Vikan - 22.08.1968, Qupperneq 30
Móðir, sem er heima og sýslar og börn og buru
er með tilliti til þeirrar vinnu, sem hún innir af
hendi, verð meiri launa en þeirra, sem maki
hennar vinnur fyrir.
.Svo segir að minnsta kosti enskur þjóðhagfræðingur, Colin
Clark, rektor í hagfræðideild háskólans í Oxford. Eftir margra
ára rannsókn hefur hann fundið formúlu til að reikna út
sanngjarnt kaup handa heimafrúnum eftir. Hann fer eftir
þjóðartekjunum með tilliti til þess, hvað þjónustulið myndi
kosta.
Niðurstöður hans eru upplífgandi fyrir heimakonurnar; ]>ótt
þær fái ekki þau laun, sem hann reiknar þeim, geta þær þó
altént hughreyst sig með því, hve dýrmætt starf þær inni
af höndum.
Samkvæmt niðurstöðum hans kostar 85.000 krónur á ári
að luigsa um barn undir fimm ára, 63.000 að sjá um barn
rnilli fnnm og fjórtán ára, og 28.500 fyrir fullorðna, það er
að segja yfir 14 ára.
Með þessum reikningi ætti kona, sem er heima og hugsar
uin mann sinn og tvö börn undir fimm ára, að hafa fyrir
það 190.500 krónur á ári, eða 16.625 — krónur á mánuði!
Sé það meðtalið, að hún hugsar cinnig um sjálfa sig, og
sparar manni sínum þar með útgjöld af því, ætti hún að hafa
228.000 — á ári alls, eða 19.000 — krónur á mánuði! Báðar
þessar upphæðir eru meira en mörg fyrirvinnan hefur í kaup.
Colin Clark, sem sjálfur er níu barna faðir, segir, að ef borga
ætti heimakonunum sannvirði fyrir það, sein þær inna af
höndum, mvndu flest núverandi þjóðhagskerfi hrynja í rúst.
Starf konunnar er mest virði, meðan hún lítur eftir ung-
börnum og óvitum allt að fimm ára. Börn á bamaskólaaldri
þurfa líka rnikla umönnun og eftirlit, en úr því fer fyrirhöfnin
að verða minni.
Colin Clark álítur sig eina hagfræðinginn í heiminum, sem
sýslar um heimavinnu kvenna, og hann telur, að ekki Hði
á löngu, þar til óhjákvæmilegt verður að taka upp einhverjar
kaupgreiðslur til húsmæðra. Sú þjónusta, sem þær inna af
hendi, verður stöðugt dýrari, ef þarf að kaupa hana að, segir
hann, og það er óforsvaranlegt að ganga svo fram hjá hús-
mæðrunum að þær sjái verka sinna engan stað í buddunni.
En hinu hefur hann gleymt að gera grein fyrir: Hver á að
borga þeim?
SONUR 5 ÁRA SONUR 7 ÁRA
DÓTTIR 3 ÁRA DÓTTIR 5 ÁRA
205.500 kr. 183.000 kr.
SONUR 16 ÁRA SONUR FLYTUR
DÓTTIR 14 ÁRA DÓTTIR GIFTIST EKKJA
114.000 kr. 57.000 kr. 28.000 kr.
30 VIKAN 33- tbl'