Vikan


Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 20

Vikan - 19.06.1969, Blaðsíða 20
ER MORÐHNEIGÐIN MEÐFÆDD? ÞESSARI SPURNINGU HEFUR VERIÐ VARPAÐ FRAM VIÐ MÖPcG OG ÞÖTT SVARIÐ VÆRI JÁ, ER EKKERT HÆGT AÐ GERA TIL HJÁLPAR í JÁKVÆÐA ÁTT - EMNÞÆ ERU EINHVERIIR HEDDIRII Upp á síðkastið hefur þessari spurningu verið varpað fram og hún rökrædd víða um veröld í sambandi við réttarhöld yfir morðingjum, sem allir hafa átt það sameiginlegt, að hafa aðra samsetningu kynkrómósóma en eðlilegt er talið. Reiknað er með, að einn af hverjum þúsund fæðist með „glæp- samlega“ samsetningu kynkrómósóma. Erfðafræðingar kalla þetta XYY samsetningu. Richard Speck, maðurinn sem myrti og limlesti átta hjúkr- unarkonur í Chicago, var XYY maður. Daniel Hugon, París, myrti 60 ára skækju. Hann var XYY maður. Lawrence Hannel, Melbourne, kyrkti 77 ára konu. Hann var XYY maður. Skozki erfðafræðingurinn William Price hefur rannsakað fjölda fólks í fangelsum og á geðveikrahælum, og hann hefur slegið því föstu, að í þeim hópi séu 50 til 60 sinnum fleiri með hina hættulegu XYY samsetningu en í tilsvarandi fjölmennum hópi eðlilegs fólks. Þessi vitnisburður hans er tíðum notaður af vamaraðilum, sem beita XYY samsetningunni sem vörn í rétt- arhöldum. Fremsti vísindamaður Svía á þessu sviði, prófessor Hans Forsman í Gautaborg, segir: — Það væri rangt, að segja að ALLIR þeir, sem fæðast með XYY samsetningu verði afbrota- menn. Eg get þvert á móti borið því vitni, að meðal þeirra eru fullkomnir séntilmenn, menn, sem aldrei hafa komizt í kast við réttvísina. Af rannsóknum mínum dreg ég þá ályktun, að bein- harður dilkadráttur, eins og fram kemur í niðurstöðum skozku rannsóknarinnar, sé ekki réttlátur. Prófessor Forsman starfar við geðveikrasjúkrahús heilags Görans í Gautaborg. Hann hefur rannsakað fjölda XYY sjúkl- inga við það sjúkrahús og segir um þá rannsókn: — Hér er töluverður fjöldi með þessa krómósómsamsetningu, en í flestum hóprannsóknum verður hið sama uppi á teningn- um hvort sem er. Trúlega hefur eitt sveinbarn af hverjum þús- und þessa samsetningu. En rannsóknirnar eru enn ekki nærri nógu víðtækar til að hægt sé að draga af þeim varanlegar álykt- anir. En það fer ekki milli mála, að fjölmargir eru XYY menn án þess að eiga við glæpahneigð eða sálrænar truflanir að stríða. A þessu stigi rannsóknanna er þó ef til vill hægt að slá því föstu, að XYY menn eigi fremur á hættu að verða afbrotamenn eða fá geðrænar truflanir en eðlilegir menn, það er XY menn. Það er heldur ekki víst, að afbrotahneigð fái útrás í ofbeldisverkum. Vissulega eru þau hlutfallslega mörg, en meðal XYY mannanna er einnig að finna venjulega þjófa, falsara og aðra afbrotamenn, sem ekki limlesta fólk eða myrða. Og þar sem margir af þessu tagi eru óaðfinnanlegir borgarar, bendir það eindregið til þess, að aðrar ytri kringumstæður geri XYY manninn að morðingja. Hvaða kringumstæður það eru, viturn við ekki ennþá. En venju- lega hefur umhverfi og uppeldi mikil áhrif í þessu sambandi. XYV mennimir eru stundum kallaðir „löngu mennirnir“, af því þeir eru næstum alltaf yfir 180 cm á hæð. Samkvæmt skozku 20 VIKAN 25-tw- Ef til vill er Horst Dieter Götze XYY maður. Hann hef- ur viðurkennt morð á þremur skækjum í París, en líkur eru talðar benda til, að hann hafi einnig unnið á allverulegum hópum vændiskvenna í Lond- on og Þýzkalandi. Draumur hans var að myrða íleiri kon- ur en Landru, varúlfurinn frá Dússeldorf og Jack the Ripper samanlagt.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.