Vikan


Vikan - 06.06.1968, Page 34

Vikan - 06.06.1968, Page 34
PÉR SPARID MEDÁSKRIFT ÞÉR SPARIÐ TÍU KRÓNUR Á HVERJU BLAÐI MEÐ ÞVÍ AÐ VERA ÁSKRIFANDI AÐ VIKUNNI OG ÞÉR ÞEKKIÐ EFNIÐ VIKAN ER HEIMILISBLAÐ OG í ÞVÍ ERU GREINAR OG EFNI FYRIR ALLA Á HEIMILINU, — UNGA OG GAMLA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓÐLEIKUR, FASTIR ÞÆTTIR O. FL., O. FL. ----------------KLIPPIÐ HÉR------------------------------------KLIPPIÐ HER-------------------- r Vinsamlegast sendið mér Vikuna í áskrift VIKAN □ 3 MÁNUÐIR - 13 töíubl. - Kr. 400,00. Hvert blað á kr. 30,77. [ í 6 MÁNUÐIR - 26 tölubl. - Kr. 750,00. Hvert blað ó kr. 28,85. Gjalddagar: 1. febrúar— 1. mal — 1. ógúst — 1. nóvember. SKRIFIÐ GREINILEGA SKIPHOLTI 33 PÖSTHÖLF 533 REYKJAVÍK SÍMAR: 36720 - 35320 n i i i Þar var líka annar gestur, Kira, stórhertogafrú frá Rússlandi, frænka síðasta zarsins. Þetta var árangurinn af leynimakki milli Hohenzollara og Romanova, sem héldu því fram að þessir ættingjar þeirra ættu mjög vel saman. Louis Ferdinand og Kira op- inberuðu trúlofun sína á að- fangadagskvöld, árið 1937. Fimm mánuðum síðar voru þau gefin saman í grísk-kaþólsku kirkj- unni í Potsdam. Svo voru þau aftúr vígð 4. maí 1938, í mót- mælendankirkjunni í Doorn í Hollandi, heimili hins landflótta keisara, Wilhelms II. Fyrsti sonur þeirra fæddist 9. febrúar 1939. Louis Ferdinand vildi skíra drenginn í höfuðið á sjálfum sér, en gamli keisar- inn neitaði því harðlega, hann sagði að það yrði að skíra drenginn eftir hefðbundnum venjum, Friedrich Wilhelm. Lois Ferdinand beygði sig fyrir erfðavenjunum og hinum upp- stökka, gamia keisara. Tuttugu og sjö árum síðar endurtók svo sagan sig. Friedrich Wilhelm varð ástfanginn af borgaralegri stúlku, eins og fað- ir hans, en Hohenzollarnir höfðu annað kvonfang í huga. Nú var ekki leitað út fyrir fjölskylduna um aðstoð, Kira prinsessa ætlaði sjálf að sjá um þetta. Stúlkan sem hún hafði í huga var Helene Kirby, dóttir stóriðju- hölds af Gyðingaættum. Hann dó í þýzkum fangabúðum, árið 1945. Móðir Helene var Leonide prinsessa .afkomandl gamallar rússneskrar aðalsættar. Síðari maður Leonidu var Vladimir, ættarhöfðingi Romanovættar- innar og bróðir Kiru pripsessu. Það var heldur ekki lakara að Helene, sem var amerískur rík- isborgari, átti mikinn arf í vændum. En það fer oft margt öðru vísi en ætlað er, jafnvel þótt það séu konunglegar prinsessur, sem leggja á ráðin. Foreldrar Frederich Wilhelms vildu að hann tæki sér flugfar til Parísar, til að heimsækja Helene, en hann tók aðra flugvél, til Hamborgar, til að hitta sína heittelskuðu Waltraud Frey- dag. Meðal farþeganna var ind- verskur læknir, og um leið og hann steig út úr vélinni í Ham- borg, var hann stöðvaður af heilbrigðisyfirvöldum Vestur- Þýzkalands, sem héldu því fram að hann væri bólusóttarsmit- beri. Daginn eftir var þessi saga á forsíðum allra blaðanna. „Friedrich Wilhelm bólusóttar- prins“, stóð með stórum stöf- um á forsíðu „Bild Zeitung“. Það kom þó síðar á daginn að þetta var ekki rétt; Friedrich Wilhelm hafði ekki komið ná- lægt hinum grunaða lækni. 34 VIKAN 22-tbl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.