Vikan


Vikan - 02.04.1969, Blaðsíða 48

Vikan - 02.04.1969, Blaðsíða 48
'«L RAFHA-HAKA 500 þvottavélin yðar mun ávallt skila yður full- komnum þvotti ef þér aöeins gætið þess að nota rétt þvottakerfi, þ.e. það sem við á fyrir þau efni er þér ætlið að þvo. Með hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og að auki sjálfstæðu þcytivindu- og dælukerfi, leysir hún allar þvottakröfur yðar. I»vottakcrfin eru: 1. Ullarþvottur 30° 2. Viðkvæmur þvottur 40° 3. Nylon, Non-Iron 90° 4. Non-Iron 90° 5. Suðuþvottur 100° G. Heitþvottur 60° 7. Viðbótarbyrjunarþvottur 90° 8. Heitþvottur 90° 9. Litaður hör 60° 10. Stífþvottur 40° 11. Bleiuþvottur 100° 12. Gerviefnaþvottur 40° Og að auki sérstakt kerfi fyrir þeytivindu og tæmingu. Öruggari en nokkur önnur gagnvart forvitnum börnum og unglingum. Hurðina er ekki hægt að opna fyrr en þeytivindan er STÖÐV- UÐ og dælan búin að tæma vélina. HMflB ER BBKH HflHS Hðfl? Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð- um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð- launin eru stór konfektkassi, fuilur af bezta konfekti. og fram- leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói. Sfðast er dregið var hlaut verðlaunin: Gunnsteinn Sigurðarson, Hliðartúni 9, Mosfellssveit. Vinninganna má vitja i skrifstofu Vikunnar. Nafn HelmlH Örkin er á bls. nýja Janine vissi ekkert um það. — Takk fyrir, sagði hún. Júrgen kveikti sér líka í síga- rettu. Og þótt ég hefði gifzt henni tíu sinnum, þá verð ég að um- gangast hana nú eins og hún væri mér ókunnug. Ég verð að tala við hana, kynnast henni, komast að því, hvernig högum hennar er háttað.... — Hvar hafið þér fengið þessi fallegu, bláu augu, ungfrú? sagði hann við hana. — Fékk þau gefins, svaraði hún. — Þér hljótið einnig að vera sunnudagsbarn? — Nei. Janine sneri glasi sínu í hendi sér, horfði fram hjá honum. Ó- trúlegt, að fyrir aðeins þremur mánuðum sváfu þau í sama hjónarúmi. Rauðu rósirnar á brúðkaupsdegi þeirra, við- kvæmnin þá, ást þeirra — hon- um fannst heil eilífð síðan. Og hún hafði einfaldlega gleymt því. Þrátt fyrir það gat hún orðið honum hræðilega hættuleg, það var honum ljósara nú en nokkru sinni áður. Tilvera hennar gat gert allar ráðagerðir hans að engu. — Eruð þér daprar? spurði hann. — Lít ég út fyrir það? spurði hún á móti. — Nei. Alls ekki. Aðeins — síðan ég kynntist yður hef ég aldrei séð yður brosa. — Síðan hvenær þekkið þér mig? Spurningin var borin hratt fram, og hún horfði um leið á hann. Og augnablik var hann ekki lengur öruggur með sjálf- an sig. — Síðan í gær í hótelanddyr- inu, sagði hann fljótmæltur, — þá tók ég í fyrsta skipti eftir bláum augum yðar. Við gengum aðeins fram hjá hvort öðru. Þér munið varla eftir því. — Jú, viðurkenndi hún. — ég man greinilega eftir því. Núna brosti hún, meira að segja örlítið. Hann kipptist við er hann sá hve mjög það líktist gamla brosinu, þessu feimna brosi, sem eitt sinn hafði táknað hamingju hans. Júrgen lagði sig allan fram um að láta samtalið ekki staðna. Honum veittist það ekki erfitt. Hann var meistari í að halda uppi samræðum. Og auk þess þekkti hann hana. Hann vissi, hvaða eiginleika hún vildi helzt finna hjá karlmönnum, hvað henni féll við, hvað ekki .... Hann sagði sögur, sem hún varð að hlæja að. Margar þeirra hafði hann sagt henni áður, en það skipti engu máli. Minni hennar lítist tómu tónbandi. Fyrir utan tvo menn, sem töl- uðu um verzlunarmál, voru þau einu gestirnir á barnum. — Má bjóða yður eitt glas af kampavíni? spurði hann. Framhald í næsta blaði. 48 VIICAN 14- tbL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.