Vikan


Vikan - 08.05.1969, Side 39

Vikan - 08.05.1969, Side 39
þýðingu, varð Haller að viður- kenna. Karsch kinkaði kolli. —Við verðum að halda okkur á þessu spori. Jiirgen Siebert gengur hér út og inn hjá Westphal, hann er hinn tilvonandi tengdasonur. Við vitum, að Westphal kallinn er á ferðalagi. Gaby er ein heima. É'g þori að veðja, að hún bíður eftir honum. — Vonandi er það þá ekki orðið of seint. Haller hrökk við vegna eigin orða. Hann gaf sér strax róandi sprautu í huganum. Það er hreint brjálæði, sem þú gerir þér nú í hugarlund. Getur Janine ekki eitt einni nóttu með manni sín- um? Ef til vill hefur hann sagt henni hver hann er, og þau hafa farið eitthvert saman í hamingju sinni. Hvað gæti verið hættulegt við það? — Sígarettu, læknir? spurði Karsch og rétti að honum pakka. — Nei, takk. Hann þvingaði sig til þess að brosa. Hann var glaður yfir að vera ekki einn. Þegar hann hafði ekki getað náð í Janine í morgun, þegar hann komst að því, að Júrgen Siebert hafði heldur ekki gist á herbergi sínu um nóttina, þegar þjónn nokkur trúði honum auk þess fyrir því, að herra Siebert væri að því kominn að ganga í hið arðvænlegasta hjónaband, að hann ætlaði að giftast hinni fögru og ríku Gaby Westphal, þá hafði óttinn allt í einu náð tökum á honum. Og hann hafði ekið til Karsch og sagt honum alla söguna. Og leynilögreglumaðurinn hafði þegar komið auga á veika punkt- inn. — Ef Janine stæði í vegi fyrir honum, gæti hann látið sér detta í hug, að ryðja henni úr vegi, áð- ur en hún fær minnið aftur. Áhættan væri ekki svo mjög mikil, þar sem kona hans er opinberlega nú þegar dáin. . . . Að þessu kom Haller alltaf aft- ur og aftur. Þrátt fyrir allar sín- ar róandi sprautur, þrátt fyrir allar skynsemisástæður, sem hann sá stríða gegn þessari stefnu. Tuttugu mínútur yfir fjögur kom leigubíll inn í götuna og stanzaði fyrir framan villu Westphals. Bílstjórinn flautaði. — Þarna kemur hún, hvíslaði Karsch. Haller sá hana í fyrsta skipti. Hún var hávaxin, grönn, glæsi- lega klædd. Hún rétti bílstjóran- um litla tösku, sem hann kom fyrir í farangursrýminu. — Við fylgjum þeim eftir, ákvað Karsch. — Ef til vill hitt- ír hún hann einhvers staðar. \ Vélin til Rómar flaug klukkan 18.35. Þegar Gaby kom inn í anddyri flughafnarinnar, leit hún fyrst leitandi allt í kring um sig. En hún sá aðeins ókunn andlit. Við r Uarií)i$a?kat$it ýhhi- & 'Útikuríir H □. VILHJÁLMS5DN RÁNARGÖTU 15! SÍMI 19669 V____________________________________________J blaðasöluna bað hún um franskt tízkublað. — Takið eftir. Air France til- kynnir komu vélar sinnar frá París. Flugstjóri nokkur hljóp fram hjá henni, sneri sér við, horfði aðdáunarfullu augnaráði á fætur hennar, brosti til hennar. Þegar farið var fram hjá gler- dyrunum, sem lágu út á völlinn, var komið inn í litla kaffistofu. Gaby settist á einn af háu bar- stólunum. Héðan gat hún séð sérhvern , sem kom inn í anddyr- ið. — Þurran vermut, takk. Ég flýg að minnsta kosti hugs- aði hún. Ef hann kemur ekki, þá skjátlast mér um hann. En hann kom. Hún renndi sér niður af sæti sínu og gekk nokkur skref móti honum. Hún varð hrædd, er hún sá útlit hans. Hann virtist vera algjörlega utan við sig. Andlit hans var fölt og innfallið. Ókunn augu störðu á hana. — Jurgen, hrópaði hún lágt. — Já, sagði hann, — hún er dauð. Gaby dró hann nokkur spor til hliðar, þar sem þau voru af- síðis. Hann leit út, eins og hann mundi þá og þegar falla saman. — Elskan, sagði hún lágt, — þú mátt ekki hugsa meira um það. Við erum orðin frjáls, eng- inn getur framar komizt upp á milli okkar. Við verðum komin til Rómar eftir nokkrar klukku- stundir, þá muntu gleyma þessu. — Nei, mótmælti hann, og