Vikan


Vikan - 22.08.1968, Síða 7

Vikan - 22.08.1968, Síða 7
! enda hafa sent þér drauma til ráðninga. Vil ég nú ekki verða eftirbátur þeirra, þótt Vikan sé auðvitað engin draumráðningabók, og sendi þér einn, sem fer hér á eftir: Mig dreymir, að ég sé stödd í einhvers konar fyrrverandi fjósi eða hlöðu. Eg ligg bundin á gólfinu ásamt fleira fólki, þar á meðal foreldrum mínum. Það ó að skjóta allt fólkið. Sg sé ekkert fólk að vísu, en finn að það er þarna. Mig langar ekkert til að deyja. Svo slitnar þetta allt úr samhengi og næst er ég stödd að húsabaki hjá mér. Nú er það bara ég, sem á að skjóta. Ég stend þarna óbundin og alein. Eg er hálfgrátandi, búin að kveðja foreldra mína, en þau eru þó ekki stödd þarna. Eg er óhress yfir þessu og tauta við sjálfa mig: „Eg vil ekki deyja! Eg vil ekki deyja!“ Allt í einu kemur mað- ur aðvífandi. Án þess að hann segi nokkuð veit ég, að þetta er maðurinn, sem á að skjóta mig. Aftur segi ég, að ég vilji ekki deyja. Maðurinn stendur fyrir framan mig, án þess að segja eitt einasta orð. En skyndilega hætti ég að gráta og segi: „Úr því að ég á að deyja, verður það svo að vera.“ Því næst bið ég mann- inn að ljúka þessu sem fyrst af. En þá gengur hann til mín og bendir mér að fara, hvað og ég gerði. Basta. Eg þakka fyrir ráðning- una fyrirfram. Ragga. Þessi draumur virðist í fljótu bragði vera uggvæn- Iegur en það er alls ekki víst að hann sé svo slæm- ur. Að vísu er oftast slæmt að dreyma byssu. Það boð- ar venjulega ósamkomulag og eitthvað mótdrægt fyr- ir skyldmenni og aðstand- endur. Að verða fyrir skoti úr byssu táknar hins veg- ar happ, og að dreyma að maður sé í gripahúsum, fjósi eða hestliúsi, boðar gæfu og gengi. Fjós get- ur líka táknað gjöf eða góðar fréttir. Að þessu at- huguðu ráðum við draum- inn á þann veg, að eitt- hvað gerist í lífi þínu, sem þú tekur afskaplega nærri þér í fyrstu. Þú heldur, að V heimur þinn sé að hrynja í rúst. En eftir stuttan tíma kemstu að raun um, að það sem þú óttaðist var ástæðu- laust, og hlutskipti þitt er alls ekki svo slæmt, þegar allt kemur til alls. ÁSTARSORGIR OG ANDAGLAS Kæri Póstur! Eg hef mjög mikinn áhuga á að láta lesa úr skrift minni og vona, að þú getir gefið mér upplýsing- ar í sambandi við það. — Einnig ætla ég að biðja þig að segja mér eitthvað frá Julie Andrews leikkonu. Og að lokum: Blessaður bentu fólki á, að skrifa Póstinum um eitthvað ann- að en slappa maga og brjóst, megrunarkúra, ást- arsorgir og annan álíka bé- vítans ófögnuð. Á. H. S. PS. Er eitthvað til í þessu með andaglasið? Ef svo er, hvernig á þá að fara að? Frú Unnur Þorsteinsdótt- ir, Hofsvallagötu 19, Rvík, er eini starfandi rithand- arsérfræðingurinn hér á lanði. Við birtum viðtal við hana fyrir nokkrum vikum. Þar færðu að vita allt um rithandarlestur. — Einnig birtist fyrir nokkru grein um Julie Andrew, svo að við verðum að minna þig á að lesa Vik- una betur. Lesendur Pósts- ins láta ekki segja sér, um hvað þeir eigi að skrifa. Þeir skrifa um það, sem þeim liggur á hjarta, og við biðjum þá að halda áfram að gera það. f stað- inn fyrir að lesa þennan „bévítans ófögnuð" getur þú stytt þér stundir við áð fara í andaglas. Það er gert þannig: Pappír er sett- ur á borð og stafrófið skrif- að á hann í hring. Síðan setjast tveir, þrir, fjórir eða fleiri við borðið og leggja allir fingurgómana á vatnsglas. Ef einhver kraftur er í fólkinu, fer glasið á augabragði að hreyfast og stafar hvert orðið á fætur öðru. Þetta getur verið ærið spenn- andi, þ. e. a. s. ef leikurinn æsist ekki og borðið tekst á loft! * Ronson HARÞURRKA HEIMILANNA TILVALIN TÆKIFÆRISGJÖF EINKAUMBODi I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVlK ”■ «“• VIKAN 7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.