Vikan


Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 43

Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 43
Þetta er JANKA svefnsófinn: STOFUPRÝÐI Á DAGINN. TVEGGJA MANNA HVÍLA AÐ NÓTTÚ TIL. Sterkur — Stílhreinn — Þægilegur. STERKUR. STÍLHREINN. ÞÆGILEGUR. góðan dag, eins og þau væru ókunnug. Þau leyfðu sér aldrei að láta nokkurn ástarvott í ljós svo aðrir sáu. Hann barði að dyr- um hjá henni, þótt hann hefði beinan aðgang frá vinnustofu sinni, og kallaði: — Ertu komin á fætur? En Heinz Linge, herbergis- þjónn Hitlers, segir í endurminn- ingum sínum að hann hafði kom- ið að þeim saman í rúmi foringj- ans. Fritz Wiedemann, höfuðs- maður, segir frá öðru atviki: — Ég var undrandi þegar ég sá fín- lega ítalska skó við hlið her- mannastígvéla Hitlers, fyrir utan dyrnar hjá honum, rétt eins og það væri á hóteli. Þau útfærðu leikaraskapinn í yztu æsar, en létu svo skóna sína fram fyrir dyrnar..... | HITLER VILDI EKKI EIGNAST BÖRN Eftir því sem líflæknir Hitlers sagði, var enginn vafi á því að Eva og Hitler lifðu sem hjón. En Hitler vildi ekki eignast börn; hann hélt því fram að afburða- menn eins og hann, eignuðust venjulega vangefin börn, og þess- vegna lét hann Evu alltaf hafa ný getnaðarvarnarlyf, sem þá var farið að framleiða í Þýzka- landi. Samt vonaði Eva alltaf að hún yrði barnshafandi; hún gekk jafnvel undir læknisaðgerð til að auðvelda það, en móðir hennar sagði að sú aðgerð hefði aldrei borið tilætlaðan áranglur. Eva var aldrei barnshafandi og þau áttu engin börn saman, þótt oft hafi verið látið að því liggja. Eva Braun var nokkuð nöldur- söm við Hitler. Hún átti það til að segia við hann: — Sittu beinn, þú ert lotinn eins og gamal- menni! — Eg hefi svo marga lykl.a i vösunum. sagði Hitler, — og gleymdu því ekki að ég verð allt- af að dragast með miklar áhyggj- ur .... Stundum þráttaði Eva við Hitl- er. Hún mótm,ælti banni sem Hitler lagði við dansi, sagði að það hefði ómórölsk áhrif á þjóð- ina. Þegar Stormsveitaforinginn Heinrich Himmler lét loka öllum snyrtistofum, fékk hún Hitler til að láta opna þær á ný. Hún var líka á móti því að húsmæðrum væri bannað að kaupa matvæli á svörtum markaði. 20. júlí 1944, var gerð tilraun til að ráða Hitler af dögum, með því að koma fyrir tímasprengju í aðalbækistöðvum hans í Rasten- burg í Austur-Prússlandi. Nokkr- um dögum síðar sendi Hitler Evu blóðugan einkennisbúning sinn með þessu bréfi: Elsku Tscapperl! (Litla stúlka). Mér líður vel, hafðu engar áhyggjur; ég er bara dálítið þreyttur. Ég vona að ég geti komið bráðlega heim og fengið hvíld, fela mig umsjá þinni. Ég er í mikilli þörf fyrir ró, en skyldur mínar við þýzku þjóðina koma ofar öllu. Gleymdu því ekki að sú hætta sem vofir yfir mér er ekkert þegar hún er bor- in saman við þá hættu sem her- mennirnir eru í á vígvöllunum. Þakka þér kærlega fyrir ást þína, og berðu foreldrum þínum kveðju frá mér, með þakklæti fyrir góðar óskir þeirra. Eg er mjög hreykinn, og ég bið þig að fullvissa þau um að ég met þann heiður sem það er að vera tengd- ur svo heiðarlegri fjölskyldu. Ég sendi þér einkennisbúninginn, sem ég var í þennan ólukku dag. Það er merki þess að hamingjan er mér hliðholl, og að við þurfum ekki framan að óttast óvini okk- ar. Með hjartalegri ástúð, A.H. Þegar að lokum dró, og Rúss- arnir voru komnir inn fyrir borgarmörk Berlínar, þá leituðu þau Eva og Hitler skjóls í enðan- jarðarbyrgi, sem Hitler hafði lát- ið útbúa. 28. apríl 1945, lét Hitler útbúa „einkaerfðaskrá“ sína. Þar stóð, meðal annars: „Ég hefi nú tekið þá ákvörðun í lok ævi minnar, að kvænast ungu stúlkunni, sem eftir margra ára innilega vináttu, hefir kosið að taka þátt í örlögum mínum ... Vígsluathöfnin fór fram í fundasal byrgisins. Eva var í síð- um taftkjól, hann var með víðu pilsi og hár í hálsinn Hún var með skartgripasett úr gulli og tourmalínum, með demantsúr, og nælu í hárinu. Hitler var í ein- kennisbúningi, eins og venjulega. AÐ LOKUM VARÐ HÚN EVA HITLER Hitler kyssti ekki brúði sína að athöfninni lokinni. Eva var svo taugaóstyrk að hún gerði skyssu, þegar hún skrifaði nafnið sitt, hún var byrjuð að skrifa B, en strikaði það úr, og í fyrsta og síðasta sinn, skrifaði hún nafn sitt, „Eva Hitler“. Það var rétt fyrir miðnætti 28. apríl. Hitler hafði tilkynnt fylgd- ar mönnum sínum, þeim fáu sem eftir voru: — Eg og eiginkona mín erum ákveðin í að deyja, nema eitthvert kraftaverk gerist. Ég er búinn að gera ráðstafanir um að fjarlægja líkama okkar. Tilhugsunin um dauðann hafði engin sýnileg áhrif á Evu. Hún var löngu áður búin að skrifa kveðjubréf sín. Hún eyddi þessu síðasta kvöldi með því að syngja uppáhaldssönginn sinni: „Tea for two“, og leika við börn Jósefs Göebbels. Síðdegis 30. apríl, drógu þau Eva og Hitler sig í hlé í skrifstofu hans. Klukkan 3.30 skaut Hitler sig. Eva fannst líka látin. Hún hafði tekið inn eitur. Hermenn báru líkin upp í garð fyrir ofan byrgið, þar sem 40 gallon af bensíni voru til reiðu. Því var hellt yfir líkin, og bilstjóri Hitl- ers fleygði logandi kyndli yfir líkin, sem áður höfðu verið sökk- bleytt í bensíni, og innan stund- ar voru þau brunnin til ösku .... ☆ 25. tbi. VXKAN 43

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.