rak upp óstöðvandi, brjálæðislegan hlátur, því er ekki hægt að gleyma. Hann lyfti höndum sín- um hægt, hélt þeim fyrir framan andlit hennar. — Með þeim kyrkti ég hana, veiztu hvað það er .... þrýsta einfaldlega sam- an .... drepa mannlega veru .... Gaby leit í kringum sig. —- Gerðu mér þann greiða að tala ekki svona hátt. Það vill svo til að við erum stödd útá flugvelli og sérhver þarf ekki endilega að heyra.... Júrgen hreyfði neðrivörina fyrirlitlega. — Þetta er allt sam- an bara venjulegt fólk, það mundi aldrei trúa því, að morð- ingi væri meðal þess. — Eins og þú lítur út, gæti það jafnvel trúað því. Júrgen starði á hana. — Hvernig hafðirðu hugsað þér, að maður liti út eftir á? Er ég ekki nógu geðslegur handa þér eða hvað? í flýti dró hún höfuð hans nið- ur að sér og kyssti hann við- kvæmt. — Ég elska þig, Júrgen, heyrirðu það. Og ég lofa þér því, að allt slcal verða gott. Hann þagði. — Komdu, skipaði hún hon- um, — við skulum fá okkur eitt- hvað að drekka, þá mun þér líða betur. Vermutglas hennar stóð ennþá óhreyft á borðinu. Júrgen pant- aði sér tvöfaldan vodka, drakk hann í einu teig og lét færa sér aftur það sama. — f Róm er vorið komið fyrir löngu, sagði Gaby og brosti til hans. — Ég mundi vilja vera þar heila viku. Júrgen ætlaði að svara ein- hverju. Gaby lyfti augabrúnun- um sínum aðvarandi. Varaðu þig, átti það að segja. Fólk situr hérna hjá og hlustar. Júrgen skildi.; Hann kveikti sér í sígarettu með titrandi hönd- um. — Hvað er langt þangað til við förum? spurði hann í öngum sínum. Rúm klukkustund. — Pantaðirðu herbergi? — Já. Á Savoy. Ég þekki hó- telið. Það er á bezta stað í borg- inni. Þvínæst þögðu þau aftur. Þýð- ingarlaust samtal vildi ekki heppnast þeim. Vísar stóru klukkunnar færðust aðeins hægt áfram. Hátalarinn tilkynnti brottför vélar til Teheran. Það var farið að rökkva. Úti á flugbrautinni blikuðu ljósin, sem takmörkuðu brautina. Þjónninn bak við barborðið fletti sundur kvöldblaði. Þau gátu lesið fyrirsagnirnar með honum: Þjófnaðarárás á gim- steinasala. FórnarlambiS illa sært. Þjófnaðurinn virtur á hálfa milljón marka. Árásarmaðurinn komst undan, þrátt fyrir víð- tæka leit.... — Að tilviljun nágranni minn, sagði Gaby við þjóninn. Þjónninn horfði á hana með hluttekningu. — Tæplega frið- söm nótt, eða hvað? — Já, það má segja það. Júrgen ýtti tíumarkaseðli yfir borðið og stóð upp. — Komdu, sagði hann, •—■ ég verð að sækja töskuna mína og þá er tíminn kominn. — Viltu ekki panta þér brauð- samloku? — Nei, sagði hann, — ég gæti ekki komið niður einum bita. Þegar þau gengu gegnum and- dyrið, stefndi allt í einu grá- hærður maður að þeim. — Herra Siebert...! Júrgen starði á hann eins og vofu. — Þér þekkið mig þó aftur, ferðaskrifstofa Innhoff. Kona yðar vann hjá mér. — Auðvitað þekki ég yður, svaraði Júrgen að lokum. — Að- eins fyrst áttaði ég mig ekki, það eru nú líka nokkur ár síðan við sáumst síðast. Gaby hafði gengið nokkur skref áfram. — Ég heyri ekkert lengur frá konu yðar, hélt herra Imhoff áfram, ótruflaður. .. Áður fyrr skrifaði hún þó af og til... Júrgen leit niður fyrir sig. ■— Hún getur ekki skrifað lengur, herra Imhoff, Janine er dáin. Maðurinn tók um handlegg hans. - í guðs nafni, það vissi ég alls ekkert um. Hvenær dó hún. — Jarðarförin fór fram stuttu fyrir jól. — Krabbamein? Júrgen kinkaði kolli. Það var auðveldast. Imhoff lyfti hatti sín- um utan við sig. — Ég samhygg- ist yður, herra Siebert. Ég get vel skilið, hvernig yður líður ... Júrgen gladdist, þegar hann að lokum gat kvatt. Að þurfa endi- lega að hitta þennan mann nú. — Hver var þetta? spurði Gaby. 19. tbi. VTKAN 39

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.