Vikan - 25.07.1968, Side 2
TROPIC - TAN
Heildsölubirgðir:
FRIÐRIK BERTELSEN
Laufásvegi 12 — Sími 36620
sólarolía og lotion gerir yður eðlilega brúna á styttri tíma
en nokkur önnur sólarolía.
TROPIC-TAN sólaráburður er seldur og notaður um allan
heim við geysilegar vinsældir.
Sannfærist og kaupið TROPIC-TAN.
TROPIC-TAN fæst í öllum lyfja- og snyrtivöruverzlunum
um land allt.
Þjóðin gegn
stjórnmálamönnum
Að undanförnu hefur mönn-
um orðið tíðrætt um, hvort
það sé raunverulega rétt, að
þjóðin og stjórnmálamennirn-
ir séu fjandmenn — hvort það
geti verið satt, að fólkið í
landinu hafi rótgróna andúð
á stjórnmálum og stjórnmála-
mönnum. Einhverrar breyt-
ingar sýnist þörf í stjórn-
málaheiminum hér, ef marka
má þá vísbendingu, sem tal-
in er fólgin í úrslitum for-
setakosninganna.
Og það er víðar en hér, sem
ný andlit og ný framkoma
vinnur á í kosningum. f Kan-
ada, þar sem Trudeau vann
glæsilegan sigur í kosningun-
um í sumar, maður með
ævintýralega fortíð og til þess
að gera nýr í stjórnmálum -—
það eru ekki nema þrjú ár
síðan hann hóf afskipti af
þeim. En hann kom óvenju-
lega fram af stjórnmála-
manni að vera; hann skeytti
ekki um að vera hátíðlegur og
alvarlegur, heldur hló og ærsl-
aðist og þegar mannfjöldinn
flautaði, stakk hann fingrun-
unum upp í sig og svaraði í
sama. Hann er heilsuræktar-
maður og stakk sér hiklaust í
laugar með kjósendum og lék
á alls oddi, og á þessu m.a.
vann hann frægan sigur.
Seint á fimmta tug aldar-
innar fór Trudeaus í heims-
reisu og lenti þá í glæpa-
mönnum í Egyptalandi,
byltingarmönnum kommún-
ista í Kína og sjóræningjum á
Indlandshafi. Eitthvað er ó-
ljóst með hlutdeild hans í
hinni misheppnuðu innrás
Bandaríkjamanna á Gæsaflóa
á Kúbu, en aðspurður um slíkt
fyrir kosningar svaraði hann
ýmist út úr eða tómri þvælu.
Hann kemur mönnum líka á
óvart á ýmsan hátt, svo sem
með því að mæta í neðri deild-
inni í úlpu og sandalaskóm.
Hvenær breytist svo við-
horf íslendinga til stjórnmála-
manna sinna? Ætli það verði
fyrr en þeir fara að blístra á
framboðsfundum og spranga
um á gylltum, hælaháum
skóm með síða lokka? S.H.
2 VIKAN 29- tbl-
ru||M DDfl?
fVinu DnUð
IÞESSARI vikd
BERST FYRIR AFNÁMI KYNÞÁTTAMISRÉTTIS . . BIs. 4
PÓSTURINN ......................... Bls. 6
SMÁEFNI............................ Bls. 8
í SJÓNMÁLI ........................ Bls. 10
MARTRÖÐIN, SMÁSAGA ................ Bls. 12
HLÁTURINN ......................... BIs. 14
EFTIR EYRANU....................... Bls. 16
APAR KOMNIR AF MÖNNUM ............. Bls. 18
ANGELIQUE OG SJÓRÆNINGINN ......... BIs. 19
HVERNIG HINIR RÍKU HALDA SÉR UNGUM . . Bls. 21
LÁTÚNSHNAPPUR Á VARBERGI OG DÓSIN, SEM
GAT VERIÐ TÍMASPRENGJA ............ Bls. 24
VIKAN OG HEIMILIÐ ................. Bls. 46
VÍSUR VIKUNNAR:
Síldin er útum allar trissur
og illt með gjaldeyrisforðann.
Sem stundum fyrr er nú hart í heimi
og hafísþök fyrir norðan.
En borgin við Flóann hlýtur vegsemd
sem vart hlotnast öðrum bæjum:
Þá hallar sumri er hermt hún verði
að húnvetnskum engjaslægjum.
SKRÝTIN LYKT
Bóndasonur úr Húnavatnssýslu trúlofaðist stúlku úr Reykja-
vík og fór með hana í kynnisheimsókn norður. Stúlkunni þótti
allt þar heldur ófínt og kunni illa við lyktina í bæjarhúsinu,
sem var komið nokkuð til ára sinna. Um daginn hafði hún
smáfundið að einu og öðru, og um kvöldið, þegar hún sat inni
í eldhúsi, sagði hún: — Voðalega er skrýtin lykt hér. Hún er
eins og af sviðinni málningu.
Þá svaraði tengdapabbi tilvonandi:
Það kann að vera, og kannski ættirðu ekki að sitja með
andlitið svona nærri eldavélinni, stúlka mín.
FQRSÍÐAN:
Æ meiri dirfslcu gætir nú í vali háralitar og engin minnkun
þykir lengur að ganga með litað hár. Hjónin á forsíðunni hjá
okkur núna hafa þrauthugsað sína liti og eins og sjá má, hefur
barnið fengið jafnt af háralit beggja foreldranna.
VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaða-
maður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson.
Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir.
Ritstjóm, auglýsingar, afgreiSsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 —
35323. Pósthólf 533. Verö í lausasölu kr. 40.00. Áskriftarverð er 400 kr.
ársfjórðungslega, eða 750 kr. misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrir-
fram. Gjalddagar eru: Nóvemher, febrúar, maí og ágúst.
ntJESTD
■viKUa
í næsta blaði heldur Dagur
Þorleifsson áfram að segja frá
stjörnumerkjunum, og að
þessu sinni fáum við að vita
allt um þá, sem fæddir eru í
ljónsmerkinu. Þar segir hann
meðal annars: „Eins og hrút-
urinn heyrir ljónið til þeirr-
ar þrenningar í dýrahringnum,
sem eldinum er tengd. Þriðja
eldmerkið er bogamaðurinn.
Segja má, að hrúturinn tákni
neistann, hitann, ljónið loga
og ljós, bogamaðurinn glóð
og bráðnun. Eldur hrútsins er
upprunalegur og ótaminn, eld-
ur ljónsins hins vegar beizl-
aður miðstöðvareldur, sem
gefur orku og hita til allra
hliða.“
Vegir Iiggja til allra átta
heitir grein í samantekt And-
résar Indriðasonar, þar sem
hann segir frá því helzta, sem
félagssamtök hafa á prjónun-
um í sambandi við skemmtan-
ir um verzlunarmannahelgina.
Og að sjálfsögðu er þáttur
hans. Eftir eyranu, fjölbreytt-
ur að vanda.
Þá er sagt frá stúlku, sem
varð fyrir því óláni í sam-
bandi við uppskurð, að í henni
gleymdist hnífur og leið á
löngu, þar til það uppgötvað-
ist. Ekki má gleyma fram-
haldssögimum, Angelique og
Hlátrinum, svo er rúsínan í
pylsuendanum: Sumarsagan
Michael, úr safni Hitchcocks,
samfelld saga á sjö síðum.
29. tbi. VIKAN 3