Vikan


Vikan - 22.08.1968, Side 41

Vikan - 22.08.1968, Side 41
verið að spila Nótt á nöktum fjöllum hefði allt getað snúizt á annan veg. En eins og Robert var nú skapi farinn sá hann ekki þetta einstaklega góða módel, sem hafði gert svo mikið fyrir fyrirtækið; hann sá stúlku með ofurlítið rjóðar kinnar, rauðan munn og augu, sem voru ein- kennilega heillandi samblanda af grænu og heslibrúnu. — Fara? spurði hann þrumu- lostinn. — Atvinnuleyfi mitt er að renna út. Ég held að það sé kom- inn tími til að ég haldi áfram til Parísar. — Parísar? Robert gat ekki annað en bergmálað. — Það var hugmyndin, þegar ég kom hingað fyrst, en það var svo stórkostlegt í London að ég hef verið hér lengur en ég ætl- aði. — Hvað ætlarðu að gera í París? spurði hann að lokum. — Það sama. Ég veit um tízku- ljósmyndara, sem hefur verkefni handa mér. Þetta var í fyrsta sinn, sem hann gerði sér ijóst hvað hún hafði snöggan og ríkan hlátur. — Það er tilbreyting frá því að sýna alltaf sama blettinn á mér. — En ég vil ekki að þú farir, Sc-gði Robert. Það sem meira var. Hann vildi ekki að hún kæmist í bland við annað fólk. Hann var afbrýði- samur. Hún og hans fínasta fram- leiðsluvara voru eitt. Það var óhugsandi að hún léti þukla á sér og ýta sér til og gera tilraun- ir með sig fyrir lágkúrulegan fjárhagshagnað, manna með minni ráðvendni en hann sjálfur. — Þetta er fallega sagði, sagði Harriet. — En ég verð að fara. Ég býst ekki við að ég fái at- vinnuleyfi lengur. Robert dró djúpt andann: — Borðaðu með mér í kvöld. — í kveðjuskyni? Þú ert reglulega sætur! Meðan Robert var að hafa fata- skipti þetta kvöld tók efinn að herja á hann. Hvað vonaðist hann til að vinna með þessu matarboði? Hann hafði enga fasta áætlun. Það skap, sem hann hafði verið í um daginn var nú að breytast og hann var í þann veginn að verða var um sig og fullur sjálfsgagnrýni. Ósjálfrátt kveikti hann á útvarpinu. BBC3 var rétt að byrja á óper- unni Tristan og Isold eftir Wagn- er. Snögg tónbrigði komu Ro- bert til að grípa andann á lofti. Önnur tónbrigði voru eins og hnefahögg fyrir bringspalirnar. Hann lagði af stað til móts við Harriet og vissi nákvæmlega hvað hann ætlaðist fyrir. Hann var hræddur en ákveðinn. Þau voru lengi að borða og hún sagði honum frá bernsku sinni og draumum og hvað hún ætlaðist fyrir. Hana langaði að verða listmálari. Vissi hann það ekki? Um hríð hafði hún verið fatateiknari að atvinnu — nei hún var ekkert hrifin af því að teikna föt — og einhvern veg- inn hafði það staðið henni fyrir þrifum í sambandi við málara- listina. Já, hún hafði gaman af tónlist, en skildi hana ekki, en málaralist. ... ? Robert varð að játa að honum þótti gaman að því, sem honum þótti gaman að, þótt hann skildi það ekki. Þau hlógu bæði. Hann lagði fyrir hana spurningar og hún talaði margt fleira og hann hugsaði um það hvað það væri fallegur músíkalskur hreimur í röddinni. Hann bauð henni með sér heim að lokum til að fá sér kaffiboila. Hún hefði ekki þegið það, hefði hann ekki sannfært hana um að foreldrar hans væru heima. Hann kynnti hana fyrir þeim, þau tók- ust öll í hendur og drukku öll kaffi. Robert kveikti á útvarp- inu, síðasti þáttur Tristan og Isold var að deyja út. (Þetta er mjög, mjög löng ópera). Robert og Harriet horfðu hvort á ann- að, bárust með á vængjum tón- listar, ástar og dauða. Þegar hann ók henni heim, sagði hann henni að hún gæti orðið um kyrrt í Englandi ef hún giftist Englendingi og Harr- iet sagðist ekki hafa hugsað út í það. Hann bað hana að hugsa út í það og hún sagðist myndi gera það. Næsta dag samþykkti hún að giftast honum. — En ekki vegna þess að með því móti get ég verið kyrr í Englandi, sagði hún. — Ég ætla að vera kyrr í Englandi svo ég geti gifzt þér. Rétt? — Rétt, sagði Robert, sem var 33. tbi. VIKAN 41

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.