Vikan - 08.05.1969, Page 36
Á spólunni
Öruggari en nokkur önnur
gagnvart forvitnum börnum og
unglingum.
Hurðina er ekki hægt að opna
fyrr en þeytivindan er STÖÐV-
UÐ og dælan búin að tæma
vélina.
RAFHA-HAKA 500 þvottavélin yðar mun ávallt skila yður full-
komnum þvotti ef þér aðeins gætið þess að nota rétt þvottakerfi,
þ. e. það sem við á fyrir þau efni er þér ætlið að þvo.
Meö hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og að auki sjálfstæðu
þeytivindu- og dælukerfi, leysir hún allar þvottakröfur yðar.
Þvottakerfin eru:
1. Ullarþvottur 30°
2. Viðkvæmur þvottur 40°
3. Nylon, Non-Iron 90°
4. Non-Iron 90°
5. Suðuþvottur 100°
6. Heitþvottur 60°
7. Viðbótarbyrjunarþvottur 90°
8. Heitþvottur 90°
9. Litaður hör 60°
10. Stífþvottur 40°
11. Bleiuþvottur 100°
12. Gerviefnaþvottur 40°
Og að auki sérstakt kerfi fyrir þeytivindu og tæmingu.
WlflR EK DBKIN HflNS NDfl?
Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur
falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð-
um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð-
launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram-
leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói.
Siðast er dregið var hlaut verðlaunin:
Margrét Xorfadóttir, Hala, Hornaí'irði.
Vinninganna má vitja í skrifstofu Vikunnar.
Nafn
Heimili
19.
Örkin er á bls.
Framhald af bls. 25
geysa að einhverju marki. Bíl-
arnir eru nítján alls, og það er
talsvert verk að hafa uppi á svo
mörgum bílum sæmilega útlít-
andi — og af mismunandi gerð-
um. Það tókst þó. Þeir voru allir
fluttir til Rómaborgar, þar sem
kannað var, hvort þeir væru enn
til stórræðanna fallnir. Flestir
bílanna þurftu einhverrar við-
gerðar við. Vélar sumra voru
ekki upp á marga fiskana, en þá
voru bara nýjar settar í staðinn!
í keppninni er mikið svindlað,
eins og nærri má geta. Helzti
svikahrappurinn og hrekkjalóm-
urinn er sá, sem Terry Thomas
leikur. Þetta er ekki í fyrsta
skipti að Terry Thomas, sá frá-
bæri gamanleikari, leikur svona
skúrka, — hann var til dæmis í
sams konar hlutverki í „Flug-
hetjunum". Sem dæmi um svindl
Terrys í hinni nýju kvikmydn
Annakins — eða kannski kænsku
má geta þess, að hann notar
í rauninni þrjá bíla, sem er auð-
vitað á móti keppnisreglum, þar
sem gert er ráð fyrir, að hver
keppandi komi á leiðarenda í
þeim bíl, sem hann lagði af stað
í. Terry hefur sem sé aukabíla
í stórum flutningavagni, sem ek-
ið er í hæfilegri fjarlægð fyrir
aftan hann!
Eitt af prakkarastrikum Terry
í myndinni er það, að hann eyði-
leggur bensínstöð eina í Alpa-
fjöllunum, sem er mikilvæg fyr-
ir aðra keppendur að því leyti,
að engin önnur er á leiðinni yfir
fjöllin. Hann dreifir bensíni á
jörðina að tankinum og lætur
síðan vindil sinn detta ofan í
bensínið svo lítið ber á. Þetta
nær tilætluðum árangri: Bensín-
tankurinn springur í loft upp, en
um leið gerist nokkuð, sem hann
hafði ekki gert ráð fyrir. Sér til
skelfingar sér hann, að eldurinn
teygir sig eftir slóð, sem liggur
að bíl hans. Hann hafði ekki veitt
því eftirtekt, að bensíngeymir-
inn í bíl hans var farinn að leka
og skildi eftir sig slóð að tankn-
um. Það skiptir engum togum,
að bíllinn springur líka 1 loft
upp •—■ en það gerir svo sem
ekkert til, því að flutningabíll-
inn er óðara kominn, og Terry
sezt undir stýrið á nýjum bíl og
heldur áfram glaður og reifur.
Eins og fyrr segir, er Tony
Curtis meðal leikenda í mynd-
inni, en hann er ekki einn í bíl
sínum í keppninni. Með honum
er Susan Hampshire. Þau lenda
líka í broslegum raunum, en
upphafið á þeim má auðvitað
rekja til eins af hrekkjabrögð-
um Terrys. Hann hefur gefið
Tony einhverja ólyfjan að drekka,
sem hefur þær afleiðingar, að
Tony getur ekki ekið. Þá tekur
Susan við akstrinum, en gallinn
er bara sá, að hún hefur aldrei
36 VIKAN 19- tbl-