Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 6
LDVORN
Þessar frábæru
eldvarnarhurðir
eru smíðaðar eftir
sænskri fyrirmynd
og eru eins vand-
aðar að efni og
tæknilegri gerð og
þekking framast
leyfir. Eldvarnar-
hurðirnar eru sjálf-
sagðar fyrir mið-
stöðvarklefa,
skjalaskápa, her-
bergi sem geymd
eru í ver'ðmæti og
skjöl, milli ganga
í stórhýsum,
sjúkrahúsum og
samkomuhúsum,
þar sem björgun
mannslífa getur
oltið á slíkri vörn
gegn útbreiðslu
elds. -
Eldvarnarhurðir
GLÓFAXA eru
viðurkenndar af
Eldvarnareftirliti
ríkisins.
Ármúla 24,
Sími 34236
VELJUM ÍSLENZKT <H> ISLENZKAN IÐNAÐ
I
DAGLEGT
ÞEGAR TAUGARNAR
GEFA SIG
Það eru til vandamál, sem
virðast óleysanleg, þegar maður
veltir þeim fyrir sér í einrúmi,
en fá á sig allt annan svip, ef
rætt er um þau í rólegheitum
við fólk, sem hefur dómgreind,
reynslu og skilning. Það er því
oft ráðlegt að leita til sálfræð-
inga eða taugalækna, ef maður
sér ekki fram úr sálrænum vand-
ræðum. En svo er spurt hvort
það hafi nokkra hernaðarlega
þýðingu að ræða um vandræði
sín, hvort það leysi nokkurn
vanda. Ef maður veit sjálfur
hverjar áhyggjurnar eru, er þá
til nokkurs gagns að tala um það
við aðra? Og ef maður, þessut-
an, er hljóðlátur að eðlisfari,
alls ekki málgefinn, er þá nokk-
ur von um árangur?
Er hægt að mæla taugaþreytu,
eða verða læknar og sálfræðing-
ar að styðjast við upplýsingar frá
sjúklingum einar?
Sállækningar byggjast fyrst og
fremst á því að komast að or-
HEILSUFAR
sök vandamálanna, og svo á ráð-
leggingum sálfræðings, sem hef-
ur reynslu og þekkingu á því
hvernig hægt sé að beita sér, til
að losna við erfiðleikana. Það
getur komið til mála að beita
þurfi róttækum aðgerðum, t. d.
að breyta um lífsvenjur, um-
hverfi o. s. frv. Það er ekki nóg
að vita um orsakirnar. Áður var
oft látið þar við sitja, en þeir
sérfræðingar, sem fást við þessa
sjúkdóma nú, eru tæpast á þeirri
skoðun. Það verður að beita sér
fyrir lækningu sálfræðilegra
meina, ekki síður en líkamlegra,
og sem betur fer er fólk farið að
líta skynsamlega á þær stað-
reyndir. Það er af sem áður var,
þegar það var álitið skammar-
legt að vera andlega vanheill.
í ýmsum tilvikum er notuð
sefjun, meðal annars það sem í
daglegu tali er kallað dáleiðsla,
og sem er í því fólgin að slaka
á, til þess að hugurinn verði
móttækilegur fyrir sefjun, og á
alls ekkert skylt við töfrabrögð.
Reyndur sálfræðingur hefur
það venjulega á valdi sínu að
losa um málbeinið, jafnvel hjá
þeim sem erfiðast eiga með að
tjá sig, og þannig fengið vitn-
eskju um hvar skórinn kreppir.
Þvi, eins og áður var sagt, er
það allt annað að velta fyrir sér
vandræðum í einrúmi, heldur en
að tala um þau við fólk, sem
hefur skilning og reynslu.
Sálgreining er einn liður sál-
lækninga. Bæði sjúkrahúslækn-
ar og aðrir sérfræðingar nota
sálgreiningu, þar sem þeir álíta
að rétt sé að beita henni. Ef
sjúklingur snýr sér til sérfræð-
ings í sálrænum sjúkdómum,
getur hann rólegur talað um
vandamál sín við viðkomandi
lækni. Það er nauðsynlegt að
leita hjálpar, þegar ofþreyta og
sálarflækjur stríða á mann, því
fyrr, því þetra. Það getur verið
að óþarfa áhyggjur verði til af
litlum ástæðum.
☆
V