Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 5
mínum síma í sambandi
við hans; farið síðan í ann-
an síma og hringt í Lands-
símann og spurt hvaða
símanúmer minn sími væri
i sambandi við. Er þetta
rétt? Svaraðu mér fljótt og
vel, því mig langar svo
ákaft til að vita, hver hann
er eða öllu heldur, hvern-
ig hann lítur út. Ég ímynda
mér, að hann sé hár og
grannur, dökkhærður og
svolítið viðkvæmnislegur
á svipinn. En kannski lít-
ur hann allt öðruvísi út!
Með fyrirfram þakklæti.
Rósa.
Atarna var skrítin og
skemmtileg ástarsaga. Það
leynir sér ekki, að þú ert
á góðri leið með að verða
bálskotin í manninum.
Bara að hann sé nú ekki
forljótur og kvæntur í til-
bót! Það er líklega rétt, að
liægt sé að halda sambandi
við númer á þann hátt,
sem þú lýsir í bréfi þínu.
En ef þú ert orðin hrifin
af lionum, skaltu ekki hafa
í frammi neinar lögreglu-
aðferðir. Hann kynni að
styggjast og hætta að
hringja í þig. Þú skalt
heldur bíða og sjá hvað
setur. Ef hann hefur ein-
hvern áhuga, hlýtur hann
að svipta af sér hulunni
fyrr eða síðar. Kannski
býður hann þér í mat á
Hótel Sögu og- þar færðu
að sjá liann í fyrsta sinn.
Það gæti orðið býsna
spennandi!
í ALDINGARÐI ÍSLENZKR-
ARTUNGU
Kæri Póstur!
Við erum í heldur slæmu
skapi, vinkonurnar, og höf-
um fyllstu ástæðu til þess.
Það er skopazt að okkur
fyrir að tala rétt, fallegt og
gott íslenzkt mál!
Það fer í taugarnar á
okkur, þegar sagt er t. d.
banani, appelsína, tómatur,
kartafla, sítróna, apríkósa
o. s. frv. Hvers vegna er
ekki sagt bjúgaldin í stað-
inn fyrir banana, rauðald-
in í staðinn fyrir tómata,
eyraldin í staðinn fyrir
apríkósur og þar fram eft-
ir götunum?
í okkar góða sjónvarpi
eru auglýsingar um ban-
ana; í blöðunum er talað
um tómata á lágu verði, og
á jarðeplapokunum stend-
ur kartöflur.
Málið mundi stórbatna,
ef það stæði til dæmis
jarðepli á jarðeplapokun-
um. Þar að auki er miklu
fallegra að segja jarðepli.
í blessaðri íslenzku mál-
fræðinni stendur ekkert
um þetta.
Jæja, við vonum, að þú
skiljir okkur og birtir
þetta bréf. Og að lokum,
kæri Póstur, hvað á að
skrifa í staðinn fyrir P.S.?
Tvær, sem eru orðn-
ar að athlægi fyrir
íslenzkuna.
Ekki vitum við, hvort
þetta bréf er skrifað í
gamni eða alvöru. Altént
er i'átítt, að ungar stúlkur
hugsi svona vel um aldin-
garð íslenzkrar tungu. En
vissulega er það góðra
gjalda vert. Jarðepli, rauð-
aldin, bjúgaldin og öll ís-
lenzku ávaxtaheitin eru í
sjálfu sér ágæt. En gall-
inn er bara sá, að þau hafa
aldrei náð að festa rætur
í málinu. Málið hefur sinn
gang, og við verðum að
sætta okkur við þróun
þess, hvort sem okkur lík-
ar betur eða verr. P.S. er
á íslenzku E.S. og táknar
eftirskrift.
PAUL SÆTASTUR
Kæra Vika!
Ástarþakkir fyrir Sögu
Bítlanna. Ég vona að hún
verði sem lengst í blaðinu
hjá ykkur. Ég hef alltaf
verið æðisgenginn aðdá-
andi þeirra. En gætuð þið
ekki birt forsíðumynd í lit
af Paul McCartney? Mér
finnst hann lang sætastur.
Dúlla.
VINSÆLUSTU BÍTLALÖGIN
Kæri Póstur!
Hvert af lögum Bítlanna
mundir þú segja, að hefði
orðið vinsælast?
Með fyrirfram þökk.
BA.
Það vill svo til, að við
höfum hér við höndina
skrá yfir það, hversu oft
lög Bítlanna hafa verið
leikin inn á plötur af öðr-
um listamönnum en þeim
sjálfum. Skráin er svona:
1. Yesterday (91). — 2.
Michele (65). — 3. A Hard
Day's Night (50). — 4.
Can‘t Buy Me Love (49).
— 5. I Want to Hold Your
Hand (42). — 6. AU My
Loving (38). — 7. And I
Love You (36). — 9. Help
(29). — 10. Please Me (27).
HOOVER
HOOVER DE LUXE
model 625A
Tepparyksuga.
Hristir, burstar og sogar
teppin. Hentar 4—8 her-
bergja ibúðum.
HOOVER-KULAN
model 1867
Kraftmikil sogryksuga, án
hjóla, svífur léttilega yfir
teppunum af eigin krafti.
HOOVER JUNIOR
model 1347
Tepparyksuga.
Hristir, burstar og sogar
teppin. Er létt og þægileg
í meðförum.
Heimsbekkl vörumerki
m Hoover þvottavélar 8 gerðir
Hoover kæliskópar 5 gerðir
Hoover ryksugur 8 gerðir
Hoover bónvélar 2 gerðir
Hoover rafmagnsofnar 3 gerðir
Hoover straujórn 3 gerðir
Hoover uppþvottavélar
Hoover hórþurrkur
Hoover hrærivélar
Hoover teppaburstar
Hoover eldavéiahimnar
Hoover vörurnar fóst í Hoover-kjallaranum, Austurstræti 17, Reykjavík,
simi 14376.
Einnig víða í verzlunum úti á landi.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta að Hverfisgötu 72, sími 20670.
Einkaumboð:
MAGNÚS KJARAN
Umboðs- & heildverzlun
42. tbl.
VIKAN 5