum efnum, án hennar hefði
þetta fólk verið í mestu vand-
ræðum að útvega sér maka, sem
hafði nægilega ættgöfgi til að
bera.
Frú von Mumm bauð Louis
Ferdinand að dvelja á setri sínu,
Johannisberg, við Rín, um helgi.
heimilistrygging
á hvert
ÁBYRCiÐ h.f. býður bindindisfólki ódýra heimilistryggingu.
Fjölbreytta tryggingu fyrir alla fjölskylduna.
Brunafcrygging, vatnstjónstrygging, þjófnaðartrygging,
ábyrgða rtrygging, slysaörorkutrygging o. fl. tryggingar,
allt í einiu skírteini.
ÁBYRGÐ h.f. tryggir aðeins bindindismenn.
Þess vegna fá þeir ódýrari tryggingar hjá ÁBYRGÐ.
Það borgar sig að lifa í bindindi.
Abyrgdp
TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN
Skúlagötu 63 - Reykjavík - Símar: 17455 - 17947
22. tbi. VIKAN 33