Vikan


Vikan - 22.08.1968, Side 34

Vikan - 22.08.1968, Side 34
PÉR SPARID MEDÁSKRIFT ÞÉR SPARIÐ TfU KRONUR A HVERJU BLAÐI MEÐ ÞVf AÐ VERA ASKRIFANDI AÐ VIKUNNI OG ÞÉR ÞEKKIÐ EFNIÐ VIKAN ER HEIMILISBLAÐ OG í ÞVÍ ERU GREINAR OG EFNI FYRIR ALLA Á HEIMILINU, — UNGA OG GAMLA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓBLEIKUR, FASTIR ÞÆTTIR O. FL., O. FL. KLIPPIÐ HER----------------------------------------KLIPPIÐ HER r Vinsamlegast sendið mér Vikuna í áskrift □ 3 MÁNUÐIR - 13 tölubl. - Kr. 400,00. Hvert blc.8 á kr. 30,77. □ 6 MÁNUÐIR ■ 26 tölubl. ■ Kr. 750,00. Hvert bla8 á kr. 28,85. Gjalddagar: 1. febrúar — 1. maí — 1. ágúst — 1. nóvember. SKRIFEÐ GREINILEGA VIKAN SKIPHOLTi 33 PÖSTHÖLF 533 REYKJAVÍK SlMAR: 36720 - 35320 n i i i j myndi ekki taka í gikkinn. Þessi ákveðni svipur á andliti manns- ins var orðinn að einhverskonar örvæntingu. Eldsnöggt sneri hann byssunni við í hendi sér svo hún varð aftur eins og kylfa. — Brellur duga ekki að þessu sinni, félagi, sagði hann. — Að þessu sinni er ég undir það þú- inn. Það var verst að þú skyldir ekki nota skynsemina. Hann tók undir sig stökk og var kominn að Peter í einu vettfangi. Peter vissi, fyllilega rólegur, að nú myndi hann ekki standast honum snúning. f gamla daga myndi hann hafa getað reitt sig á fimi sína til að víkja sér undan, slá til baka, bera af sér og dansa. Nú var hann hlekkjaður á plast- fótinn og varð að berjast þar sem hann var. Hann einbeitti sér aðeins að einu höndinni með byssunni, sem var reidd eins og hamar. Þegar hún kom ofan yfir höfuð hans greip hann úlnliðinn með báðum höndum og sneri snöggt upp á. Joe rak upp öskur og byssan rann frá þeim, þvert yf- ir gólfið. En í sama bil kom vinstri hönd Joes eins og sleggja fyrir óvarðar bringspalir Peters, honum sortnaði fyrir augum, hann fann hvernig honum þvarr máttur. Hann laut höfði og lamdi af alefli með báðum höndum í kvið Joes. Það var eins og að slá í steinvegg. Svo slokknaði honum öll vitund undan handar- jaðri Joes, sem hann fékk utan- vert á hálsinn, hann fann ekki einu sinni þegar hann skall í gólfið.... Peter fannst sem hann synti í myrkri og loks náði hann landi. Eitt andartak mundi hann ekki hvar hann hafði verið eða hvar hann var. Svo rifjaðist það allt upp fyrir honum. Hann reyndi að opna augun og fann að hann gat það ekki. Eitthvað blautt og þungt lá yfir þeim. Hann reyndi að lyfta öðrum handleggnum og það gat hann. Hann kom við blautt handklæði sem lá yfir augun og ennið á honum. Hann reyndi að hreyfa höfuðið og fann ís sér við háls. Hann lyfti hand- klæðinu og horfði þá í kvíðafull augu Söndru. Hann reyndi að setjast upp og stundi. Það var eins og logi í höfði hans og hann hafði þungar þrautir í hálsinum og handleggnum. — Joe? — Niðri ásamt Macklyn lög- regluforingja og Sam og herra Kramm frá verksmiðjunni, sagði hún. — Svo lögregluforinginn komst hingað í tæka tíð, sagði Peter. Nú tókst honum að setjast upp með erfiðismunum. — Þeir eru að bíða eftir Ho- ward, sagði hún og varir hennar skulfu. — Þeir sendu tvo lög- regluþjóna á sjúkrahúsið að ná í hann. Framhald á bls. 39 34 VIKAN ^3-tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.