Vikan


Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 1

Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 1
Inni í blaðinu er palladómur um Bjarna Guðbjörnsson, þingmann og bankastjóra á Isafirði. Þar segir, að Bjarni teljist hæglátur maður og hófsamur, hjálpsamur og raungóður, og sé prúður í framgöngu og persónulega vinsæll, en hann skorti allan garpskap. Og ýmislegt fleira segir Lúpus um Bjarna, ómyrlcur í máli að vanda. — Myndafrásögn er að sunnudegi í nágrenni Reykjavíkur, og þá förum við Elliðavatnsveg gegn um Rauðhóla og segjum í máli og myndum frá þeirri leið, meðal annar sérkennilegri hólaskreytingu í Rauðhólunum. I Eftir eyranu er þáttur um söngkonuna Mama Cass, sem heitir Mama Cass í megrun, en ]jessi kona valdi sér ákaflega harðneskjulega leið til að léttast — var enda ekki vanþörf á. — Og loks er athyglisverð grein um kvnkrómósóm, sem heitir Eru einhverjir fæddir til að verða morðingjar, og fjallar um þá kenningu, að ruglingur í krómósómum mannslíkamans geti valdið eðlislægri ofbeldishneigð.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.