Vikan - 08.05.1969, Qupperneq 34
ar í stað hinn leiðandi maður á
sviði herratízkunnar. Á kvöldin
sveif hann eins og fiðrildi milli
nýtízkulegra skemmtistaða eins
og Embassy. Club, Kit-Cat og
Café de Paris.
Fataframleiðendur tóku prins-
inum tveim höndum. Hann var
sannkallaður dómari á sviði
herratízkunnar. Við hirðina biðu
menn spenntir á hverjum morgni
að sjá, hverju prinsinn klæddist
nú þann daginn. Hann barðist
með oddi og egg gegn hörðum
flibbum og stífum skyrtubrjóst-
um. Faðir hans klæddist ævin-
lega á þann hátt, jafnvel þegar
hann borðaði með fjölskyldunni
heima og gerði kröfu til að son-
ur hans gerði slíkt hið sama.
Hann lét að vilja föður síns
heima fyrir, en utan hallarinnar
klæddist hann ævinlega eftir eig-
in geðþótta, hvort sem hann var
í einkaerindum eða kom fram
opinberlega.
Prinsinn var mikill unnandi
útilífs og íþrótta. Þetta varð að
eins konar áráttu hjá honum. Á
ferðalögum sínum krafðist hann
þess af fylgdarliði sínu, að hann
fengi tækifæri til að stunda ein-
hverja íþrótt á hverjum einasta
degi. Eftir langa og þreytandi
törn við opinberar skyldur, vildu
aðstoðarmenn hans helzt fara
heim og hvíla sig á kvöldin í
þægilegum stól með glas í hönd.
En það var ekki til setunnar boð-
ið hjá prinsinum. „Jæja, þá er
það búið“, sagði hann. „Nú skul-
um við koma og leika golf, áður
en við borðum kvöldverðinn".
Prinsinn var mikill hestamað-
ur og djarfur í þeim sökum. Oft
datt hann af baki, en þó ekki
oftar en gengur og gerist með
þeim sem hestamennsku stunda.
Hann var snjall reiðmaður og
gæðingar hans afbragðsgóðir. En
hann var stöðugt undir smásjá,
sérstaklega hinna fréttaþyrstu
blaðamanna, þess vegna gáfu
blöðin út aukablöð með flenni-
stórum fyrirsögnum í hvert
skipti sem prinsinn datt af baki.
Þetta var einnig kærkominn efni-
viður fyrir höfunda revía og
gamanvísna.
f eitt skiptið var þó alvara á
ferðum. Hann datt á höfuðið og
fékk heilahristing og varð að
liggja í rúminu í fleiri vikur.
Málið var tekið til umræðu í
brezka þinginu. Að loknum hat-
römmum deilum þar, fékk prins-
inn bréf frá forsætisráðherran-
um, þar sem hann var vinsam-
lega beðinn í nafni þjóðarinnar
og heimsveldisins að forðast að
stofna lífi sínu í hættu eftirleið-
is. Enn harðorðara var bréfið,
sem hann fékk frá föður sínum.
Þar var honum stranglega bann-
að að stunda hestamennsku eða
aðrar hættulegar íþróttagreinar.
Prinsinn varð að beygja sig fyrir
vilja föðurins. Hann seldi hest-
ana sína, en tók í staðinn að
stunda af enn meira kappi það,
sem föður hans þótti lítið skárra
en hestamennskan — golfið.
Samkomulagið milli prinsins af
Wales og föður hans hafði aldrei
verið hnökralaust og fór versn-
andi með árunum. Enda þótt
prinsinn væri orðinn þrítugur
neitaði gamli maðurinn stöðugt
að láta hann fá nokkur alvarleg
opinber verkefni til þess að glíma
við. Því síður tók hann í mál að
byrja að setja son sinn inn í mál-
efni krúnunnar, eins og sumir
ráðgjafar hans lögðu til. Nokkr-
um sinnum gerði prinsinn til-
raunir til að komast í samband
við ráðherra ríkisstjórnarinnar
en konungurinn var fljótur að
stöðva slíkt ráðabrugg.
Georg konungur V. var vana-
fastur og íhaldssamur í skoðun-
um. í rauninni lifði hann enn í
anda Viktoríutímans. Hann þoldi
naumast nokkrar breytingar og
hafði megnustu andstyggð á lífs-
máta ungu kynslóðarinnar. „Þetta
gerðum við aldrei í gamla daga“,
var fast orðtak hjá honum, sem
prinsinn fékk oft að heyra. Að
hans dómi voru næturklúbbar
lastabæli og svínastíur, sem ekki
voru samboðnar konungbornu
fólki, og gat alls ekki þolað, að
það reykti. Hann kallaði amerísk-
an jazz villimannatónlist og ná-
gaul og átti erfitt með að sætta
sig við þá venju, sem fór vax-
andi á þessum árum, að fólk
ferðaðist um helgar.
Konungurinn varð skelfingu
lostinn, þegar honum bárust
fregnir um samkvæmislíf sonar
síns í Bandaríkjunum, en þang-
að fór prinsinn öðru sinni til að
líta eftir nautabúi, sem hann átti
í Alberta. Fyrirsagnir blaðanna
voru eitthvað á þessaleið: „Prins-
inn kemur heim um leið og
mjólkurpósturinn“. „Hver vill
spyrja hans hátign í hverju hann
sofi á nóttunni"? „Hérna er hann,
stúlkur, —■ eftirsóttasti pipar-
sveinninn í öllum heiminum"!
