Vikan - 24.10.1968, Qupperneq 25
EFTIR
HUNTER DAVIES
6. HLUTI
EINKARÉTTUR Á ÍSLANDI VIKAN
Það var í seinni ferð Bítlanna til Hamborgar, sem
Astrid Kirchherr hai'ði eitt sinn orð á því við Stu, unn-
usta sinn, að henni líkaði ekki hárgreiðsla hans. Hún
greiddi hár hans fram og klippti ofurlítið af því. Þegar
Stu kom í klúbbinn Top Ten þetta kvöld með nýju
hárgreiðsluna sína, veltust félagar hans um af hlátri.
En samt leið ekki á löngu, þar til George tók upp þessa
sömu greiðslu og síðan Paul. Hin nýja Bítlahárgreiðsla
hafði litið dagsins ljós. Astrid hafði einnig áhrif á litlit
Bítlanna og klæðnað á margan annan hátt. Hún fékk
þá til dæmis til að ganga í kraga- og lafalausum jökkum.
Hún saumaði einn slíkan jakka fyrir sjálfa sig', en Stu
varð svo hriíinn af honum, að hann fékk hana til að
sauma eins jakka handa sér líka. Hinir Bítlarnir gerðu
gys að Stu og jakkanum hans í fyrstu, en það fór á sömu
leið og með hárgreiðsluna.
Þeir voru villtari og fyrirferðarmeiri í síðari Ham-
borgarferð sinni. Þeir tóku örfandi lyf (allir nema Pcte
Best) til að geta vakað lengur og verið stöðugt fjörugir
og vel upplagðir.
„En þetta fór aldrei út í öfgar hjá þeim,“ segir Astrid.
„Hvorki lyfin né drykkjuskapurinn.“
John hélt enn uppteknum hætti og lmuplaði úr búð-
um.
„John var þannig,“ segir Astrid. „Allt í einu neri
hann saman höndunum og sagði upp úr þurru: „Nú
förum við og stelum úr búðum!“ Þetta var tómt grín
hjá honum. Það var ekki hægt að hneykslast á þessu.
Hann var með cindæmum ærslafenginn og uppáfinn-
ingasamur; hafði sí og æ í frammi hrekki og alls konar
brögð.“
Þeir léku inn á fyrstu hljómplötuna sína í þessari
ferð; léku undir með söngvara að nafni Tony Sheridan.
„Við spiluðum fimm af okkar eigin lögum,“ segir
John. „En þeim geðjaðist ekki að þeim. Þeir vildu heldur
lög eins og' „My Bonnie Lies Over the Ocean“. Bítlarnir
voru aðeins fjórir, þegar þeir léku inn á hljómplötuna.
Stu Sutcliffe hafði sagt skilið við hljómsveitina.
„Við vorum skelfing vondir við hann,“ segir John.
„Sérstaklega Paul. Hann var alltaf að stríða honum og
hrella hann.“
En þetta var ekki ástæðan til þess, að Stu fór. Hann
hafði ákveðið að setjast að í Hamborg, kvænast Astrid
og het'ja aftur nóm í listaskóla. í júlí 1961 fóru hinir
fjórir aftur til Liverpool.
A meðan þeir dvöldust í Hamborg höfðu vinsældir
beat-tónlistarinnar farið vaxandi í Liverpool. Stofnun
blaðsins Mersey Beat átti mikinn þátt í því, en i því
blaði var skrifað um allar helztu hljómsveitirnar í borg-
inni. Tvær aðal hljómsVeitirnar voru „Gerry and the
Pacemakers“ og „Rory Storme and the Hurrycanes“,
en það var hljómsveitin, sem Ringo Star lék í. Næstir
þessum tveim hljómsveitum hvað vinsældir snerti voru
svo Bítlarnir.
42. tbi YIKAN