Vikan - 24.10.1968, Blaðsíða 7
AÐ KASTA SÉR FRAM
AF KLETTABRÚN
Elsku Vika mín!
Viltu vera svo góð að ráða
þennan draum fyrir mig. Mér
þótti hann svo raunverulegur,
þegar ég vaknaði. Draumurinn
er svona:
Mér fannst ég vera í bíó með
vinkonu minni og stráknum,
sem hún er með. Þegar bíóið var
búið, hittum við einhverja karla.
sem strákurinn þekkti. Þeir buðu
okkur upp í bíl. Ég fór fyrst inn
í bílinn, en þá skellti strákur-
inn hurðinni á eftir mér Karl-
arnir óku af stað í b.endings-
kasti, bundu síðan hendurnar á
mér og helltu í mig víni, þar til
ég var orðin dauðadrukkin. Þá
fleygðu þeir mér út úr oílnum,
einmitt rétt fyrir utan dnnshús,
sem ég kannast vel við.
Þar sem ég ligg dauðadrukk-
in í götunni, tek ég að svipast
um í kringum mig. Sé ég þá
hvar strákur og stelpa standa
tvö ein. S'g þekki stelpuna alls
ekkert, en strákinn þekki ég
mjög vel. Ég er afskaplega hrif-
in af honum, hef verið með hon-
um í vetur sem leið og hef ekki
getað gleymt honum síðan. Mér
finnst ég fara að tala við hann
og spyrja, hvort ekki séu háir
klettar og sjór fyrir neðan húsið,
þar sem hann á heima. Hann
svarar því játandi, en vill fá að
vita, hvers vegna ég spyrji að
þessu. Þá segi ég, að mig langi
ekkert til að lifa lengur, af því
að hann vilji ekkert með mig
hafa. Síðan sný ég mér að stelp-
unni, sem er með honum og segi
við hana, að ég ætli ekki að taka
hann frá henni. Að svo mæltu
kveð ég strákinn og segi við
hann, að hann muni ekki sjá mig
framar, því nú ætli ég að deyja.
Ég geng að klettunum, og ætla
að kasta mér fram af og út í
sjóinn. Þá verður mér iitið um
öxl, þangað sem strákurinn á
heima. Hann og stúlkan sitja
bæði á tröppunum fyrir utan
húsið hans. Ég sný mér snöggt
undan og er staðráðin í því að
kasta mér fram af klettabrún-
inni. En þá gerist undrið.
Það er gripið í öxlina á mér
og sagt:
„Þetta máttu ekki gera!“
Hann var þá allt í einu kom-
inn til að forða mér frá dauða,
tók mig upp og bar mig heim á
leið.
Við það vaknaði ég.
Lulla.
Fyrri hluti draums þins stafar
af ótta við óhamingju vegna
ástarsorgar. Þú ert hrædd um,
að illa muni fara fyrir þér, ef
samband þitt og umrædds stráks
fer alveg iit um þúfur. Þér finnst
óhugsandi, að þér takist að
höndla hamingjuna án hans;
finnst þú liggja ein og yfirgefin
og „dauðadrukkin í göturæsinu“.
En síðari hluti draumsins er
miklu merkilegri. Hann er mjög
skýr og auðvelt að lesa tilfinn-
ingar þínar út úr honum. Von-
Ieysi og örvænting gagntaka hug
þinn, svo að þér stafar hætta af.
En þegar verst á stendur, verð-
ur breyting til batnaðar. Ham-
ingjan, sem þú hélzt að hefði
alveg snúið baki við þér, tekur
að hossa þér á ný. Samband þitt
og stráksins verður gott og far-
sælt að lokum eftir mikla erfið-
leika, sem ykkur tekst að sigr-
ast á.
☆
BÆJARBRUNI
Kæra Vika mín!
Ég hef aldrei skrifað þér fyrr,
en datt í hug að senda þér línu
í þeirri von, að þú getir ráðið
fyrir mig drauminn, sem mig
dreymdi um daginn. Ég hef les-
ið mikið í Vikunni og finnst hún
afbragðsgóð. Jæja, þá er bezt að
byrja á draumnum.
Mig dreymdi, að bærinn minn
(ég á heima uppi 1 sveit) væri
að brenna. Sumt af heimilisfólk-
inu var farið að sofa, eiginlega
Framhald á bls. 44.
30%
meira
SRAM
Superlux®
42. tbi. VIKAN