Vikan


Vikan - 06.06.1968, Qupperneq 47

Vikan - 06.06.1968, Qupperneq 47
w KERFILL Sé um litla ræktun að ræöa, má nota litla kassa til aJB sá í sem vemireit, draga plastpoka yfir og hafi veriö vökvaö lauslega áöur, ]>arf ekki aö vökva undir plastinu fyrr en plönturnar eru aö byrja aö lcoma upp. Þær eru síöan færöar í litla moldarpotta, sem settir eru beint niöur í jöröina, fiegar réttur tírni er kominn til þess. Pottarnir leysast upp í jöröinni og ræturnar smjúga hægleg i gegn. GRÆNKÁL Grœnkál er sérlega bætiefnaríkt og hefur mikiö næi'ingargildi. Þaö má dreifsá því snemma á vori og tekur baö 7—8 vikur aö veröa aö lágri breiöu af grænum blööum. Sé þaö sótt til daglegrar notkunar í garöinn ætti ekki aö skera alla jurtina, héldur tína neöstu og fullvöxnu blööin og leifa jurtina þannig aö vaxa áfram. Því má líka sá i sól- eöa vermireit og gróöursetja svo í raöir meö 50 cm millibili og 25 cm bili milli jurta. Grænkál getur staöiö úti fram á vet- ur og þolir frost. SPÍNAT Spínat er auöræktaö og fljótvaxiö á bersvœöi, og má tína af því blöö 6—8 vikum eftir sáningu. Beztu blööin eru bau, sem sitja neöarlega og sjálfur blaáhrifillinn fyrir ofan rótina. Blöö- in út frá blómstönglunum eru ekki eins góö. Þaö vex fljótt úr sér og visnar, þess vegna er gott aö sá til bess nokkrum sinnum á sumri. Gott er aö sá þvt í raöir eöa dreifsá og þurfa elcki aö vera nema 5 cm bil milli plantna. Afbrigöiö Kongen av Danmark þykir liafa hafa gefizt vel hér á landi. .PIPARMENTA OG HROKKINMENTA Báöar tegundir þrífast liér vel. Venju- lega fjölgaö meö skiptingu. Blómin smá °g blá aö lit. Blööin notuö í mat, t.d. hlaup meö kjöti og t ýmsa drykki. VERMIREITUR Aöállega tvö afbrigöi, hrokkinblaöákefill og álmennur kefill. Getur vaxiö í skugga og fremur þurrum jarövegi. SáÖ á bersvœöi og þann síöarnefnda má fara aö nota 6—8 vikum eftir sáningu, en hinn nokkru seinna. Blööin eru skorín af og jurtin látin hálda áfram aö vaxa. Þegar hann fer aö blómstra veröa blööin ekki eins meyr, þess vegna er bezt aö sá tvisvar á sumri, til þess aö geta notaö hann fram á haust. Hægt er aö sá kerfil í kassa seint á sumri og nota þær Plöntur um veturinn. Kassarnir þá látnir standa í birtu og yl. SPÁNSKUR KERFILL Hónum má bæöi dreifsá og fjölga meö skiptingu, venjulega sáö snemma vors eöa aö hausti, því frœiö liggur í dái um vet- urinn. Bezt er aö sá í sólarreit og ungjurtum háldiö á góöum staö um sumariö, en ársgömlu plönturnar síöan gróöursettar þar sem þær eiga aö standa, millibil ca. jO cm. Blaöavöxt- urinn veröur meiri, ef blóm- stönglarnir eru skornir burt, en fái þeir aö standa, sáir plantan sjálf og þarf aö hafa hemil á því. Ræktaöur vegna blaöanna, en í Frákklandi er rótin lika notuöu, soöin í súpur. PIPARROT Þaö getur veriö prýöi aö piparrót, en þær blómstra hvítum blómum. Þeim er fjölgaö meö rótaröng- um, stundum haföar sem eins árs jurtir eöa látnar standa 2—3 ár á sama staö. Aöálrótin er tekin til notkunar og 'hliöarrótunum safnaö til niöursetningar eöa látnar standa áfram. Sé þeim safnaö saman, eru þær geymdar i mold úti eöa sand inni á köldum staö. SáÖrœtur ættu aö vera aö gildleika líkt og litli fingur og mega vera állt aö kO cm langar, en ekki styttri en 30 cm. Rœt- urnar eru settar á MiÖ niöur, efri endinn lítiö eitt upp á viö, en sá neöri niöur á viö, efri endinn 3 cm undir yfirboröi. Hæfilegt bil er 50 cm miUi róta. AÖalrótin, sem notuö er, ætti aö vera nokk- uö jafndigur aö ofan og neöan og ekki meö og mörgum rótaröngum. Þess vegna er bezt einu sinni á sumri aö losa moldina viö rætur ungu plantnanna og strjúka þær meö ullartusku skammt fyrir neöan blööin og eins langt og veröur komizt niöur, en þó ekki skeröa aukarótirnar, sem eiga aö vaxa niöur. 22. tbi. VIKAN 47

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.