Vikan - 22.08.1968, Blaðsíða 15
Vinsælir vestanshafs
Telja má víst, að engin brezk hljómsveit hafi hlotið jafn miklar
vinsældir í Bandaríkjunum og Hermans Hermits — og eru þá
Bítlarnir líka hafðir í huga. Hljómsveitin hefur tiltölulega lít-
ið látið að sér kveða í Bretlandi hin síðari ár, einfaldlega sök-
um þess, að þeir félagarnir hafa verið í Bandaríkjunum á þön-
um út og suður, við hljómleikahald, við sjónvarps- eða kvik-
myndaupptökur. Þó hafa af og til komið frá þeim plötur á
brezkan markað, sem náð hafa miklum vinsældum, t. d. lagið
um syfjaða Jóa, Sleepy Joe, sem notið hefur fádæma vinsælda
hérlendis að undanförnu. Hermann •—• eða Peter Noone, eins
og hann heitir réttu nafni — á líka marga aðdáendur hér, eftir
komu hans hingað til lands fyrir u. þ. b. tveimur árum. En
Hermann sýslar við fleira en að syngja lög. Nýlega var opnuð
fataverzlun í New York, sem hann er eigandi að. Verzlunin,
sem heitir Zoo, hefur á boðstólum fatnað við hæfi táninga,
eins og vænta mátti.
Scott vin
sælastur
Brczkt unglingablaS cfndi nýlega til skoðanakönnunar mcðal lesenda sinna um það,
hver væri vinsælasti hljómlistarmaðurinn í Bretlandi á þessu ári. Úrsiitin urðu á
þann veg, að Scott Walkcr, sá er áður söng með Walker Brothers, hlaut langflest at-
kvæði — cða 2.943. Scott er sem kunnugt er Bandaríkjamaður. Eftir að hann hætti
mcð Walker Brothers hefur hann sungið inn á nokkrar hljómplötur og komið víða
fram sem einsöngvari, og cins og glöggt má ráða af skoöanakönnuninni nýtur liann
gífurlcgra vinsælda meðal brczlcra unglinga. í öðru sæti í skoðanakönnuninni var
Pcter Frampton úr hljómsveitinni Hcrd. Hann hiaut 1.851 atkvæði. Númer þrjú varð
Davy Joncs úr Monkees með 1.541 atkvæði.
Scott Walker þykir nokkuð sérvitur náungi. Honum cr til dæmis mcinilla við að
fara flugleiðis milli landa. í ágústbyrjun fór hann í liljómlcikaferð til Japan, og tók
fcrðalagið frá Bretlandi alls um prjár vikur, því að alla leiðina fcrðaðist hann með
járnbrautarlcst'. Að vísu staldraði hann við i Moskvu og Leningrad til þess að heilsa
upp á kunningja, en bann tíma, sem hann var á fcrðalaginu ætlaði hann að nota til
að semja lög fyrir næstu hæggengu hljómplötuna sína.
33. tbi. VIKAN 15