Vikan


Vikan - 02.04.1969, Blaðsíða 45

Vikan - 02.04.1969, Blaðsíða 45
átti að leika tvo landsleiki. Nú eru Rúmenar ákaflega nákvæm- ir vegabréfsskoðunarmenn og löng röð farþega myndaðist við púlt eftirlitsmannanna. Þorsteinn Björnsson, mark- vörður er ekki gæddur mikilli biðlund, — hann reyndi að oln- boga sig áfam til að geta komizt sem fyrst á rúmenska grund. Það var kátína í hópnum eins og allt- af þar sem landsliðið er á ferð- inni. Einhver gerði það prakk- arstrik að klípa þéttingsfast í afturendann á Þorsteini. Hann rak upp skaðræðisóp sem hljóm- aði um lágreistu flugstöðvar- bygginguna. Nú gerðist margt í senn. Eftirlitsmennirnir urðu skelfingu lostnir, landsliðsmenn fengu krampa af hlátri, — en öryggislögreglan á vellinum af- slíðraði byssur sínar, — taldi að einhver hætta kynni að vera á ferðum. Þetta kostaði hálftíma samninga við Rúmenana, sem vildu helzt sleppa við að fá landsliðið inn í landið, vildi gera það afturreka. En allt fór þetta vel og ferðin tókst í alla staði vel. ÁFENGI PASSAR EKKI „Áfengi eða reykingar eiga ekkert erindi til íþróttamanna," segir Geir. „Það er ekki þar með sagt að ég sé einhver siðapostuli í þessu sambandi, en sjálfur reyki ég ekki og nota vín helzt ekki. Hjá okkur í FH er það reglan að leikmenn smakki ekki vín 5—7 sólarhringa fyrir leik- dag. Hendi menn slíkt, verða þeir ekki meðal þeirra, sem keppa í viðkomandi leik. Þá er okkur líka ráðlagt að forðast all- ar vökur og lifa yfirleitt heil- brigðu og hollu líferni.“ Við þökkum Geir fyrir viðtal- ið. Geir á nú fyrir höndum erf- iða daga á handknattleiksvellin- um. Lið hans hefur að vísu nær tryggt sér íslandsmeistaratitilinn í ár, — en framundan blasa verkefni með félögum hans í landsliðinu. Til stendur að landsliðið æfi allt sumarið með heimsmeistara- keppnina í huga. Fyrst leikur fs- landa í riðli gegn austurríska landsliðinu og síðan ef allt geng- ur eftir áætlun, með 15 öðrum þjóðum í úrslitakeppni HM. Það er takmarkið, og líklega hefur áhugi landsliðsmanna aldrei ver- ið eins mikill og nú. Þeir eru staðráðnir í að standa sig þannig að ísland, smáþjóðin með 200 þús. manns, verði meðal 16 beztu í heimi. Er það furðu góður árangur, þar sem hér eru aðeins 1000 iðk- endur íþróttarinnar. Viða er- lendis skipta þeir hundriiðum þúsunda og íþróttahallir t.d. í Sviþjóð, eru yfir 100. Ef til vill hefur handknatt- leikurinn sýnt okkur betur en margt annað, hvað íslendingar GETA GERT, ef viljinn er fyrir hendi. 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 i> KafSI! Ny tegund VACUUMPAKKftfl O.JOHNSOfl! 8 Oss er það ánœgja að geta sífellt aukið fjölbreytni kaffitegunda á markaðinum. Nú bjóðum vér yður nýja tegund er nefnist Santos blanda Santos blandan er afbragðskaffi, framleitt úr úrvalsbaunum frá Santos í Brazilíu og Kolumbíu. Santos kaffiblandan er ódýr úrvalsvara. 0. JOHNSON & KAABER HF. 0 0 0 0 0 0 0 0 ©0 £ 0 o ál so l 0 § 0 £ 0 z 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 PX-13 - 100% vörn ... Framhald af bls, 17. að finna nægilega litlar rafhlöð- ur til þess að unnt væri að bera þær á sér hvar sem væri og hve- nær sem væri, rafhlöður, sem entust og entust og treysta mætti langtímum saman. Og nú hófst einn erfiðasti þátt- ur tilraunanna. Hér var um að ræða lokalið í merku starfi, sem sannað hafði ágæti sitt, aðeins var eftir að gera hinn áþreifan- lega lið hennar svo úr garði, að komið gæti að haldi. Vitað var, að ýmsar aðrar stofnanir og fyr- irtæki, bæði austan hafs og vest- an, lögðu mikið kapp á að finna upp rafhlöður, sem varðveitt gætu allt að tíu sinnum meiri raforku miðað við stærð en raf- hlöður höfðu gert fram til þess, og þá var miðað við bæði mínus og plús. Hér var enn viðameira verkefni á ferðum, því nú þurfti að aðgreina plús og mínus og koma þeim straumi fyrir í hylki, sem hægt væri að fela á sér og hafa stöðugt við höndina. Tilraunirnar fóru fram með mikilli leynd og voru auðkennd- ar með bókstöfunum PX og síð- an númeri, sem hækkaði stöð- ugt eftir því sem fleiri lausnir reyndust ófullnægjandi eða óframkvæmanlegar. En loks, fyrir nærri tíu árum, fannst PX 13. PX 13 er lítil rafhlaða, að þvermáli á stærð við tíeyring, en þykktin nokkru meiri. Hún fæst límborin líkt og heftiplást- ur, því skautið verður að nema við húð. Ennfremur má festa hana við líkamann með hefti- plástri, og skiptir ekki máli hvar það er, liggi hún við hörundið. Eftir að farið var að nota þessa rafhlöðu vestan hafs, tóku skart- gripaframleiðendur að framleiða armbönd og armbandsúr, með sérstöku hylki fyrir rafhlöðuna, og fer þannig ekkert fyrir henni og enginn veitir henni athygli. Sömuleiðis hafa verið búnir til eyrnalokkar með hólfi fyrir raf- hlöðuna, signethringar karl- manna og þannig mætti lengi telja. Rafhlaða þessi hefur þegar verið í notkun í tilraunaskyni í áratug, og hafa læknar og vís- indamenn vestan hafs og í Jap- an fylgzt mjög vandlega með þeim 800 þúsund körlum og kon- um, sem buðu sig fram til að prófa ágæti aðferðarinnar. Mik- illar nákvæmni var gætt við val þessa fólks og þess gætt að hafa það ýmist alheilbrigt eða með einhverja sjúkdóma, svo að sem mest breidd næðist í rannsókn- irnar. Niðurstöður þessara rann- sókna voru þær, sem að framan greinir: Öryggi það, sem raf- hlaðan veitti gagnvart frjóvgun reyndist allt að 100%, þegar annar aðalinn notaði hana, en fyllilega 100%, þegar hún var 14. tbi. VIKAN 45

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.