Þegar prinsinn kom heim frá
Ameríku, kallaði. kóngur strák á
sinn fund og lagði fyrir framan
hann ótal blaðaúrklippur af þessu
tagi og krafðist skýringar. Prins-
inn reyndi að telja gamla mann-
inum trú um, að enginn tæki
slík skrif alvarlega þar vestra.
Bandarísk blöð væru ekki jafn
vönd að virðingu sinni og þau
brezku. Ekki batnaði skap kóngsa
við þessa útskýringu. „Ef dóna-
skapur af þessu tagi er til merk-
is um afstöðu Bandaríkjamanna
til konungborins fólks, þá skal
verða bið á því að þú heimsæk-
Ameríku aftur“. Upp frá þessu
sleit Georg V. öll tengsl milli
Bandaríkjanna og fjölskyldu
sinnar.
Hins vegar vissu konungurinn
ekki, hvað sonur hans sagði, þeg-
ar ung blaðakona spurði hann
við komuna til Ne'w York: „Ef
þér yrðuð ástfanginn af amerískri
stúlku, munduð þér þá kvænast
henni“? Prinsínn svar.aði umhæl:
„Já“.
Siðar stóð hann við þessi orð
sín, en það er önnur saga, sem
öllum er kunn og ekki verður
rakin hér.
☆
Mig dreymir
á íslenzku
Framhald af bls. 27
með ljósmyndir, breyti ég
engu, því þá vill viðskipta-
vinurinn hafa fötin nákvæm-
lega svona og ég hef ekki leyl'i
til að breyta því.
— Hversu þykja þér karl-
menn klæddir hérlendis?
— Allvel. Ég hygg, að ekki
sé mikill munur á meðaltali
í klæðaburði hér og annars
staðar í Vestur-Evrópu. Ef til
vill eru eldri karlmennirnir
heldur íhaldssamir, klæðast
mest dökkum fötum og þess
háttar.
— Heldurðu, að fatatízk-
an sé að breytast í þá átt, að
karlmennirnir þurfi ekki ei-
líflega að vera í jakka, flibba-
skyrtu með bindi?
— Ég hygg að öll grund-
vallarbreyting á klæðaburði
karlmanna muni taka mjög
langan tíma, einkum hvað
jakkann snertir. Rúllukraga-
skyrtur sjást nú æ oftar í
staðinn fyrir ílibbaskyrtur,
en ekki geta allir klæðzt þeim.
Lágvaxnir menn ættu aldrei
að láta sjá sig með rúllukraga,
ég segi fyrir mig, að ég er út-
lits eins og í sjúkragifsi eftir
slys, ef ég fer í rúllukraga. En
hávöxnum mönnum fer mjög
vel að vera þannig til fara,
ég man sérstaklega eftir mið-
aldra manni, sem ég sá á
hótel Sögu, í smóking og
hvítri rúllukragaskyrtu; hár-
ið var silfurgrátt, þetta var
einstaklega glæsilegur maður
og vel klæddur.
— Komi maður hingað til
að fá föt, en veit ekki hvern-
ig hann vill hafa þau, hvað
gerir þú þá?
— Sýni honum myndir. Ef
til vill sér hann þar föt við
sitt hæfi, ef til vill lízt hon-
um vel á þennan kraga, þess-
ar ermar, og svo framvegis.
Þá reyni ég að sameina smekk
hans í eina teikningu, og
breyti henni þangað til hann
er orðinn ánægður.
— Saumar þú eingöngu
eftir máli, eða saumar þú
eitthvað í stærðum fyrir
verzlunina Karnabæ líka?
— Ég hef saumað svolítið
af buxum og jökkum fyrir
verzlunina, og vonast til að
geta gert meira af því í fram-
tíðinni.
— Eru þær flíkur eitthvað
frábrugðnar þeim, sem keypt-
ar eru frá öðrum saumastof-
um?
— Það er vandi um að
segja, en ég held að svo sé. Ég
hef teiknað þessi föt, og ég
held sjálfur, að ég sé smekk-
maður á þessu sviði, fyrir ut-
an kunnáttuna, sem ég hef
áunnið mér. Mín von er sú,
að viðskiptavinurinn geti alla
vega fundið mun, þegar hann
klæðist fötunum, þótt hann
kannski sjái ekki beinlínis
muninn. Sumir listamenn
skapa sín verk á striga, aðrir
höggva þau í stein. Ég nota
tau. En hugmyndin er sú
sama: Að skapa eitthvað, að
fá útrás fyrir tjáningarþörf-
ina. Þess vegna er fatasaum-
ur bæði vinnan mín og tóm-
stundavinnan.
— Þú saumar þá á konuna
og börnin líka?
— Já, raunar, þótt ég sé
ekki mikið fyrir að sauma
kvenfatnað. Það á ekki eins
vel við mig. Nema þann kven-
fatnað, sem er karlmannleg-
ur í uppbyggingu, svo sem
buxnadragtir til dæmis. Ég
hef að vísu saumað pínupils,
en ég hef ekki ýkja mikið
gaman af því. Því fer þó
fjarri, að ég hali á móti þeim
sem slíkum. Þetta er kannski
ekki ósvipað og að taka mál
af stúlku eða máta á hana
föt: A meðan er hún ekki
frekar stúlka en annað, hún
er bara forsenda saumanna.
Ef ég hugsaði um hana sem
eitthvað annað, væri ég ekki
með hugann við það sem ég
er að gera; sem sagt að svíkj-
ast um. Hvaða augum ég
myndi svo h'ta þessa sömu
stúlku úti á götu til dæmis,
er svo önnur saga og mitt
einkamál.
— Og að lokum: Hvað
kosta föt hjá þér?
— Frá 5400 krónum upp
í 6800.
☆
34 VIKAN 19- tbl-