Vikan


Vikan - 02.04.1969, Blaðsíða 26

Vikan - 02.04.1969, Blaðsíða 26
| -X ' ' j : ' ' ; ' iiilfii HANDBOLTINN í BLÓÐ BORINN Það er raunar ekki undarlegt að Geir skuli hafa tekið ástfóstri við handknattleik. Hitt hefði verið undarlegra, ef hann hefði ekki gert það. Foreldrar hans voru bæði íþróttafólk, Hallsteinn í fimleikum og handknattleik, en móðirin Ingibjörg Árnadóttir var fimleikastúlka í FH, Fimleika- félagi Hafnarfjarðar, sem í þann tíð reis undir nafni og á vonandi eftir að gera, þegar fimleikar verða aftur keppnisgrein. Oft hefur heyrzt sagt eftir leiki FH: „Já, það hefði átt að þjóðnýta hann Hallstein til undaneldis." Geir byrjaði snemma í hand- bolta. Hörðuvellir eru í næsta nágrenni og þar var alltaf líf og fjör, — og handbolti. „umræðu- efnið heima var oft handbolti", segir Geir, en hann byrjaði sinn feril í 3. flokki, yngsta flokkn- um. „Maður hlaut eiginlega að „falla“ fyrir þessu fyrr eða síð- ar, sem og varð raunin,“ segir Geir, þegar við höfum komið okkur fyrir í þægilegri stofunni á heimili hans. JÁ, EN ÞÚ ERT STRÁKUR Ég heyrði skemmtilega sögu um krakkana á Tjarnarbrautinni frá bernsku þeirra systkinanna og langar til að skjóta henni hé^- með. Það var kunnur handknatt- leiksmaður, Jóhann Gíslason úr Víkingi, sem kunnur var undir viðurnefninu „skntharði vél- stjórinn", sem sagði þessa sögu. Hann átti le:ð í Sólvang, sjúkra- húsið í Hafnarfirði, og var geng- ið um götuna þar sem Hallsteins- fjölskyldan býr. Það var sumar og krakkar að leik úti í garði, — með handbolta. Lítill og smár strákur var að kveinka sér yfir föstum skotum lítillar hnátu, sem var þó ögn hærri í loftinu. Þarna sannaðist að snemma beygist krókurinn að því er verða vill. Drengurinn sagði: ,.Þú mátt ekki skióta svona fast.“ Sú litla svaraði af bragði: „Já, en þú ert strákur.“ Þetta vom bau Geir og Svlvía, systir hans ssm er ári eldri. Örn er svo F árum eldri en Geir en elztur er Tnsvar, sem lék' með meistaraflokki FH í handknattleik, en fór ungur til Bandaríkjanna til framhalds- náms í prentiðn. Er hann nú prentsmiðjustjóri Morgunblaðs- ins. Ingvar á annað bezta afrek íslendings í spjótkasti. ÞETTA BYRJAÐI MEÐ GRJÓTKASTI Geir bendir mér út um stofu- gluggann í átt að tiörninni. „Þarna hef ég kannski feneið undirstöðuna, með griótkasti," Framhald á bls. 40. 26 VIKAN 14- tbl- 14 tbl VIKAN 27 Einbcitnin skín úr þessari mynd, sem af Gejr í Jeik. hverjum drætti í v?.r tekin nýlega * „Oskasigur“ gegn Dön- um í fyrra, 15:10 Laugardal. Geir skorar. 4 Hðr kljást tveir góðir, Geir Hallsteirsson og hinn frægi Mares, tékk- ncski leikmaðurinn, sam ásamt Geir er talinn til heimsstjarnmna í hani- knattleik. Myndin var tekin í l°.ndsleik í Laug- ardal. Spánverjar reyndint léttir andstæðingar fyr- ir íslendinga í janúar sl. — Ilér er Geir koin- inn í gegn og skorar örugglega. — Mörk hans eru nú orðin 116 í lands- leikjum og er hann ann- ar markahæstur. * Örn, Geir og Birgir í FH-vörninni. Boltinn fór í gegn frá Gylfa Jó- hannssyni í Fram. Myndin var tek- in úr leik Fram og FII á Seltjarn- arnesi í vetur. » Gcir skorar af línu gegn „erfða- fjcndunum“ — Framörum. Páll Ei- ríksson, læknir í Hafnarfirði, er lengst til vinstri, en Framarinn lengst til hægri er Sigurður Ein- arsson. HANN GIIR ER OF lÍTIll

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.