Vikan


Vikan - 02.04.1969, Blaðsíða 17

Vikan - 02.04.1969, Blaðsíða 17
 Dr. Weeklee tókst í samvinnu við próf. S. S. Friedrichson, dr. Groen Dall og próf. Thor Lefsen að fullkomna raf- fræðilega aðferð ti! getnaðarvarna, sem byggist á kraftaukningu þeirra skauta, sem mannslíkaminn hef- ur yfir að ráða. Lítil rafhlaða, sem fest er við hörundið, ger- ir kvenfólkið enn kvenlegra og eykur sömuleiðis á karl- mennsku karlmanna, auk þess sem hún er um leið örugg vörn. — Við skýrum ítarlega frá þessari merku uppfinningu og hvenær hún verðui' viðurkennd hér. sem betra væri, útiloka mögu- leika á því með rafmagnsstraumi að frjóvgun gæti orðið. Dr. Weeklee tókst að vísu fljótlega að ná árangri í því að lama eða drepa sæðisfrumurnar, þegar eftir að þær yfirgáfu lík- ama karlmannsins, en til þess þurfti svo mikið raflost, að hon- um hélt við slæmum brunasárum. Með öllu virtist útilokað að koma slíku raflosti við í líkama konunnar, og dr. Weeklee var að því kominn að láta af tilraunum sínum, enda orðinn skuldugur eftir langt tilraunastarf á þessu sviði. En um það leyti barst honum boð frá próf. S. S. Friedrichson. sem um þetta leyti hafði nýlega hlotið friðarverðlaun HIP (Health Interested Parents) klúbbsins, um að stofna með honum elektróníska vísindastöð til rannsóknar á áhrifum raf- magns á mannlegt líf. Dr. Weeklee tók þessu boði og sam- an stofnuðu þeir The North American Friedrichson and Weeklee Institute of Electroni- cally Planned Parenthood (NAFWIEPP). Rannsóknarstofn- unin óx fljótlega í sniðum og áð- ur en langt um leið, voru einnig komnir til NAFWIEPP vísinda- mennirnir dr. Groen Dall og próf. Thor Lefsen. Og nú fór að komast skriður á áhugamál dr. Weeklee. í sameiningu uppgötvuðu hann og próf. Friedrichson, að raf- straumur mannslíkamans er að vísu riðstraumur, en plúsorka rafmagnsins er mun meiri í lík- ama konunnar en karlsins, en hann er á hinn bóginn mun hlaðnari minusorku. Þessi straumskipting opnaði þeim fé- lögum nýja möguleika til hag- nýtingar raforku í sambandi við takmörkun barneigna, og nú komst skriður á rannsóknirnar. Sér til aðstoðar fengu vísinda- mennirnir aðstoðarprófessorana Mary Johnson og Christian Mc- Manus, sem þegar eru kunn fyr- ir kynferðisrannsóknir sínar, og nú kom í ljós, að með því að auka plúsmagn konunnar, tókst að lama mínusþrótt sæðisfrum- anna og gera þær þannig óhæfar til frjóvgunar, þegar er þær komust í snertingu við yfirplús- aðan líkama konunnar, í 98,1 til- felli af 100. Á sama hátt reyndist auðvelt að auka mínusmagnið í líkama karlmannsins, sem hafði þau áhrif á sæðisfrumurnar, að þær urðu óhæfar til frjóvgunar er þær komust í snertingu við plús- skaut. Sú plúsorka, sem til er í líkama konunnar, reyndist nægja í 97,9 tilfellum af hverj- um 100, til að eyðileggja þann- ig yfirmínusaðar sáðfrumur, en ef bæði konan og karlinn voru undir orkuaukningu, er kynmök áttu sér stað, reyndist öryggið 100%. En ekki var björninn unninn, þrátt fyrir þennan sigur. Fólkið, sem fengið var til tilraunanna, varð að einskorða sig við að nota ákveðið húsnæði, þar sem til þess að gera stórir rafalar, skautgreinar, rafhlöður, vírar og tengitaugar voru fyrir hendi. Ef þessi lausn átti að verða varan- leg, og hafa hagnýtt gildi fyrir mannfjölgunarvandamálið, varð Framhald á bls. 45. 14. tbi. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.